Skjal skráð á Óla Björn: Hjálpar vinum sínum

„Það sem fer á milli mín og þing­manna eða ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins er ég ekki að fara ræða við þig eða aðra,“ segir Óli Björn Kárason, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Lýsigögn rekja yfir­lýs­ingu Ólafar Nordal um aflands­fé­lagið Dooley Securities til hans.

„Það sem fer á milli mín og þing­manna eða ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins er ég ekki að fara ræða við þig eða aðra. Ég hef auð­vitað veitt Ólöfu Nordal og mörgum öðrum félögum mínum ráð eins og ég hef getað.“

Þetta segir Óli Björn Kárason, vara­þing­maður og áhrifa­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum, aðspurður hvort hann hafi skrifað eða hjálpað til við að skrifa yfir­lýs­ingu Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra um aflands­fé­lag sem hún og eig­in­maður hennar tengj­ast.

Lýsigögn PDF-skjals­ins sem Ólöf sendi fjöl­miðlum þegar fjallað var um félagið Dooley Securities sýna að skjalið var búið til úr Word-skjali skráðu á Óla Björn. Á þetta bendir pistla­höf­undur Stund­ar­innar, Gunnar Jörgen Vigg­ós­son, í grein sem hann birti í dag. Þegar Stundin sló á þráð­inn til Óla Björns furð­aði hann sig á erind­inu og vildi ekki tjá sig um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnmálamenn í skattaskjólum

FréttirStjórnmálamenn í skattaskjólum

Ekki gefið upp hvort ráð­herra hafði rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, setti fram alvar­legar ásak­anir á hendur Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra í Silfrinu síð­ustu helgi. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri telur sér ekki heim­ilt að svara því hvort Bjarni hafi fengið rétt­ar­stöðu rann­sókn­ar­þola eftir kaup á gögnum um aflands­fé­lög Íslend­inga og upp­ljóstr­anir Panama­skjal­anna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár