40.000 lítrar af olíu í hafið við strendur Chile

Námu­fyrirtæki tilkynnti um olíuleka laugar­daginn síðastliðinn. Sjóherinn í Chile rannsakar nú orsök lekans.

40.000 lítrar af olíu runnu í hafið í Patagóníu í Chile um helgina. Svæðið skartar mikilli náttúru­fegurð og var náttúran á svæðinu að mestu ósnortin. Jafnframt hefur svæðið fjölmörg dýr og plöntur sem mikilvægt er að varðveita. Sjóherinn í Chile vinnur nú að því að takmarka skaðann, að því er kemur fram í frétt The Guardian.

Námu­fyrirtækið CAP tilkynnti sjóhernum um lekann laugar­daginn síðastliðinn. CAP var að grafa eftir kalkstein á svæðinu þegar slysið átti sér stað.

Sjóherinn rannsakar nú hvað olli lekanum. Námu­fyrirtækið segist munu vinna fúslega með rann­sakendum og veita allar upplýsingar sem nauðsynlegar eru.

Fjölmörg spendýr á svæðinu

Talið er að að minnsta kosti séu 15.000 lítrar af sjó mengaðir af olíu. Félaga­samtökin Greenpeace Chile telja að lekinn geti haft hrikaleg áhrif á náttúruna á svæðinu og erfitt sé að komast að því. Einnig séu fjölmörg spendýr í Patagóníu í hættu, til að mynda hvalir og höfrungar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár