Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Samfylkingin sigurvegarar kosninganna

Nýr flokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, Miðflokk­urinn, fær sjö þingmenn. Flokkur fólksins fær fjóra og Samfylkingin bætir við sig fjórum þing­mönnum.

Formenn flokkanna
Formenn flokk­anna í sjón­varps­sal RÚV í nótt. Mynd: Pressphotos

Miðflokkurinn, Flokkur fólksins og Samfylkingin eru sigurveg­arar Alþingis­kosninganna 2017, en Sjálfstæðis­flokkurinn, Píratar, Viðreisn og Björt framtíð helstu tapararnir. 

Miðflokkurinn, klofnings­framboð Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, endaði með 10,9 prósent greiddra atkvæða og sjö þingmenn, Flokkur fólksins fékk 6,9 prósent og fjóra þingmenn og Samfylkingin fékk 12,1 prósent atkvæða, bættu við sig fjórum þing­mönnum og eru því alls með sjö. 

Sjálfstæðis­flokkurinn er enn stærsti flokkurinn á landinu, hlaut 25,5 prósent greiddra atkvæða, en missti alls fimm þingmenn frá fyrra kjör­tímabili. Píratar misstu fjóra þingmenn, Viðreisn þrjá og Björt framtíð hlaut einungis 1,2 prósent greiddra atkvæða og komust því ekki á þing. 

Vinstri græn enduðu með 16,9 prósent fylgi, sem er nokkuð minna en kannanir sýndu, en bættu við sig einum þingmanni. Framsóknar­flokkurinn, sem hafði verið að mælast lítill í skoðana­könnunum eftir að flokkurinn klofnaði með framboði Sigmundar Davíðs, endaði í 10,7 prósentum og hélt sínum þingmanna­fjölda. 

 

Niðurstaða Alþingiskosninga 2017

Sjálfstæðis­flokkur 25,5 prósent - 16 þingmenn

Vinstri græn 16,9 prósent - 11 þingmenn

Samfylkingin 12,1 prósent - 7 þingmenn

Miðflokkurinn 10,9 prósent - 7 þingmenn

Framsóknar­flokkurinn 10,7 prósent - 8 þingmenn

Píratar 9,2 prósent - 6 þingmenn

Flokkur fólksins 6,9 prósent - 4 þingmenn

Viðreisn 6,7 prósent - 4 þingmenn

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2017

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár