Mútugreiðslur Airbus leiða til mörg hundruð milljarða sektar

Stærsti flugvéla­fram­leiðandi heims hefur samið sig frá sakamála­rannsókn vegna mútu­greiðslna.

Stærsti flugvéla­fram­leiðandi heims, Airbus, hefur sætt rannsókn undan­farin ár vegna mútu­greiðslna félagsins til milliliða, sem aðstoðuðu félagið við að klára viðskipta­samninga um sölu á flugvélum.

Nú hafa stjórn­endur Airbus samið um að félagið greiði sektar­greiðslur sem nema tæplega fjórum milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 500 milljörðum króna.

Þetta er hæsta sekt í sögunni, þar sem mútur koma við sögu.

Ef dómstólar staðfesta samning um að félagið greiði fyrr­nefnda upphæð í sektar­greiðslu, þá munu stjórn­endur félagsins - sem báru ábyrgð á mútu­greiðslunum - ekki þurfa að sæta sakamála­rannsókn eða ákærum.

Samkvæmt umfjöllun Reuters hefur Airbus verið til rann­sóknar hjá yfir­völdum í Frakk­landi, Bretlandi og Banda­ríkjunum í meira en fjögur ár, en viðskiptin - þar sem mútu­greiðslurnar áttu sér stað - teygja sig aftur um áratug.

Airbus tók í fyrra fram úr Boeing, stærsta útflutnings­fyrirtæki Banda­ríkjanna, sem stærsti flugvéla­fram­leiðandi heimsins, en félagið er með höfuð­stöðvar í Frakk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár