Joe Biden talinn líklegur til að leita í smiðju Obama

Fyrr­verandi vara­forseti Banda­ríkjanna í forsetatíð Baracks Obama hefur komið framboði sínu formlega af stað.

Joe Biden hefur formlega sett af stað kosninga­baráttu sína fyrir forsetaskosningarnar í nóvember á næsta ári.

Kosninga­stjóri hans verður Symone Sanders, fyrr­verandi fjölmiðla­fulltrúi í kosninga­baráttu Bernie Sanders, árið 2016.

Samkvæmt skrifum Axios, sem skrifar mikið um bandarísk stjórnmál og það sem er í gangi bak við tjöldin, þá ætlar Biden sér leita í stefnumál Baracks Obama í baráttu sinni, en hann var vara­forseti í tíð hans.

Biden sagði í ávarpi sem hann hélt, þegar hann lýsti því yfir að hann ætlaði sér að bjóða sig fram til forseta, að tími væri kominn til þess að vera með siðferðis­þrekið í lagi Hvíta húsinu, og skaut þar á Bandaríkja­forseta, Donald Trump, sem hefur átt í vök að verjast í þinginu að undan­förnu, meðal annars vegna beiðna um að hann leggja spilin á borðið hvað skattamál hans varðar og fjármál yfirleitt.

Biden virðist ætla að reyna að ná til fólksins sem Sanders var duglegur að ná til í sinni kröftugu baráttu árið 2016.

Svo fór að lokum að Hillary Clinton hafði betur gegn honum, þegar kom að útnefningu Demókrata á forseta­fram­bjóðanda, en Sanders er ekki að baki dottinn núna, og virðist stað­ráðinn í að læra af því sem aflaga fór síðast.

Biden er 76 ára gamall, fæddur 20. nóvember 1942, og verður því tæplega 78 ára gamall þegar kosið verður á næsta ári.

Hann hefur áratuga reynslu af pólitísku starfi innan Demókrata­flokksins, og hefur á sér orð sem góður samninga­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár