May var bæði með og á móti Brexit

Stjórn­ar­and­staðan í Bret­landi gagn­rýnir nú harð­lega Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra.

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og for­maður Íhalds­flokks­ins, sagði á fundi með banka­mönnum Goldman Sachs bank­ans, að Brexit, það er útganga Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu, geti orðið efna­hags­lega erfið fyrir Bretland.

The Guardian birti í gær hljóð­upp­töku af erindi sem May hélt á fyrr­nefndnum fundi sagði hún að það væri „mik­il­vægt atriði fyrir breskan efna­hag að vera hluti af 500 millj­óna íbúa við­skipta­svæði,“ og vitn­aði þar til innri mark­aðar Evrópu. Hún sagði að þátt­taka Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu væri einnig mik­il­væg til að tryggja öryggi í Bret­landi, og tal­aði frekar fyrir því að Bretland ætti að vera í Evr­ópu­sam­band­inu vegna þess­ara mik­il­vægu hags­muna.

Stjórn­ar­and­stæð­ingar í Bret­landi gagn­rýndu May harð­lega fyrir orð sín á fund­inum með banka­mönnum Goldman Sachs, og sögðu þau sýna að May hefði leikið tveimur skjöldum í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir Brexit, en orðin féllu á lok­uðum fundi um mán­uði áður en nið­ur­staðan úr Brexit-kosn­ing­unum var ljós.

May hefur sagt að Bretland muni fara úr Evr­ópu­sam­band­inu og er gert ráð fyrir að það ger­ist árið 2019, en ekk­ert er þó öruggt í þeim efnum ennþá.

Pundið hefur fallið veru­lega á und­an­förnum mán­uðum gagn­vart helstu við­skipta­myntum, og hefur sam­keppn­is­staða Bret­lands breyst mikið á skömmum tíma. Pundið kostar nú 139 krónur en fyrir ári kost­aði það 206 krónur.

Bretland er eitt stærsta við­skipta­land Íslands en um 19 pró­sent erlendra ferða­manna komu þaðan í fyrra og 12 pró­sent af öllum vöru­út­flutn­ingi var til Bret­lands. Einkum og sér í lagi er Bretland mik­il­vægur mark­aður fyrir sjáv­ar­af­urðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár