120 þúsund fórust við skurðgröft fyrir 2.500 árum — eða hvað?

Súez-skurð­ur­inn var í sviðs­ljós­inu eftir að risa­skipið Ever Given strand­aði þar. Þessi merki­legi skurður var tek­inn í notkun 1869 en í mörg þús­und ár höfðu menn leit­ast við að tengja Mið­jarð­ar­haf og Rauða­hafið með því að grafa skurð með handafli frá Níl­ar­fljóti um Bitru­vötn og svo til sjávar við Súez-flóa.

Neku 2. var kon­ungur Egifta­lands um 600 fyrir upp­haf tíma­tals. Gríski sagna­rit­ar­inn Heródótus skrif­aði um 150 árum síðar að hann hefði verið kom­inn mjög áleiðis með að grafa skurð frá Níl yfir í Rauða­hafið um hin svo­nefndu Bitru­vötn. Það hefði tekið fjóra daga að sigla eftir skurð­inum öllum og svo breiður hefði hann verið að tvær galeiður af fullri stærð hefðu getað siglt þar hlið við hlið.

Neku virð­ist þó ekki hafa látið klára skurð­inn því spá­maður kom fram sem upp­lýsti að allt erf­iði kóngs myndi á end­anum bara koma „villi­mönnum“ að gagni – það er að segja útlend­ingum.

Þá höfðu, að sögn Heródótusar, 120 þús­und manns látið lífið við skurð­gröft­inn, en lík­lega verður að telja það nokkrar ýkjur. Þó verður að reikna með að mjög margir kunni að hafa farist. Vinnan var eflaust hræði­lega erfið, enda bara grafið með skóflum og öðrum hand­verk­færum.

Heródótus segir líka …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár