Umræðufundur um rússneskt samhengi Samherjamálsins

Á morgun fer fram umræðu­fundur um bar­átt­una gegn alþjóð­legu pen­inga­þvætti á Sólon. Aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Rúss­lands­deildar Transparency International mun halda fyr­ir­lestur um helstu áskor­anir pen­inga­þvættis og leiðir til að rann­saka það.

Ilia Shuma­nov, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Rúss­lands­deildar Tran­sparency International
Ilia Shuma­nov, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Rúss­lands­deildar Tran­sparency International Mynd: Aðsend mynd

Á morgun, þann 22. nóv­em­ber, fer fram umræðu­fundur á vegum Gagnsæis, Kjarnans og Blaða­manna­fé­lags Íslands um bar­átt­una gegn alþjóð­legu pen­inga­þvætti. Á fund­inum mun Ilia Shumanov, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Rúss­lands­deildar Transparency International, halda fyr­ir­lestur um áskor­anir pen­inga­þvættis og leiðir til að rann­saka það. Að loknum fyr­ir­lestri verða pall­borðsum­ræður þar sem meðal ann­ars Sam­herj­a­málið verður til umræðu.

Í fyr­ir­lestri sínum mun Ilia meðal ann­ars fjalla um þær teg­undir pen­inga­þvættis sem spruttu upp í kjöl­far hruns Sov­ét­ríkj­anna og frá fyrri lýð­veldum þess og hvernig aðferðir og leiðir hafa verið í stöðugri breyt­ingu og þróun á síð­ustu árum.

Hann mun jafn­framt fjalla um hvernig alþjóð­legir hringir eru oft­ast einu skrefi á undan yfir­völdum og hvert hlut­verk milli­liða sé í pen­inga­þvætti. Auk þess mun hann ræða „Blockchain“ og alþjóð­lega bar­áttu gegn pen­inga­þvætti.

Að loknum fyr­ir­lestri Ilia verða pall­borðsum­ræður með þátt­töku Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, og Aðal­steins Kjart­ans­sonar, frétta­manni á RÚV, þar sem Sam­herj­a­málið og fleiri íslensk dæmi verða til umræðu.

Fund­ur­inn fer fram á efri hæð Sólon frá klukkan 16 til 18 og eru allir vel­komnir á meðan hús­rúm leyfir. Vert er að taka fram að fyr­ir­lest­ur­inn verður hald­inn á ensku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár