Katrín ætlar ekki að bjóða sig fram

Katrín Jakobs­dóttir mun ekki bjóða sig fram sem forseta Íslands.

Katrín Jakobs­dóttir hyggst ekki bjóða sig fram til forseta Íslands. Þetta tilkynnti hún á Facebook síðu sinni fyrir skemmstu. Hún segir að þrátt fyrir jákvæð viðbrögð ætli hún ekki að skipta um skoðun. „ Ég vona að kosninga­barátta þeirra einstaklinga sem gefa kost á sér í þetta embætti verði málefnaleg og innihaldsrík og í þetta embætti veljist góður þjónn þjóðarinnar sem beiti sér fyrir mann­réttindum og lýðræðis­umbótum, vernd náttúru og umhverfis og stöðu íslenskrar tungu,“ segir hún jafnframt.

Samkvæmt könnun Stundarinnar og MMR er Katrín með lang­mestan stuðning sem forseti, en 23 prósent svarenda sögðust líklegir til að kjósa hana. Í viðtali við Stundina fyrir skemmstu sagði Katrín að auki að forseti eigi að berjast fyrir umhverfi, lýðræði og mann­réttindum.

Hér er tilkynning Katrínar í heild:

„Fjölmargir hafa haft samband að undan­förnu og hvatt mig til að bjóða mig fram sem forseta Íslands. Fólk sem ég þekki vel og fólk sem ég þekki ekkert, fólk hvaðanæva af landinu, fólk af öllum stéttum, konur og karlar, fólk á öllum aldri. Að sama skapi hafa birst kannanir þar sem einhverjir virtust telja mig heppilega í þetta embætti.

Af þessum sökum fannst mér ekki geta annað en hugleitt málið alvarlega í nokkra daga. Ég hef líka tekið eftir gagnrýni frá einstaka mönnum sem eru duglegir að tjá sig, virðast óttast framboð mitt meira en góðu hófi gegnir og ráða ekki almennilega við þá hugmynd að konur taki eigin ákvarðanir.

Það sem stendur hins vegar upp úr eru mörg góð orð frá stórum og fjöl­breyttum hópi fólks sem ég ber virðingu fyrir og vil þakka hvatninguna.

Óháð þessum jákvæðu viðbrögðum en einnig algjör­lega burtséð frá þeim neikvæðu hef ég hins vegar tekið þá ákvörðun að skipta ekki um skoðun. Ég mun ekki bjóða mig fram til embættis forseta Íslands að þessu sinni. Ég vona að kosninga­barátta þeirra einstaklinga sem gefa kost á sér í þetta embætti verði málefnaleg og innihaldsrík og í þetta embætti veljist góður þjónn þjóðarinnar sem beiti sér fyrir mann­réttindum og lýðræðis­umbótum, vernd náttúru og umhverfis og stöðu íslenskrar tungu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár