Höfnuðu ellefu milljarða tilboði frá bandarískum sjóði í hlut í Bláa lóninu

HS Orka mun ekki selja 30 prósent hlut sinn í Bláa lóninu. Lífeyris­sjóðir í eigenda­hópnum lögðust gegn því. Hæsta tilboðið sem barst var upp á rúma 11 milljarða króna.

HS Orka mun ekki selja 30 prósent hlut sinn í Bláa lóninu. Fulltrúar íslenskra lífeyris­sjóði, sem eiga 33,4 prósent hlut í orku­fyrirtækinu í gegnum félagið Jarðvarma, beittu í síðustu viku neitunar­valdi sínu og höfnuðu fyrir­liggjandi tilboði frá sjóði í stýringu Blackstone, eins stærsta fjár­festingar­sjóðs heims, í hlutinn. Tilboðið var upp á rúma 11 milljarða króna. Frá þessu er greint í Frétta­blaðinu í dag.

Miðað við tilboðið er heildar­markaðs­virði Bláa lónsins um 37 milljarðar króna.

Auglýstur til sölu í maí

HS Orka sendi frá sér tilkynningu um miðjan maí síðastliðinn þar sem fram kom að það ætlaði að kanna mögu­lega sölu á hlut sínum í Bláa lón­inu, í heild eða að hluta. Stöplar Advisory sáu um að ræða við hugs­an­lega fjár­festa og stýra ferl­inu fyrir hönd HS Orku, en í til­kynn­ing­unni kom fram að þessi ákvörðun væri tekin í kjöl­farið á sýndum áhuga á hlutnum í Bláa lón­in­u.

„HS Orka hefur verið hlut­hafi í Bláa Lón­inu frá upp­hafi og hefur stolt stutt við vöxt þess. Bláa Lónið er nú með umfangs­mik­inn rekst­ur, dafnar og er enn í veru­legum vexti. Þrátt fyrir að um ein­staka eign sé að ræða og þá fellur starf­semi Bláa Lóns­ins ekki að kjarna­starf­semi HS Orku sem er fram­leiðsla og sala end­ur­nýj­an­legrar orku. Því ákváðum við að hefja þetta ferli,“ var haft eftir Ásgeiri Mar­geirs­syni, for­stjóra HS Orku, í frétta­til­kynn­ing­unn­i.

Meirihlutaeigendur ósáttir með að tilboði væri hafnað

Magma Energy, dótt­ur­fé­lag Alterra, á 66,6 pró­sent hlut í HS Orku, sem síðan á 30 pró­sent hlut í Bláa lón­inu. Ross Beaty, for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Alterra orku­fyr­ir­tæk­is­ins sem skráð er á markað í Kana­da, sagði á heimasíðu þess í maí síðastliðnum að eftir mik­inn vöxt og árang­urs­mikla upp­bygg­ingu Bláa lóns­ins, þá sé það mat HS Orku að nú væri góður tíma­punktur til að selja hlut­inn í Bláa lón­inu.

Í Frétta­blaðinu er greint frá því að mikillar óánægju gæti hjá stjórn­endum Alterra með ákvörðun lífeyris­sjóðanna, sem eiga minni­hluta í HS Orku, um að hafna tilboði Blackstone. Tilboð bandaríska fjár­festingar­sjóðsins hafi verið nokkuð yfir væntingum stjórnar HS Orku þegar ákveðið var setja hlut félagsins í Bláa lóninu í söluferli. Lífeyris­sjóðirnir gátu komið í veg fyrir söluna þar sem að í hluthafa­samkomulagi HS Orku er tiltekið að allar meiriháttar ákvarðanir fyrir­tækisins, eins og um sölu á hlutnum í Bláa lóninu, þurfi samþykki stjórnar Jarðvarma.

Hagn­aður HS Orku í fyrra nam 2,7 millj­örðum króna og heild­ar­tekjur 7,1 millj­arði króna. Heild­ar­eignir félags­ins voru bók­færðar á tæp­lega 50 millj­arða króna. Óhætt er því að segja að rekstur félags­ins sé í góðu horfi þessa dag­ana.

Hlut­ur­inn í Bláa lón­inu var met­inn á 1,8 millj­arða króna í árs­reikn­ingi sem þýðir að félagið var metið á um sex millj­arða króna samkvæmt þeim mæli­kvarða. Ljóst er, miðað við tilboð Blackstone, að virði Bláa lónsins er verulega vanmetið í bókum HS Orku.

Ein­ungis arð­greiðslan til hlut­hafa Bláa lónsins nam 1,4 millj­arði, vegna árs­ins 2015. Hagn­aður Bláa lóns­ins á því ári nam 2,2 millj­örðum króna eftir skatta. Á árinu 2014 voru heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins 6,1 millj­arður en hagn­að­ur­inn var 1,8 millj­arðar króna, eftir skatta. Tæp­lega þriðja hver króna sem kom í kass­ann var því hreinn hagn­að­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár