Trump tekur völdin í sínar hendur

Donald J. Trump verður 45. forseti Banda­ríkjanna þegar hann tekur við valda­þráðunum frá Barack Obama. Fjár­festar eru ósammála um hvernig efnahags­lífinu um reiða af í Banda­ríkjunum undir hans stjórn.

Donald J. Trump, sjötugur fjár­festir frá New York, tekur í kvöld við valda­þráðunum í Hvíta húsinu og verður 45. forseti Banda­ríkjanna. Hann sagði í ávarpi í Washington D.C:, þar sem tónleikar voru haldnir honum til heiðurs, að hann væri mættur til að „breyta stjórnun landsins“. Hann var kokhraustur þegar hann gekk fram á sviðið og veifaði til áhorfenda. „Ég mun gera Banda­ríkin frábær aftur,“ sagði Trump, áður en hann gekk af sviðinu. 

Óhætt er að segja að mikil ólga sé víða í Banda­ríkjunum vegna valda­skiptanna og voru mótmæli vítt og breitt um Banda­ríkin í gær, og eru raun skipulögð fram eftir allri næstu viku. Mörg hundruð mótmæla­fundir hjá kvenna­hreyfingum í Banda­ríkjunum hafa verið skipulagðir. Við Trump turninn, við 61. stræti skammt frá Central Park vestanmegin í New York, voru fjölmenn mótmæli í gær þar sem De Blasio borgar­stjóri var meðal þeirra sem hvatti fólk til að þess að berjast gegn stjórn Trump og stjórnmála­áherslum hans.

Var framboð Trumps í samskiptum við Rússa?

Valda­skiptin nú eru ekki síst merkileg fyrir þær sakir að rannsókn stendur enn fyrir á því, hvort trúnaðar­menn úr framboði Trumps hafi verið í samskiptum við rússnesk stjórn­völd þegar hakkarar frá Rússlandi gerðu tölvu­árásir í aðdrag­anda kosninga, með það að markmiði að ýta undir sigur­líkur Trumps. Leyni­þjónustan CIA er með málin til rann­sóknar en að mati stofnunarinnar eru yfir­þyrmandi sannanir fyrir hendi sem staðfesta það að Vladímir Pútín Rúss­lands­forseti hafi verið með puttana í því þegar tölvu­árásirnar voru gerðar.

Trump hefur gert lítið úr þessu, en það hafa yfirmenn leyni­þjónustu Banda­ríkjanna ekki gert, segja mikilvægt að komast til botns í því hvernig Rússar beittu sér. Málið væri án fordæma þar sem stjórn­völd í öðru ríki hefðu ekki með viðlíka hætti skipt sér af framkvæmd kosninga í Banda­ríkjunum.

Skuldar bönkum á Wall Street háar fjárhæðir

Þá hafa þingmenn Demókrata einnig kallað eftir því að formleg athugun fari fram á því að hvort Trump hafa aðskilið viðskipta­hagsmuni sína nægilega vel, en hann á eignir upp á 3,7 milljarða Bandaríkja­dala, samkvæmt Forbes, og skuldir bönkum á Wall Street í það minnsta 600 milljónir Bandaríkja­dala í gegnum félög sín. Hann hefur sjálfur sagt að börn hans muni taka við stjórnar­taumunum í viðskipta­veldinu og að engir hagsmuna­árekstrar verði í hans valdatíð. 

Þrátt fyrir skraut­lega kosninga­baráttu og afar umdeilda framkomu, svo ekki sé meira sagt, þá eru hagfræðingar og fjár­festar flestir á því að efnhagur Banda­ríkjanna muni ekki taka koll­steypu undir stjórn Trumps, hvorki upp á við né niður á við. Einn þeirra sem telur bandarískan efnahag nú standa traustum, og að Trump muni líklega ekki breyta miklu hvað það varðar, er Warren Buffett, einn auðugasti maður heims. Hann studdi Hillary Clinton eindregið en í viðtali í New York í gær sagðist hann hafa trú á því að Trump myndi taka mark á ráðgjöfum hans, sem hann þekkti marga hverja persónu­lega og hefði mikið álit á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár