„Hvergi“ í stjórnkerfinu rætt um að taka orku frá stóriðju til orkuskipta

Þingmaður Viðreisnar spurði formann Sjálfstæðis­flokksins að því á þingi í gær hvort það væri „heppilegt“ að ríkis­stjórnar­flokkar töluðu „í austur og vestur“ um öflun orku og ráðstöfun hennar.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar spurði Bjarna Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra að því, á Alþingi í gær, hvort honum þætti koma til greina að segja upp raforku­samningi við stór­iðju­fyrirtæki í þágu orku­skipta, hvort það væri raunhæft og hvort það væri verið að ræða þennan möguleika í samtölum á milli milli ríkis­stjórnar­flokkanna.

Bjarni sagði í svari sínu að það væri hvergi í stjórn­kerfinu verið að ræða um að segja upp eða draga úr orku­afhendingu til stóriðju í þágu orku­skipta, en tilefni fyrir­spurnarinnar frá Sigmari voru meðal annars orð sem Orri Páll Jóhannsson þing­flokks­formaður Vinstri grænna lét falla á opnum fundi flokksins í Borgarnesi nýlega.

Efni fundarins var til umfjöllunar í Kjarnanum á sunnudag. Þar var haft eftir Orra Páli að ræða þyrfti hvort ein­hver hluti þeirrar orku sem aflað sé í dag og ráð­stafað til stór­iðju geti hugs­an­lega farið í það sem þurfi í almanna­þágu – til að mæta fólks­fjölgun og orku­skipt­um. „Þetta er umræða sem við höfum ekki tek­ið. Og er ekki tekin fyrir í þess­ari skýrslu,“ sagði Orri á fundinum í Borgarnesi og veif­aði græn­bók Vil­hjálms Egils­son­ar.

Sigmar sagði að það væri erfitt að átta sig á því hvernig ríkis­stjórnin ætlaði að uppfylla orkuþörf og loftslags­markmið því að menn töluðu „í austur og vestur hver úr sínu sólkerfinu“ innan ríkis­stjórnarinnar og bar svo fram spurningu sína, hvort ríkis­stjórnar­flokkarnir væru að ræða sín á milli um að draga úr afhendingu orku til stór­iðjuvera.

...annað mál hvort hægt verði að framlengja alla samninga

Bjarni sagði í svari sínu að Sigmar væri að spyrja um tiltölu­lega afmarkaðan þátt umræðunnar, þ.e. hvort til umræðu væri að annað hvort segja upp eða draga úr orku­afhendingu til stóriðju.

„Ég vil nú meina að þegar menn taka svona til orða eins og hér var vísað til, þ.e. í umræðu um þessi mál, þá megi líka alveg sjá fyrir sér þann möguleika að samningar renni út og þá sé ekki hægt að endurnýja, þannig að það gæti gerst einhvern tímann í fram­tíðinni. En það er hvergi verið að ræða um þessa hluti í stjórn­kerfinu,“ sagði Bjarni og bætti því við að fyrir sitt leyti teldi hann að aldrei hefði verið „jafn mikill ávinningur“ af viðskiptum við orku­frekan iðnað í landinu eins og einmitt í dag, sem væri „mjög jákvætt mál fyrir hagkerfið okkar“.

Sigmar brást við svari Bjarna og sagði „áhugavert að heyra þetta, að það sé hvergi verið að ræða þetta innan ríkis­stjórnar­flokkanna eða í stjórn­kerfinu“.

„Áhrifa­menn eins stjórnar­flokksins og fylgjendur tala nefnilega mikið um þetta á fundum og í opinberri umræðu og ég efast ekki um að hæstvirtur ráðherra hefur tekið eftir því. Varðandi þann möguleika að hugsanlega megi sjá það fyrir sér að gera einhverjar breytingar þegar raforku­samningar renna út þá skilst mér nú að samningurinn í Straumsvík renni út 2036, svo dæmi sé tekið, og sá á Reyðar­firði árið 2048. Það er nú ansi langt seilst ef menn eru að hugsa um orku­skipti í því samhengi að ætla sér að sækja þann ávinning,“ sagði Sigmar.

Þing­maðurinn spurði Bjarna síðan að því hvort hann teldi „heppilegt“ að ríkis­stjórnar­flokkarnir töluðu „í austur og vestur í þessu mikilvæga hagsmuna­máli“ þannig að „almenningur sitji eftir ringlaður og hafi ekki hugmynd um hvert ríkis­stjórnin stefnir“.

Bjarni svaraði og taldi að það væri „allt of djúpt í árinni tekið að segja að flokkarnir tali út og suður þó að menn leyfi sér að viðra þá skoðun í opinberri umræðu að þeir myndu vilja sjá hærra hlutfall af orkunni sem við eigum til staðar nú þegar renna annað en í stór­iðjuna“ og benti svo á þá staðreynd að orku­frekur iðnaður tekur um 80 prósent af allri orku sem framleidd er í landinu í dag.

„En það er ekki mín skoðun að þessi mál verði leyst varðandi orku­skiptin með því að draga úr því heldur þurfum við að framleiða meira. Við þurfum að spyrja okkur spurninga sem snúa að flutnings­kerfinu. Við sjáum það til dæmis núna um þessar mundir að Lands­virkjun er með áform um að reisa virkjun í Þjórsá og hefur umsókn um það til meðferðar hjá Orku­stofnun og ég veit ekki betur en að sú umsókn hafi verið í meðferð frá júní 2021. Ef okkur liggur á að nýta þá hagkvæmu virkjunar­kosti sem eru til staðar í landinu þá þurfum við líka að gá að því að stjórn­kerfi okkar geti afgreitt hugmyndir innan einhverra skynsamlegra marka vegna þess að þetta er bara einn áfangi af mörgum sem þarf að klára til þess að þar verði hafin fram­leiðsla innan tíðar,“ sagði Bjarni.

Áður hafði fjármála­ráðherra einnig vakið máls á því í svari sínu við fyrir­spurn Sigmars að ríkis­stjórnin sem nú situr, ólíkt þeim fyrri, náð að koma ramma­áætlun í gegnum Alþingi og hefði einnig í stjórnar­sáttmála lagt upp með að þétta flutnings­kerfi raforku í landinu.

Þörf væri á því „vegna þess að strönduð orka í kerfinu okkar er á margan hátt töpuð orka og kallar fram þörfina fyrir fleiri virkjanir sem er algjör synd ef við eigum orku en erum bara ekki að koma henni rétta leið,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár