Öryggisráðið samþykkir 30 daga vopnahlé í Sýrlandi

Neyðar­ástand er víða í Sýrlandi eftir blóðuga borgara­styrjöld árum saman.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld 30 daga vopnahlé í Sýrlandi. Neyðar­ástand er víða í landinu eftir blóðuga borgara­styrjöld árum saman, en talið er að meira en helmingur tæplega 20 milljóna, sem búa í landinu, séu á flótta þessi misserin, ýmist innan landamæra eða utan.

Tillagan um vopnahléð var samþykkt samhljóða, en atkvæða­greiðslunni var í tvígang frestað. Kúveit og Svíþjóð stóðu að tillög­unni.

Loft­árásir hafa banað meira en 500 almennum borgurum á undan­förnum vikum, en hörðustu átökin hafa verið í Ghouta héraði, í grennd við Damaskus.

Vopnahléð verður nýtt til að koma hjálpar­gögnum til bágstaddra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár