„Allt tekur enda“

Stefan Löfven tilkynnti óvænt í sumarávarpi sínu á sunnudag að hann hyggist hætta sem forsætis­ráðherra og formaður Sósíal­demókrata­flokksins í nóvember. Fjármála­ráðherrann Magdalena Andersson er sögð líklegasti eftir­maður hans.

Stefan Löfven forsætisráðherra Svíþjóðar.
Stefan Löfven for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar. Mynd: EPA

Þessi tilkynning hans hefur komið mörgum á óvart, en Löfven segist vilja veita eftir­manni sínum á leiðtoga­stóli Sósíal­demókrata, hver sem það nú verið, nægan tíma til undir­búnings og góðar aðstæður til að taka við keflinu.

Nýr formaður verður kjörinn á lands­þingi flokksins sem á að fara fram dagana 3.-7. nóvember. Löfven hefur leitt flokkinn í næstum tíu ár og verið forsætis­ráðherra Svíþjóðar frá því árið 2014.

„Hér er ég með smá fréttir,“ sagði hann í ávarpinu, „í kosninga­baráttunni á næsta ári mun einhver annar en ég mun leiða Sósíal­demókrata.“ „Allt tekur enda,“ sagði Löfven, sem er 64 ára gamall.

Hann sagði frétta­mönnum eftir ávarpið að hann vildi ekki fara inn í kosninga­baráttu með flokkinn á næsta ári þar sem fjöl­miðlar væru uppteknir af því að krefja hann og aðra flokks­menn svara um hversu lengi hann ætlaði að vera flokks­formaður. Betra væri að stíga til hliðar núna og veita framtíðar­formanni bestu mögulegu aðstæður til þess að leiða flokkinn áfram.

Fjármálaráðherrann sögð „krónprinsessa“ flokksins

Í dag hafa sænskir stjórnmála­skýrendur velt því upp hver sé líklegastur til þess að taka við keflinu af Löfven og þar er einu nafni varpað oftar fram en öðrum.

Magdalena Andersson fjármála­ráðherra í stjórn Löfvens er sögð líklegasti arftaki hans og jafnvel kölluð „krónprinsessa“ sænskra jafnaðar­manna. Hún hefur verið fjármála­ráðherra allt frá árinu 2014 og var þar áður talsmaður Sósíal­demókrata í efnahags­málum.

Ef svo færi að hún yrði kjörin formaður á lands­þingi Sósíal­demókrata eru allar líkur á að hún yrði fyrsta konan til þess að gegna embætti forsætis­ráðherra í Svíþjóð, sem hefur ólíkt öllum hinum Norður­löndunum aldrei valið sér konu til þess að leiða ríkis­stjórn.

En hver eftir­maður Löfven verður ræðst ekki fyrr en í nóvember. Í kjölfarið þarf svo að gera og fá samþykkta tillögu um nýjan forsætis­ráðherra í sænska þinginu.

Sá eða sú mun svo leiða sænsku stjórnina fram að næstu kosningum, sem fara fram 11. september árið 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár