Kostnaður við veiruskimanir að minnsta kosti 9,2 milljarðar króna

Samkvæmt skriflegu svari heilbrigðis­ráðherra við fyrir­spurn þingmanns Miðflokksins var að minnsta kosti 9,2 milljörðum króna varið í að skima landsmenn og gesti fyrir kórónu­veirunni með PCR-prófum eða hrað­prófum á árunum 2020 og 2021.

Í dag er ekki lengur hægt að fara í PCR-próf nema í undantekningartilfellum, en hraðpróf eru notuð til að staðfesta smit með opinberum hætti.
Í dag er ekki lengur hægt að fara í PCR-próf nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum, en hrað­próf eru notuð til að stað­festa smit með opin­berum hætti. Mynd: Bára Huld Beck

Heildar­kostnaður ríkis­sjóðs vegna skimana gagnvart COVID-19 frá febrúar 2020 og til ársloka 2021 nam rúmum 9,2 milljörðum króna, samkvæmt svörum heilbrigðis­stofnana landsins, sem sagt er frá í svari heilbrigðis­ráðherra við skriflegri fyrir­spurn Bergþórs Ólasonar þingmanns Miðflokksins.

Ekki er ljóst hvort þessi kostnaður er alveg tæmandi, þar sem heilbrigðis­ráðuneytinu bárust ekki svör frá Heilbrigðis­stofnun Suður­lands né Heilbrigðis­stofnun Suður­lands með kostnaðar­tölum um skimanir á vegum þessara stofnana.

Yfir tveir milljarðar bara í desember 2021

Ekki þarf að koma á óvart að kostnaður heilbrigðis­stofnana vegna skimana fyrir kórónu­veirunni fór eftir því sem leið á árið 2021 vaxandi og var mestur í desember­mánuði síðastliðnum.

Þá fóru 794 milljónir króna í PCR-próf, hraðpróf voru framkvæmd fyrir 617 milljónir króna, auk þess sem 650 milljónir króna fóru í landamæra­skimanir. Við þetta bætast svo 43 milljónir sem fóru í sóttkvíar­skimanir og 25 milljónir króna sem fóru í skimanir vegna ferðamanna­vottorða. Alls eru þetta rúmir 2,1 milljarðar króna sem fóru í að skima með einhverjum hætti fyrir veirunni einungis í desember­mánuði.

PCR-prófin vógu þyngst

Heildar­útgjöld vegna PCR-prófa árin 2020 og 2021 voru alls 7,27 milljarðar króna, samkvæmt því sem fram kemur í svari ráðuneytisins. Á móti þeirri upphæð koma þó sértekjur sem alls námu rúmum 1,9 milljörðum króna á sama tímabili og var heildar­kostnaður við PCR-prófin því 5,36 milljarðar króna. PCR-prófin kostuðu mest 812 milljónir króna í einum mánuði í ágúst í fyrra.

Heildar­kostnaður við hraðpróf nam rúmum milljarði og tæpir 2,3 milljarðar voru lagðir út vegna landamæra­skimana, á árunum 2020 og 2021. Þá fóru 330 milljónir króna í skimanir vegna ferðamanna­vottorða, samkvæmt saman­tektinni frá heilbrigðis­ráðuneytinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár