Enginn borgarfulltrúi með minna en 1.179 þúsund krónur í mánaðarlaun

Á kjör­tímabilinu sem er nýhafið mun fastur mánaðar­legur launa­kostnaður Reykja­víkurborgar vegna borgar­fulltrúa og fyrstu vara­borgar­fulltrúa að lágmarki nema 37,6 milljónum króna. Fyrstu vara­borgar­fulltrúar eru flestir með 911 þúsund krónur í laun.

Frá blaðamannafundi í aðdraganda myndunar nýs meirihluta í Reykjavík.
Frá blaða­manna­fundi í aðdrag­anda mynd­unar nýs meiri­hluta í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

Reglu­legur kostnaður Reykja­víkurborgar við laun borgar­fulltrúa, vara­borgar­fulltrúa og borgar­stjóra verður að lágmarki 451,5 milljónir króna á ári á kjör­tímabilinu sem er nýhafið, samkvæmt upplýsingum um laun kjörinna fulltrúa sem finna má á vef borgarinnar.

Við þennan kostnað bætist svo auka­kostnaður ef kalla þarf þá vara­borgar­fulltrúa sem ekki eru fyrstu vara­borgar­fulltrúar sinna flokka á fundi vegna fjarvista annarra fulltrúa. Fastur mánaðar­legur launa­kostnaður borgar­stjórnarinnar nemur 37,6 milljónum króna.

Grunnlaun borgar­fulltrúa eru 892 þúsund krónur og grunnlaun fyrsta vara­borgar­fulltrúa hvers þeirra átta flokka sem eiga fulltrúa í borgar­stjórn eru 624 þúsund krónur. Laun Dags B. Eggerts­sonar borgar­stjóra samkvæmt ráðningar­bréfi eru 2,3 milljónir króna. Hann þiggur ekki laun sem borgar­fulltrúi, þrátt fyrir að hafa verið kjörinn sem slíkur.

Borgar­fulltrúarnir í Reykja­víkur eru 23 talsins og hafa verið það frá því í upphafi síðasta kjör­tímabils. Samkvæmt lögum mega þeir ekki vera færri, en í sveitar­stjórnar­lögum frá 2011 er kveðið á um að aðalmenn í sveitar­stjórnum þar sem íbúar eru 100 þúsund eða fleiri skuli vera á bilinu 23-31 talsins.

Enginn aðalmaður með undir 1.179 þúsund krónur á mánuði

Til viðbótar við grunnlaun borgar­fulltrúa og vara­borgar­fulltrúa þeir allir einhverskonar álags­greiðslur ofan á laun sín, af mismun­andi tilefnum þó. Sumir fá álag fyrir að gegna formennsku í ráðum, auk þess sem oddvitar, þau sem sitja í borgar­ráði og þau sem sitja í þremur nefndum fá einnig álags­greiðslur.

Allir borgar­fulltrúarnir fá að minnsta kosti 287.464 kr., sem samsvarar einni álags­greiðslu upp á 223.034 krónur og svo föst greiðsla starfs­kostnaðar, sem nemur 64.430 krónum.

Enginn borgar­fulltrúi er þannig með regluleg heildar­laun frá Reykja­víkurborg sem eru lægri en 1.179.598 krónur, en alls eru 9 af 22 borgar­fulltrúum með þessa launa­útkomu, samkvæmt upplýsingum á vef borgarinnar.

Aðrir fá fleiri auka­greiðslur fyrir störf sín. Hjá sex borgar­fulltrúum bætast 53.528 krónur við sökum þess að þau eru varamenn í borgar­ráði og hífast laun þessara fulltrúa upp í 1.233.126 krónur.

Fimm borgar­fulltrúar fá svo tvær heilar álags­greiðslur ofan á laun sín, en það eru þær Ragnhildur Alda Vilhjálms­dóttir, Kolbrún Baldurs­dóttir, Hildur Björns­dóttir, Heiða Björg Hilmis­dóttir og Dóra Björt Guðjóns­dóttir. Launa­útkoma þeirra nemur 1.456.160 krónum.

Sérstakt aukaálag fyrir forseta borgarstjórnar og formann borgarráðs

Þau tvö sem eftir standa fá enn frekari álags­greiðslur fyrir sín störf. Einar Þorsteinsson oddviti Fram­sóknar er formaður borgar­ráðs og fær fyrir það 356.854 króna álags­greiðslu ofan á oddvita­álagið. Heildar­laun Einars frá borginni nema því 1.589.980 krónum.

Þórdís Lóa Þórhalls­dóttir, forseti borgar­stjórnar og oddviti Viðreisnar, fær svo hæstu álags­greiðslurnar fyrir störf sín, en forseti borgar­stjórnar fær tvöfalt álag fyrir það hlutverk, 446.067 krónur og auk þess situr Þórdís Lóa í borgar­ráði. Heildar­laun Þórdísar Lóu frá borginni nema því 1.679.193 krónum.

Vert er að taka fram að inni í þessum tölum eru ekki þær greiðslur sem sumir borgar­fulltrúar fá fyrir að taka sæti í stjórnum fyrir­tækja borgarinnar eða byggða­samlögum á borð við Sorpu eða Strætó.

Sjö af átta fyrstu varaborgarfulltrúum fá álagsgreiðslur

Sem áður segir eru regluleg grunnlaun fyrstu vara­borgar­fulltrúa, eins frá hverjum flokki, rúmar 624 þúsund krónum. Ofan á það bætast svo 64.430 króna greiðsla vegna starfs­kostnaðar. Hjá öllum nema Helgu Þórðarsdóttur vara­borgar­fulltrúa Flokks fólksins fylgir einnig ein heil álags­greiðsla laununum, í flestum tilfellum vegna þess að vara­borgar­fulltrúarnir sitja í þremur nefndum.

Hjá sjö af átta fyrstu vara­borgar­fulltrúum eru regluleg laun frá Reykja­víkurborg því 911.958 krónur, eða meira – en raunar á það bara við Pawel Bartoszek vara­borgar­fulltrúa Viðreisnar. Hann fær 53.528 krónur ofan á þessa upphæð fyrir setu sína sem varamaður flokksins í borgar­ráði.

Launin gætu verið enn hærri

Laun borgar­fulltrúa voru lengst af beintengd við þing­fararkaup alþingis­manna, en strípað þing­fararkaup þeirra er í dag 1.285.411 krónur.

Við ákvörðun kjararáðs, sem hækkaði laun þingmanna og ráðherra allhressilega árið 2016, var ákveðið í borgar­stjórn að afnema tengingu launa borgar­fulltrúa frá þing­farar­kaupinu.

Í fram­haldinu var svo skipt um aðferð við að ákvarða laun kjörinna fulltrúa í Reykjavík og tekin upp tenging við launa­vísitölu, en miðað er við þróun vísi­tölunnar frá mars­mánuði 2013.

Launin uppfærast í janúar og júlí ár hvert og mega kjörnir fulltrúar í Reykjavík því eiga von á hærri launum í lok þessa mánaðar en hér hefur verið fjallað um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár