Vill að dýravelferðarfulltrúi verði í áhöfn hvalskipa sem taki veiðar upp á myndband

Matvæla­ráðuneytið hefur lagt til breytingu á reglugerð um hval­veiðar sem fela í sér að skip­stjórum hval­veiðiskipa verði gert að tilnefna dýra­velferðar­fulltrúa sem beri ábyrgð á því að rétt verði staðið að velferð hvaða við veiðar.

Svandís Svavars­dóttir matvæla­ráðherra vill að reglugerð um hval­veiðar verði breytt þannig að skip­stjórum hval­veiðiskipa verði gert að tilnefna dýra­velferðar­fulltrúa úr áhöfn sem beri ábyrgð á því að rétt verði staðið að velferð hvala við veiðar. Dýra­velferðar­fulltrúi má ekki vera sá sami og beitir skutli við veiðar á hval.

Umræddir fulltrúar eiga að sækja námskeið sem skal vera samþykkt af Matvæla­stofnun. Þeir eiga enn fremur að safna gögnum um veiðarnar og mynda þær á myndband. Öllum gögnum og myndefni sem tekið er upp á að afhenda eftirlits­dýralækni.

Þetta kemur fram í drögum að reglugerð um breytingar á gildandi reglugerð um hval­veiðar sem birt hefur verið í samráðs­gátt stjórn­valda. Umsagnar­frestur um reglu­gerðina er tvær vikur og stendur til 21. júlí.

Umfangsmikið fjárfestingafélag sem stundar líka hvalveiðar

Mikill styr hefur staðið að undan­förnu um hval­veiðar, enda hófust þær að nýju hérlendis eftir fjögurra ára hlé. Eitt fyrirtæki veiðir hval hérlendis, Hvalur hf. sem stýrt er af Kristjáni Loftssyni, stærsta eiganda þess. Hvalur hf. er ekki bara hvalveiði­fyrirtæki heldur líka umsvifa­mikið fjár­festinga­félag. Hvalur hagnaðist um 3,5 milljarða króna á síðasta rekstrarári sínu og eigið fé þess var 25,9 milljarðar króna í lok september 2021, við lok þess rekstrarárs. Hvalur greiddi eigendum sínum 1,5 milljarð króna í arð í fyrra. Á meðal félaga sem Hvalur á í eru hlutdeildar­félögin Hampiðjan og Íslenska gáma­félagið. Þá átti félagið til að mynda 2,22 prósent hlut í Arion banka sem metinn var á 6,5 milljarða króna í september í fyrra og hlut í Alvotech sem var þá metinn á hálfan milljarð króna.

Því má segja að hval­veiðarnar sjálfar séu auka­búgrein hjá Hval. Þær fela í sér rekstur og eignar­hald á nokkrum hval­veiðiskipum og vinnslustöð í Hvalfirði. Afurðirnar eru seldar að uppistöðu til Japan. Í lok september 2021 átti félagið birgðir af frystum hvala­afurðum sem metnar voru á 338 milljónir króna. Auk þess átti félagið birgðir af lýsi og mjöli sem voru ekki metnar til verðs í reikningnum.

Hval­veiði­kvótinn í ár er 190 lang­reyðar. Kristján Loftsson sagði við RÚV í byrjun viku að Hvalur hf. muni ekki veiða svo mikið á yfir­standandi vertíð og kvótinn verður þar af leiðandi ekki full­nýttur. Hann sagði enn fremur að vertíðin ætti að skila um 3,5 milljörðum króna í tekjur og að áfram sem áður yrði mest selt út til Japan.

Andstæðingar hvalveiða hafa látið vel í sér heyra vegna þess að veiðarnar hafa verið hafnar að nýju og sömu sögu er að segja af forvígis­mönnum í ferða­þjónustu, sem telja hval­veiðarnar hafa neikvæð áhrif á ímynd Íslands.

Kristján gaf lítið fyrir þetta í áður­nefndu viðtali. ​​„Þetta er bara bissnes maður. Þeir eru auðvitað á móti. Þetta er anti-everything lið, þeir eru á móti öllu. Það er ekkert skrítið að þeir séu á móti hval­veiðum. Þeir eru á móti virkjunum og just name it, eins og sagt er. Þetta er eiginlega dauð umræða í dag.“

Tveir af hverjum þremur landsmönnum telja veiðarnar skapa orðspor

Sama dag sagði Lilja Alfreðs­dóttir, ráðherra ferðamála, að hún sæi ekki að hval­veiðar valdi því að færri ferðamenn sæki hingað en ella. Hún væri hlynnt hval­veiðum eins og staðan væri nú.

Forsvars­menn ferða­þjónustu­fyrirtækja hafa sagt að engin gögn styðji þessi ummæli ráðherrans. Rannveig Grétars­dóttir, framkvæmda­stjóri og eigandi hvala­skoðunar­fyrir­tækisins Eldingar, sagði við RÚV að það væru vonbrigði að Lilja stæði ekki með ferða­þjónustunni í þessu máli. „„Mig grunar að með þessu og öðru að Lilja hafi fengið ráðuneyti sem hún hefur hvorki vit né áhuga á, mér finnst leiðinlegt að segja það, og leiðinlegt að hún skuli ekki standa með okkur.“

Í sama streng tók Bjarnheiður Halls­dóttir, formaður Samtaka ferða­þjónustunnar, í samtali við Túrista. Afstaða ráðherrans væri illskiljanleg þar sem áralöng reynsla hefði sýnt að hval­veiðar skaði utan­ríkisstefnu og utan­ríkis­viðskipti Íslands. Miklum hagsmunum væri því stefnt í hættu vegna veiða, sem hafi sáralítið, ef eitthvert vægi, í þjóðar­búskapnum.

Maskína gerði nýverið könnun fyrir Náttúru­verndar­samtök Íslands þar sem afstaða lands­manna gagnvart hval­veiðum var mæld. Niður­staða þeirrar könnunar var sú að 64,3 prósent aðspurðra töldu að hval­veiðar sköðuðu orðspor ÍSlands, 26,9 prósent töldu þær ekki hafa nein áhrif og 6,1 prósent töldu að veiðarnar hefðu góð áhrif á orðspor Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár