Fyrrverandi bankastjóri Arion banka vill í stjórn Skeljungs

Stjórnar­formaður Skeljungs mun ekki halda áfram störfum fyrir félagið en vara­formaður stjórn­ar­innar, Jón Ásgeir Jóhannesson, sækist eftir endur­kjöri. Hann er fulltrúi félaga sem eiga alls 11 prósent í Skeljungi.

Höskuldur H. Ólafsson var bankastjóri Arion banka í níu ár.
Hösk­uldur H. Ólafsson var banka­stjóri Arion banka í níu ár. Mynd: Kjarninn.

Höskuldur H. Ólafsson, fyrr­verandi banka­stjóri Arion banka, hefur boðið sig fram til setu í stjórn Skeljungs. Alls sækjast átta manns eftir fimm sætum í stjórninni og tilnefningar­nefnd félagsins hefur lagt til lista yfir þá sem hún telur að eigi að skipa. Höskuldur er ekki þar á meðal.

Þetta kemur fram í skýrslu tilnefningar­nefndar Skeljungs sem birt var í gærkvöldi. Kosið verður um nýja stjórn á aðalfundi félagsins sem fer fram 5. mars.

Tilkynnt var um það í apríl í fyrra að Höskuldur hefði sagt starfi sínu hjá Arion banka lausu. Starfslok hans kostuðu Arion banka 150 milljónir króna, en sú greiðsla samanstóð ann­ars vegar af upp­sagn­ar­fresti og hins vegar samn­ingi um starfs­lok.

Ekki mælt með Höskuldi

Þrír núverandi stjórnar­menn í Skeljungi, þau Jón Ásgeir Jóhannesson, Birna Ósk Einars­dóttir og Þórarinn Arnar Sævarsson, gefa áfram kost á sér til stjórnar­setu. Jón Ásgeir, sem er vara­formaður stjórnarinnar, er fulltrúi 365 ehf. og tengdra félaga þar, en þau eru stærstu eigendur Skeljungs með 11 prósent eignar­hlut. Skráður eigandi félaganna er Ingibjörg Pálma­dóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs.

Þórarinn er einnig stór hluthafi í Skeljungi í gegnum ýmis félög. Birna Ósk er hins vegar óháður stjórnar­maður.

Tveir stjórnar­menn, stjórnar­formaðurinn Jens Meinhard Rasmussen og Ata Maria Bærentsen, gefa ekki kost á sér til endur­kjörs. Tilnefninga­nefnd Skeljungs mælir með að Dagný Halldórs­dóttir, sem setið hefur í stjórnum ýmissa fyrir­tækja í gegnum tíðina, og Elín Jóns­dóttir, stjórnar­formaður Borgunar, taki sæti þeirra. Auk Höskuldar hlutu Jón Gunnar Borgþórsson, sjálfstætt starfandi stjórn­enda- og rekstrar­ráðgjafi, og Már Wolfgang Mixa, lektor í fjármálum við Háskólann í Reykjavík, ekki náð fyrir augum tilnefninga­nefndarinnar. Í skýrslu hennar er þó tiltekið að Höskuldur sé vel hæfur til stjórnar­setu, líkt og þeir fimm sem tilnefndir eru. Hann búi til að mynda yfir mikilli reynslu af því að stýra stórum fyrir­tækjum sem skráð eru á markað og af setu í stjórnum. Þar sé hins vega rum þekkingu og reynslu sem sé einnig að finna á meðal þeirra sem tilnefndir eru til stjornarsetu.

Tilnefningar­nefndin áskilur sér þó rétt til þess að endur­skoða fyrr­nefnda tillögu sína. Slík endur­skoðun getur legið fyrir þar til tíu dögum fyrir aðalfund.

Ný stjórn mun svo kjósa næsta stjórnar­formann Skeljungs þegar hún kemur saman eftir aðalfund.

Leggja til 600 milljóna arðgreiðslu

Hagnaður Skeljungs á síðasta ári var 1,4 milljarðar króna, sem er nokkuð minni en tæplega 1,6 milljarða króna hagnaður ársins 2018. Framlegð hækkaði hins vegar um 11,4 prósent og EBITDA-hagnaður (hagnaður fyrir afskriftir, fjármagns­kostnað og skatta) hækkaði um 4,9 prósent.

Arðsemi eigin fjár félagsins var 15 prósent í fyrra og lækkaði úr 19 prósentum árið áður. Eigið fé Skeljungs í lok árs var 9,8 milljarðar króna og eiginfjár­hlutfallið 40,2 prósent. Alls keypti félagið eigin bréf fyrir 550 milljónir króna á árinu 2019 og skilaði því fé til hluthafa. Í ár er gert ráð fyrir 600 milljón króna arðgreiðslu til þeirra vegna frammistöðu síðasta árs og afskráningu eigin bréfa.

Ýmsar sviptingar voru hjá Skeljungi í fyrra. Jón Ásgeir sett­ist í stjórn Skelj­ungs í fyrravor í krafti þess að 365 mið­l­­ar höfðu keypt upp hluti í félag­inu.

Í lok sumar var svo Árni Pétur Jónsson ráðinn forstjóri félagsins. Árni Pétur var for­­stjóri Teymis á sínum tíma auk þess sem hann hafði starfað sem fram­­kvæmda­­stjóri hjá Olís og Högum. Síðast var hann for­­stjóri og einn aðal­eiganda Basko.

Árni Pétur hefur áður unnið náið með, og fyr­ir, félög tengd Jóni Ásgeiri. Jón Ásgeir var til að mynda for­­stjóri og síðar stjórn­­­ar­­for­­maður Baugs Group, sem átti Haga og var stærsti hlut­haf­inn í Teymi þegar Árni Pétur stýrði því fyr­ir­tæki.

Skeljungur keypti í fyrra­haust allt hlutafé í Basko, sem á fimm 10-11 versl­anir og rekur fjórtán versl­anir undir merkjum Kvikk sem reknar eru við bens­ín­stöðvar Skelj­ungs. Þá á Basko veit­inga­stað­inn Bad Boys Burgers & Grill, versl­un­ina Kvos­ina, auk mat­vöru­versl­ana í Reykja­nesbæ og á Akur­eyri. Alls 50 pró­sent eign­ar­hlutur Basko í Eldum Rétt var und­an­skil­inn frá kaup­un­um. Kaup­verðið var 30 milljónir króna auk þess sem yfir­teknar voru vaxta­ber­andi skuldir upp á 300 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár