Ár síðan konur í stjórnmálum greindu frá Metoo-reynslu sinni

Fyrir um ári síðan riðu stjórn­mála­konur á vaðið að birtu áskorun þar sem þær kröfð­ust þess að flokk­ar og starfs­staðir stjórn­mála­fólks myndu setja sér við­bragðs­reglur og lofa konum því að þær þurfi ekki að þegja og að þær myndu fá stuðn­ing.

Fyrir rúmu ári síðan eða þann 24. nóv­em­ber 2017 riðu stjórn­mála­konur á vaðið og birtu áskorun – sem und­ir­rituð var af á fimmta hund­rað stjórn­mála­kon­um – þar sem þær kröfð­ust þess að karlar tækju ábyrgð og að stjórn­mála­flokk­arnir tækju af festu á mál­inu. Þess var kraf­ist að flokk­arnir og starfs­staðir stjórn­mála­fólks myndu setja sér við­bragðs­reglur og lofa konum því að þær þurfi ekki að þegja og að þær myndu fá stuðn­ing.

Rúm­lega 800 kon­ur – sem voru og höfðu verið virkar í stjórn­málum á Íslandi – ræddu saman í lok­uðum Facebook-hópi og deildu reynslu­sögum um kynjað starfs­um­hverfi stjórn­mál­anna.

136 frá­sagnir voru birtar opin­ber­lega en kon­urnar komu úr öllum flokk­um, voru á ýmsum aldri, höfðu starfað á flestum sviðum stjórn­mál­anna, á ýmsum tímum og um allt land. Sagði í til­kynn­ingu frá for­svars­mönnum hóps­ins á sínum tíma að ein­stakur sam­hljómur og sam­staða hefði ein­kennt umræður í hópn­um. Fjöl­breyttar sögur kvenn­anna hefði dregið upp slá­andi mynd af þeim karllæga heimi sem stjórn­málin eru – sögur um kyn­bundið ofbeldi, áreitni, vald­beit­ingu og þögg­un.

Þingmenn töluðu niðrandi um konur

Upp­taka náð­ist af því þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Gunnar Bragi Sveins­son, Berg­þór Óla­son og Anna Kol­brún Árna­dóttir ræddu málin á Klaustri Bar hinn 20. nóv­em­ber, en þing­menn­irnir Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son voru einnig í hópn­um. Í umfjöllun Stund­ar­innar og DV kemur fram að þing­menn­irnir hafi talað með niðr­andi hætti um kven­kyns stjórn­mála­menn í sam­tölum sín á milli.

Sögðu þeir meðal ann­ars að stjórn­mála­kona hlyti að „hrynja nið­ur“ á próf­kjörs­lista ef hún væri ekki jafn „hot“ og áður.

Í umfjöllun Stund­ar­innar segir meðal ann­ars orð­rétt:

„Á einum tíma­punkti töl­uðu þing­menn­irnir um hvernig næsta próf­kjör hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í til­teknu kjör­dæmi geti far­ið.

Gunnar Bragi: „Ég held reyndar að [...] geti verið hel­víti öfl­ug. Hún er hel­víti sæt stelpa.“

Sig­munur Dav­íð: „Þetta er svona móment, ung kona, ungt fólk í Sjálf­stæð­is­flokkn­um, lyftum henn­i.“

Berg­þór: „Nú ætla ég að segja eitt sem er nátt­úru­lega mjög dóna­legt, en það fellur hratt á hana. Hún er miklu minna hot í ár en hún var bara fyrir tveimur árum síð­an. Það er ótrú­legur mun­ur.“

Sig­mundur Dav­íð: „Og á þeim for­sendum segi ég að hún hrynji niður list­ann.“

Berg­þór: „Eðli­lega.“

Á þessu augna­bliki skaut Anna Kol­brún inn: „Vilj­iði velta fyrir ykk­ur, ef þetta væri karl?“ og við tóku háreysti og hlátra­sköll karl­anna.

Berg­þór Óla­son sagði um Ingu Sæland, for­mann og stofn­anda Flokks fólks­ins, verða „húrr­andi klikk­aða kunt­u“.

Hæddust að Metoo-umræðunni

Þing­menn­irnir hædd­ust enn fremur að Metoo-umræð­unni í hljóð­upp­tök­unni. Gunnar Bragi og Bergþór sögð­ust hafa sínar eigin Metoo-sögur af Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, og sögðu hana hafa áreitt sig hvorn í sínu til­vik­inu.

Albertína sagði í sam­tali við Stundina að Gunnar Bragi hefði hringt í sig og beðið hana afsök­unar og sagt að ekk­ert af því sem fram hefði komið í sam­tal­inu hefði verið satt. Hún seg­ist jafn­framt vera kjafstopp yfir orðum Gunnars Braga og Bergþórs um meintar sögur þeirra af henni. Hún segir það mjög óþægi­legt að láta ljúga svona sögum upp á sig.

„Hann gaf mér leyfi til að segja ykkur að hann væri til­bú­inn til að bera þetta til baka og bað mig afsök­unar,“ segir Albertína í sam­tali við Stundina. „Það er hrika­legt að vera ásak­aður um eitt­hvað sem gerð­ist ekki.“

Aðspurð um við­burð­ina sem menn­irnir tala um seg­ist hún ekki kann­ast við atvikin. „Ég er eig­in­lega bara kjaft­stopp. Mér er rosa­lega illt í hjart­anu yfir öllum þessum sam­tölum sem þeir áttu þarna. Ég er hrein­lega orð­laus. Þetta er bara ekki rétt.“

Dregur fram hvernig karlar í valdastöðu tala um konur

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, telur að niðr­andi ummæli þing­manna gagn­vart stjórn­mála­konum, sem komu fram í upp­tökum á sam­tölum þing­manna á Klaustur Bar, dragi fram hvernig karlar í valda­stöðu tala um konur.

„Það sem mér finnst vera alvar­legt í þessu er að þarna eru menn í valda­stöðum að tala mjög niðr­andi um konur, upp­nefna þær og nota upp­nefni á kyn­færum til þess að taka konur niður í umræð­unni, og þetta er bara eitt­hvað sem á ekki að eiga sér stað og alls ekki á milli kjör­inna full­trúa,“ segir Oddný í við­tali við Stundina í dag.

Sendir skilaboð til kvenna í heild

Oddný seg­ist per­sónu­lega vera slétt sama um ummæli Gunnari Braga um sig sjálfa en segir að þetta séu skila­boð til kvenna í heild og stað­fest­ing á því að slíkt við­horf gagn­vart konum í stjórn­málum sé enn í fullu gildi og segir konur hafa í gegnum tíð­ina reynt að benda á þessa menn­ingu. Oddný minn­ist einnig á að meðal þess­ara þing­manna séu ráð­herrar sem hafa talað gegn þess­ari menn­ingu en segir að þeim hafi greini­lega ekki tek­ist að vinna í sjálfum sér hvað þetta varðar. „Og að þetta komi frá þing­mönnum og fyrr­ver­andi ráð­herrum, eftir að við erum búin að eiga allar þessar um ræður um #metoo og heforshe,“ segir hún.

Hún segir þetta muni ekki auka virð­ingu almenn­ings á Alþingi og geti jafn­framt haft vond áhrif á sam­vinnu meðal þing­manna. Hún telur að til að breyta þessu leið­inda­máli í eitt­hvað gott þurfi að ræða þessa menn­ingu á Alþingi og upp­ræta hana fyrir fullt og allt.

Sér ekki fyrir sér að þessir menn sitji áfram á Alþingi Íslendinga

Í upp­tök­unum heyr­ast þing­menn­irnir tala illa um Ingu Sæland, þing­mann Flokks fólks­ins, Oddnýju Harð­ar­dóttur og fleiri stjórn­mála­konur. Þá má einnig heyra þing­menn­ina gera grín að Freyju Har­alds­dóttur.

Oddný segir að með þessum ummælum sínum gagn­vart Freyju og Albertínu hafi þing­menn­irnir farið yfir „lín­una stóru“. Hún sjái ekki að þeim sé lengur stætt á Alþingi Íslend­inga, „Hvernig þeir ræða um Albertínu og Freyju Haralds er svo svaka­legt að ég get ekki séð fyrir mér að þessir menn sitji áfram á Alþingi Íslend­inga,“ segir Oddný í sam­tali við Stundina.

Þær Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem allar voru til umræðu á upp­tök­unum sendu í morgun frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þær for­dæma ummælin sem látin voru falla á Klaustri bar og segj­ast líta þau alvar­legum augum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár