Hagnaður Bláa Lónsins jókst um þriðjung

Rekstur Bláa Lónsins gengur vel, en rekstrar­tekjur félagsins jukust vel umfram gjöld á síðasta ári.

Bláa Lónið
Bláa Lónið Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bláa Lónið birti ársskýrslu sína í dag, en samkvæmt henni nam hagnaður fyrir­tækisins eftir skatta 31 milljón evra árið 2017. Mestur var munurinn í rekstrar­tekjum, en þau hækkuðu langt umfram rekstrar­gjöld.

Samkvæmt ársreikningi Bláa Lónsins voru eignir fyrir­tækisins metnar á 138,7 milljónir evra, eða 17, 2 milljarða íslenskra króna sé miðað við gengi gjald­miðlanna við síðustu árslok. Bókfært virði félagsins stendur hins vegar í 5.259 evrum, eða tæpum 655 milljónum íslenskra króna.

Tekjur af rekstri félagsins árið 2017 nam 12,8 milljörðum króna, saman­borið við 7,1 milljarði á árinu áður. Þá var hreinn hagnaður fyrir­tækisins um 3,86 milljarður, sem nemur um þriðjungs­hækkun frá 2016. Tæplega þriðja hver króna sem kom í hendur félagsins árið 2017 var því hreinn hagnaður.

Kjarninn fjallaði um mögulega sölu HS Orku á 30 prósenta hlut sinn í Bláa lóninu í fyrra. Bandaríski fjár­festinga­sjóðurinn Blackstone bauð rúma 11 milljarða í hlutinn, en fulltrúar íslenskra lífeyris­sjóða, sem eiga þriðjungs­hlut í orku­fyrirtækinu beittu neitunar­valdi sínu og höfnuðu tilboðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár