Jón Ásgeir snýr aftur

Jón Ásgeir Jóhann­es­son var and­lit íslensku útrás­ar­innar. Hann hefur alla tíð verið feyki­lega umdeildur og yfir­völd hafa meira og minna verið að rann­saka hann vegna meintra efna­hags­brota þorra þess­arar aldar.

Jón Ásgeir Jóhann­es­son, einn þekkt­asti og umdeild­asti kaup­sýslu­maður lands­ins, snéri aftur á form­legan vett­vang íslensks við­skipta­lífs í síð­ustu viku með fram­boði til stjórnar Haga.

Þótt hann hafi ekki haft erindi sem erf­iði þá mark­aði fram­boð hans tíma­mót. Jón Ásgeir, sem hefur verið til rann­sóknar vegna meintra efna­hags­brota meira og minna í 16 ár, og þegar hlotið tvo dóma í Hæsta­rétti fyrir slík vegna svo­kall­aðra Baugs­mála, hefur lítið sést í opin­berum skipu­ritum þeirra fyr­ir­tækja sem hann og eig­in­kona hans, fjár­festir­inn Ingi­björg Stefanía Pálma­dóttir, hafa átt og stjórnað frá hruni.

Eftir að Hæsti­réttur ákvað að taka ekki fyrir áfrýjun á Aurum-mál­inu svo­kall­aða, þar sem Jón Ásgeir var sýkn­aður af ákæru um hlut­deild í umboðs­svikum, í des­em­ber síð­ast­liðnum lá fyrir að hann myndi ekki hljóta neinn dóm vegna hrun­mála. Engin frek­ari mál sem snúa að Jóni Ásgeiri, sem var aðal­eig­andi Glitnis og fjár­fest­inga­veld­is­ins Baugs, eru til rann­sóknar.

Sá tími sem hann mátti ekki sitja í stjórnum félaga vegna fyrri dóma í Baugs­mál­inu svo­kall­aða er lið­inn fyrir nokkrum árum. Samt hefur Jón Ásgeir haldið sig opin­ber­lega til hlés, og stýrt úr aft­ur­sæt­inu. Þar til nú.

Stofnaði Bónus sem varð að Högum

Hagar, félagið sem Jón Ásgeir sæk­ist nú eftir áhrifum í, er ekki bara eitt­hvað fyr­ir­tæki fyrir hann og fjöl­skyldu hans. Það var krúnu­djá­snið í eign­ar­safni Baugs, fjár­fest­inga­fé­lagi þeirra.

Upphaf Haga má rekja til 8. apríl 1989 þegar hinn 21 árs gamli Jón Ásgeir og faðir hans Jóhannes Jónsson stofn­uðu fyrstu Bón­usversl­un­ina í 400 fer­metra hús­næði í Skútu­vogi. Sérstaða Bónus var ein­föld: hún var ódýr­ari en hinir aðil­arnir á mark­aði.

Bónus óx of dafn­aði og í ágúst 1992 keypti Hagkaup, sem þá var ráð­andi á íslenskum mat­vöru­mark­aði, helm­ings­hlut í fyr­ir­tæk­inu. Ári síðar var stofnað nýtt fyr­ir­tæki til að sam­hæfa inn­kaup fyrir versl­anir Bónus og Hagkaupa. Það fyr­ir­tæki fékk nafnið Baugur.

Árið 1998 vildu bræð­urnir Sigurður Gísli og Jón Pálma­synir, sem stýrðu Hag­kaups­veld­inu, fá að kaupa þann helm­ings­hlut í Bónus sem þeir áttu ekki. Það var rök­rétt að þeir myndu gera slíkt ef breyt­ingar áttu að verða á eign­ar­hald­inu, enda mun stærri aðil­inn í sam­band­inu.

Jón Ásgeir var hins vegar ekki á þeim bux­unum. Hann leit­aði til Kaup­þings, sem þá var lítið fjár­mála­fyr­ir­tæki í örum vexti og fékk fjár­mögnun til að kaupa bræð­urna út.

Eftir að gengið hafði verið frá kaup­unum var starf­semin sam­einuð undir Baugs-nafn­inu. Inn­kaupa­hlut­inn sem áður hafði borið það nafn var nefndur Aðföng. Í við­skipt­unum var Hag­kaupum skipt upp þannig að Jón Ásgeir, með lið­sinni Kaup­þings og ann­arra, keypti rekst­ur­inn en Hag­kaups­fjöl­skyldan átti áfram stórt fast­eigna­safn sem var inni í fyr­ir­tæk­inu. Jón Ásgeir og fjöl­skylda hans stækk­aði síðan ört við sig í Baugi, í gegnum fjár­fest­inga­fé­lagið Gaum, og var í ráð­andi stöðu innan félags­ins. Vorið 1999 var Baugur síðan skráður á markað.

Það stóð þó ekki lengi. Vorið 2003, fjórum árum eftir að félagið var skráð, gerðu Jón Ásgeir, fjöl­skylda hans og tengdir aðilar yfir­tökutil­boð í Baug, eign­uð­ust 92 pró­senta hlut og afskráðu félagið af mark­aði.

Eftir afskrán­ingu Baugs varð vöxt­ur­inn ævin­týra­legur. Í rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis segir að „sá fyr­ir­tækja­hópur sem umfangs­mestur var í við­skiptum við íslensku bank­ana var Baugur Group hf. og tengdir aðilar. Útlán til Baugs­hóps­ins voru veru­leg í öllum þremur bönk­unum; Glitni, Kaup­þingi og Lands­bank­anum“.

Baugur var allstaðar

Á þessum árum varð Baugur Group allt um lykj­andi í íslensku sam­fé­lagi. Sá sem vildi kaupa sér mat­vöru, aðra dag­vöru, tísku­fatnað, íþrótta­vörur, bygg­ing­ar­efni, raf­lagnir, hús­gögn, blóm, trygg­ingar, banka­þjón­ustu, tölvu eða tölvu­leik, far­síma­þjón­ustu, sjón­varps­á­skrift eða bók átti varla kost á öðru en að versla við Baug. Ef ein­hver fór í kvik­mynda­hús, hlust­aði á útvarp, las blað, fór á tón­leika, keypti sér plötu eða DVD-disk eða horfði á sjón­varps­þátt sem fram­leiddur var á Íslandi þá var sá hinn sami lík­leg­ast að borga Baugi fyrir. Ef fjöl­skylda fór í Smára­lind eða Kringl­una þá var hún í heim­sókn hjá Baugi. Ef ein­hver gisti á Nordica hót­el­inu, leigði íbúð í Skugga­hverf­inu, skrif­stofu­að­stöðu í B26-hús­inu í Borg­ar­túni, kíkti í heim­sókn til Kaup­hall­ar­innar eða steig bara fæti inn í atvinnu­hús­næði á rúm­lega 130 mis­mun­andi stöðum þá var við­kom­andi í fast­eign sem Baugur átti. Það var ekki einu sinni hægt að fara í Bláa lónið til að kom­ast undan Baugs­hend­inni. Félagið átti einnig óbeinan hlut í því. Baugur var alltum­lykj­andi og neyt­endur voru í hendi hans.

Á meðal eigna á Íslandi sem Baugur og tengd félög áttu í, að hluta til í gegnum Haga, voru Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Topshop, Oasis, Karen Millen, Warehouse, Evans, Coast, Whistles, The Shoe Studio, Dorothy Perkins, All Saints, Húsa­smiðjan, Ískraft, Egg, Blómaval, Stöð 2, Frétta­blaðið, Bylgjan, Vísir.is, Birtíngur, DV, Skuggi Forlag, Saga Film, Vodafone, Sko, Kögun, EJS, Skýrr, Lands­steinar Strengur, Humac (sem var með upp­boð fyrir Apple vörur á Íslandi og í Skand­in­avíu), Trygg­inga­mið­stöðin, Geysir Green Energy (og þar af leið­andi HS Orka), Landic Property, Íslenska fast­eigna­fé­lagið, Fast­eigna­fé­lagið Eik, Þyrping fast­eigna­fé­lag og auð­vitað Glitnir banki.

Haustið 2007 voru inn­lendar eignir Baugs, sam­kvæmt mati félags­ins sjálfs, metnar á tæp­lega 100 millj­arða króna. Þrátt fyrir það voru ein­ungis 35 pró­sent af umsvifum félags­ins á þessum tíma á Íslandi. Það sem eftir stóð var að mestu leyti í Bret­landi þar sem Baugur fór mik­inn í að kaupa ýmsar versl­un­ar­keðjur. Þegar best lét átti Baugur hluti í um 3.700 versl­unum og um 70 þús­und manns störf­uðu hjá sam­steyp­unni. Baugur var því alþjóð­legur risi á þessum tíma.

Holdgervingur útrásarinnar

Jón Ásgeir var hold­gerv­ingur þess ástands sem ríkti í íslenskum við­skiptum frá einka­væð­ingu bank­anna og fram að banka­hruni haustið 2008. Hann var „götu­strákur“, með sítt að aftan, í leð­ur­jakka og ákafa­lega djarfur í við­skipta­á­kvörð­unum. Við­skipta­módel hans gekk að mörgu leyti út á að skuld­setja fyr­ir­tæki upp í topp, jafn­vel eftir að virði þeirra hafði verið end­ur­metið, til að geta losað fé fyrir nýjar fjár­fest­ingar. Svo var leik­ur­inn end­ur­tek­inn aftur aftur og aftur.

Pálmi Har­alds­son, einn nán­asti við­skipta­fé­lagi hans á upp­gangs­ár­unum, lýsti Jóni Ásgeiri með eft­ir­far­andi hætti í blaða­grein árið 2005: „Fyrir mér er ekki vafi á því að Jón Ásgeir hefur á umliðnum árum gert meira fyrir íslenskt sam­fé­lag en aðrir sam­tíma­menn hans og þótt aftar í sög­una væri farið. [...] Jón Ásgeir var og er alfa og omega þeirrar útrásar og upp­bygg­ingar sem ein­kennt hefur íslenskt við­skipta­líf á umliðnum árum. Hann hefur verið leið­andi í útrás íslenskra fyr­ir­tækja sem hefur haft gríð­ar­leg áhrif á lífs­kjör og sjálfs­traust okkar litlu þjóðar.“

Í lok árs 2007 kaus Mark­að­ur­inn, fylgi­rit Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, eig­anda sinn sem við­skipta­mann árs­ins. Í apríl tók hann svo við, fyrir hönd Baugs Group, útflutn­ings­verð­launum þáver­andi for­seta Íslands, Ólafs Ragnars Gríms­sonar, fyrir for­ystu­hlut­verk sitt og árangur í útrásinni.

Þrátt fyrir alla þessa við­ur­kenn­ing­ar­súpu var ljóst að Baugs­veldið var þegar komið í mikil vand­ræði, þótt það næði að fela það út á við fyrir flestum.

Í upp­sveiflu, þar sem aðgengi að fjár­magni var nán­ast tak­marka­laust, þá gekk þessi leikur nefni­lega upp. Í mót­vindi fór fljótt að fjara undan glans­mynd­inni.

Baugur í þrot

Við banka­hrunið tap­að­ist eign­ar­hlutur FL Group, sem þá hafði tekið upp nafnið Stoðir, í Glitni. Baugur var á þessum tíma stærsti ein­staki eig­andi Stoða og hafði fall Glitnis eðli­lega mikil áhrif á stöðu félags­ins. Því var lagt upp með sér­staka áætlun um end­ur­reisn Baugs, sem kölluð var Project Sunrise. Hún var kynnt í jan­úar 2009 og sam­kvæmt yfir­liti sem henni fylgdi voru skuldir Baugs umfram eignir 148 millj­arðar króna. Til að gera langa sögu stutta féllust kröfu­hafar Baugs ekki á þessar hug­myndir og fóru fram á að félagið yrði tekið til gjald­þrota­skipta.

Þann 11. mars 2009, nítján árum og ell­efu mán­uðum eftir opnun fyrstu Bón­usversl­un­ar­innar, synj­aði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Baugi um áfram­hald­andi greiðslu­stöðvun og í kjöl­farið var óskað eftir því að félagið yrði tekið til gjald­þrota­skipta. Við gjald­þrot Baugs tap­að­ist stærsti hluti veld­is­ins sem þeir feðgar, Jón Ásgeir Jóhann­es­son og Jóhannes Jónsson, og fylgi­hnettir þeirra höfðu byggt upp. Kröfur í búið námu á þriðja hund­rað millj­örðum króna en ein­ungis var gert ráð fyrir að um sjö millj­arðar króna myndu fást upp í þær.

Fjölmiðlum skotið undan

Tvennt stóð þó eftir, utan eigna Ingi­bjargar, eig­in­konu Jóns Ásgeirs, sem voru umtals­verðar. Fjöl­miða­veld­inu 365 hafði verið komið í skjól með ótrú­legri fléttu og Högum, sem hélt á inn­lenda versl­un­ar­rekstri fjöl­skyld­unnar, hafði verið skotið út úr Baugi sum­arið 2008 og inn í 1998 ehf., sem fjöl­skyldan átti einnig.

365 miðlar var lengi vel stærsta einkarekna fjölmiðlafyrirtæki landsins. Mynd: Kjarninn
365 miðlar var lengi vel stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins. Mynd: Kjarninn

Byrjum á fjöl­miðl­unum. Afskipti Jóns Ásgeirs að fjöl­miðlum hófust sum­arið 2002 þegar hann keypti frí­blaðið Frétta­blaðið. Næstu árin var ráð­ist í hverja skuld­settu yfir­tök­una á fjöl­miðlum á fætur öðru. Í byrjun árs 2004 keypti Jón Ásgeir Norð­ur­ljós, eig­anda Stöðvar 2, Bylgj­unnar og fleiri miðla, af Jóni Ólafs­syni. Þessar eignir, ásamt vef­síð­unni Vísi.is, voru sam­ein­aðar Frétta­blað­inu og úr varð fjöl­miðl­arisi sem síðar hlaut nafnið 365.

Þessi upp­kaup höfðu verið dýr. Vikurnar eftir hrunið haustið 2008 lá fyrir að 365 stefndi í gjald­þrot vegna yfir­skuld­setn­ingar. Þótt Jón Ásgeir réði sam­steyp­unni og væri langstærsti eig­andi hennar ásamt helstu við­skipta­fé­lögum sínum, þá voru hlut­hafar nokkur hund­ruð.

Í lok októ­ber 2008 var blásið til stjórn­ar­fundar í 365. Tekin var ákvörðun um að selja alla fjöl­miðla 365 til Rauð­sólar ehf. Eigandi þess félags var Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Kaupin voru að mestu greidd með láni frá Högum, sem Jón Ásgeir stýrði enn á þessum tíma.

Hann greiddi ekki sjálfur atkvæði um til­lög­una en þrír við­skipta­fé­lagar hans sem sátu í stjórn­inni sam­þykktu hana. Einn stjórn­ar­maður, Árni Hauksson, greiddi atkvæði á móti og sagði sig í kjöl­farið úr stjórn­inni.

Hefði átt að fara í þrot

Nafni Rauð­sólar var svo breytt í 365 og gamla 365 fékk nafnið Íslensk afþrey­ing, og sett í þrot. Dóm­kvaddir mats­menn í einka­máli á hendur því komust síðar að þeirri nið­ur­stöðu að félagið hefði verið ógjald­fært og því hefði í raun átt að gefa 365 upp til gjald­þrota­skipta áður en fjöl­miðla­hlut­inn var seldur út. Þegar skipti fóru fram á búinu kom einnig í ljós að stjórn­endur nýja og gamla 365 höfðu ákveðið að veita Rauðsól afslátt af sölu á hlut­unum þegar end­ur­skoðun fór fram á kaup­verði þeirra.

Skipta­stjóri þrota­bús­ins taldi að um kláran gjafa­gern­ing væri að ræða, enda var Jón Ásgeir stjórn­ar­for­maður í félag­inu sem var að selja félagi í hans eigu fjöl­miðl­ana, sömu lyk­il­stjórn­endur voru í báðum félögum, sátu stjórn­ar­fundi í þeim og und­ir­rit­uðu samn­ing­ana sem veittu umræddan afslátt. Hér­aðs­dómur var sam­mála skipta­stjór­anum og dæmdi Rauðsól, sem þá hafði verið sam­einuð dótt­ur­fé­lag­inu 365 miðlum undir nafni þess síð­ar­nefnda, til að greiða þrota­bú­inu 160 millj­ónir króna til baka. 365 miðlar þurftu því að greiða þrota­búi 365 vegna kaupa á bréfum í 365 miðlum.

Alls töp­uðu kröfu­hafar Íslenskrar afþrey­ingar, gamla 365, 3,7 millj­örðum króna. Þeir voru að uppi­stöðu íslenskir líf­eyr­i­s­jóðir og rík­is­bank­inn Lands­bank­inn. Sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki bank­ans, Landsvaki, stefndi Jóni Ásgeiri og stjórn­ar­mönn­unum þremur sem sam­þykktu söl­una á fjöl­miðl­unum haustið 2008. í jan­úar 2013 náð­ist sátt í mál­inu með því að menn­irnir fjórir greiddu nokkra tugi millj­óna króna. Rík­is­bank­inn hefur neitað að upp­lýsa um á hvaða grund­velli ráð­ist var í þá sátt.

Viðskipti ársins 2017

Eign­ar­haldið á 365 var síðar fært yfir til Ingi­bjargar, eig­in­konu Jóns Ásgeirs. Hún er eini eig­andi félags­ins í dag. Rekstur fjöl­miðla 365 var sann­ar­lega eng­inn dans á rósum síð­asta ára­tug­inn. Breyt­ingar í neyt­enda­hegðun, tækni- og upp­lýs­inga­bylt­ing og auð­vitað efna­hags­sam­dráttur í kjöl­far banka­hruns gerðu það að verkum að helstu tekju­stoð­irnar, aug­lýs­inga­sala og sjón­varps­á­skrift, áttu undir högg að sækja. Tapið á síð­ustu árum var gríð­ar­legt, hljóp á millj­örðum króna. Samhliða hefur starfs­manna­velta verið gríð­ar­leg, aðhalds­að­gerðir að minnsta kosti árlegar og ýmis hneyksl­is­mál tengdum afskiptum eig­anda að rit­stjórn miðla skotið upp koll­inum, sem hafa rýrt trú­verð­ug­leika sam­steypunnar.

Samt sem áður tókst Jóni Ásgeiri að selja útvarps- og sjón­varps­miðla 365 ásamt frétta- og afþrey­ing­ar­vefnum Vísi.is og fjar­skipta­sviði 365 til Vodafone á árinu 2017 fyrir 8,3 millj­arða króna. Þetta gerði 365 kleyft að greiða upp þorra lang­tíma­lána sinna og eign­ast ell­efu pró­sent hlut í Vodafone. Yfir­færslan á miðl­unum átti sér stað í byrjun des­em­ber 2017. Um var að ræða ótrú­leg við­skipti fyrir Jón Ásgeir og Ingi­björgu. Margir við­mæl­endur Kjarnans telja þau vera ein bestu við­skipti síð­ustu ára, þar sem hjónin fengu mjög mikið fyrir lítið.

Nafni Fjar­skipta, móð­ur­fé­lags Vodafone, var síðar breytt í Sýn. Félagið er skráð á markað og stærstu eig­endur þess eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, í ein­hverjum til­fellum þeir sömu og áttu skulda­bréf á gamla 365 sem var sett í 3,7 millj­arða króna þrot.

Forsendur ekki gengið eftir

Þegar til­kynnt var um við­skiptin kom fram í kynn­ingu frá kaup­anda til fjár­festa að sam­legð­ar­á­hrif vegna kaupana yrði um 1,1 millj­arður króna á ári. Á meðal helstu áhættu­þátta voru mögu­leg fækkun við­skipta­vina í áskrift­ar­sjón­varpi.

Enn sem komið er hafa kaupin ekki reynst gæfu­leg fyrir Sýn. Alls lækk­aði mark­aðsvirði þess um 38,3 pró­sent á síð­asta ári, meira en í nokkru öðru skráðu félagi. Dag­skrár­kostn­aður reynd­ist hærri, aug­lýs­inga­sala og sala sjón­varps­á­skrifta lægri og kostn­aður við sam­þætt­ingu meiri en ætlað var. Þetta leiddi til þess að tveir stjórn­endur Sýnar voru látnir fara í byrjun árs 2019, þar á meðal Björn Víglunds­son, sem var yfir miðlum félags­ins. Sýn sendi tvær afkomu­við­var­anir frá sér á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2018 og hækk­aði verð á sjón­varps- og fjar­skipta­þjón­ustu félags­ins um allt að 30 pró­sent um mán­aða­mótin nóv­em­ber/des­em­ber.

Enn ein blóð­takan varð þegar Síminn tryggði sér rétt­inn af sýn­ingu á enska bolt­anum frá og með næsta keppn­is­tíma­bili. Í sam­runa­skrá vegna kaupa á miðlum 365, sem var óvart birt á vef Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins með trún­að­ar­upp­lýs­ingum vorið 2017, kom fram að um þrjú þús­und áskrif­endur væru að Sport­pakka Stöðvar 2 og tæp­lega 1.400 manns með Risa­pakk­ann, sem inni­heldur einnig íþrótta­stöðv­arnar. Hluti þess­ara áskrif­enda gæti verið í hættu þegar enski bolt­inn er ekki lengur í boði innan hennar. Í nýlegri grein­ingu Arion banka á Sýn er áætlað að um fimm þús­und við­skipta­vinir gætu farið frá félag­inu sam­hliða því að það missir enska bolt­ann.

Enski boltinn flyst yfir til Símans næsta haust. Það verður töluverður höfuðverkur fyrir Sýn
Enski bolt­inn flyst yfir til Símans næsta haust. Það verður tölu­verður höf­uð­verkur fyrir Sýn

Í októ­ber seldu 365 miðlar allt hluta­féð sem þeir fengu Sýn fyrir söl­una á miðl­unum og not­uðu ágóð­ann til þess að kaupa hluta­bréf í Högum. Eina stóra fjöl­miðla­eign þeirra í dag er frí­blaðið Frétta­blaðið, sem hefur verið í óform­legu sölu­ferli mán­uðum saman hjá Kviku banka.

Undið ofan af endurkomunni

Baugs­fjöl­skyldan hafði, líkt og áður sagði, skotið Högum út úr Baugi á árinu 2008. Það var gert með því að stofna félagið 1998 ehf., félagi stýrt af Baugs­fjöl­skyld­unni, og láta það kaupa Haga á 30 millj­arða króna. Hluti af pen­ing­unum sem Baugur fékk fyrir söl­una var svo not­aður til að kaupa hluta­bréf í Baugi af Baugs­fjöl­skyld­unni.

En fjöl­skyldan hafði enn yfir­ráð yfir Högum vegna þess­arar fléttu. Arion banki átti þó veð í nán­ast öllu félag­inu og gat leyst það til sín. Það gerð­ist í nóv­em­ber 2009 og í febr­úar 2010 var greint frá því að Jóhannes og stjórn­endur félags­ins fengju að kaupa 15 pró­sent í Högum. Afgang­ur­inn yrði seldur í gegnum Kaup­höll­ina eftir að Hagar yrðu skráðir á markað. Jóhannes átti áfram að vera stjórn­ar­for­maður Haga.

Nið­ur­staðan horfði sér­kenni­lega við mörgum. Arion banki þurfti enda að afskrifa yfir 30 millj­arða króna vegna fjöl­skyld­unnar, þótt það tap lenti reyndar að öllu leyti á þrota­búi Kaup­þings. Fólk átti erfitt með að skilja hvernig fjöl­skylda gat sett félag svo rosa­lega á höf­uðið en samt haldið hluta af eignum sínum.

Síðar, eftir að Hösk­uldur H. Ólafsson tók við starfi banka­stjóra Arion banka sum­arið 2010, var undið ofan af þessu sam­komu­lagi. Í lok ágúst til­kynnti Arion banki að Jóhann­esi Jónssyni hefði verið vikið úr stjórn Haga, að for­kaups­réttur hans á hlutafé í félag­inu hefði verið felldur úr gildi og að sölu­ferli Haga yrði í kjöl­farið end­ur­hugsað.

Við þessa aðgerð missti fjöl­skyldan tökin á Högum. Tök sem hún er nú að reyna að ná aftur.

Jóhannes Jónsson lést árið 2013.

Jón Ásgeir kemur aftur upp á yfirborðið

Frá haustinu hafa félög í eigu Ingi­bjargar Stefaníu Pálma­dóttur verið að fjár­festa í Högum. Nú eiga tvö félög hennar sam­tals 4,3 pró­sent í Högum.

Það var á grunni þess­arar eignar sem form­leg end­ur­koma Jóns Ásgeirs var reynd. Í henni fólst að bjóða hann fram til stjórnar Haga í stjórn­ar­kjöri Haga sem fram fór 18. jan­úar. Við­mæl­endur Kjarnans segja að hann hafi reynt að afla stuðn­ings víða en ekki hlotið náð fyrir til­nefn­ing­ar­nefnd Haga, sem til­nefndi sínar í stjórn að mestu leyti á sam­ráði við stærstu hlut­hafa. Stærstu hlut­hafar Haga eru stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins (Gildi, LSR, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Birta, Stapi, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn og Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda eiga sam­tals 52 pró­sent í Högum) og tveir sjáv­ar­út­vegs­risar, Samherji (9,95 pró­sent) og FISK-seafood, útgerð­ar­armur Kaup­fé­lags Skag­firð­inga (4,57 pró­sent). Stærsti einka­fjár­festir­inn er Ingi­björg.

Þegar ljóst var að Jón Ásgeir var ekki á meðal þeirra sem til­nefndir voru í stjórn­ina hófst bar­átta hans fyrir því að þrýsta á kjör sitt með öðrum hætti, ann­ars vegar með því að vísa til kosta sinna og hins vegar með því að reyna að knýja fram marg­feld­is­kosn­ingu.

Frétta­blaðið sýndi þessu máli mik­inn áhuga og birti fjölda frétta, skoð­anapistla og nafn­lausra skoð­ana­greina um málið. Þann 12. jan­úar fjall­aði blaðið gagn­rýnið um að til­nefn­ing­ar­nefndin hefði ein­ungis leitað til sex stærstu hlut­hafa og sagt að vana­lega sé leitað til 20 stærstu. Félög í eigu Ingi­bjargar eru sam­an­lagt sjö­undi stærsti hlut­haf­inn. Í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti, sem kom út mið­viku­dag­inn 16. jan­úar var síðan frétt um hversu lítið hefði vantað upp á að marg­feld­is­kosn­ingu yrði beitt og haft eftir ónafn­greindum hlut­höfum að þeir væru óánægðir með þessa nið­ur­stöðu. Í sama blaði birt­ist skoð­ana­grein eftir blaða­mann Mark­að­ar­ins þar sem til­vera til­nefn­ing­ar­nefnda var gagn­rýnd og á bak­síðu hans fjall­aði hinn nafn­lausi pistla­höf­undur „Stjórn­ar­mað­ur­inn“ um sama efni auk þess sem hann sagði það erfitt að „halda því fram að stofn­andi Haga hafi ekki hæfni, þekk­ingu eða reynslu til að sinna stjórn­ar­störfum fyrir félagið.“

Daginn sem kosn­ingin fór fram, 18. jan­úar, var skrifuð frétt í Frétta­blaðið þar sem fram kom að nokkur kurr væri á meðal smærri hlut­hafa Haga vegna lít­ils sam­ráðs við til­nefn­ingu stjórn­ar­manna, sam­kvæmt heim­ildum blaðs­ins. Þegar nið­ur­staða stjórn­ar­kjörs­ins lá fyrir var Jón Ásgeir til við­tals við vef Frétta­blaðs­ins þar sem hann dró til­nefn­ing­ar­nefndir í efa og sagð­ist velta því fyrir sér hvort þær væru af hinu góða, eða hvort þær væru að skerða rétt smærri hlut­hafa.

Laug­ar­dag­inn 19. jan­úar skrif­aði svo annar rit­stjóri Frétta­blaðs­ins frétt í blaðið þar sem Jón Ásgeir var til við­tals. Inntak frétt­ar­innar var að félag Ingi­bjargar Pálma­dóttur og aðrir ónafn­greindir smærri hlut­hafar ætl­uðu að setja fram til­lögu fyrir aðal­fund Haga um að marg­feld­is­kosn­ing yrði fram­kvæmd í stjórn­ar­kjöri í Högum á aðal­fundi félags­ins, sem fram fer í júní næst­kom­andi.

Síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, 23. jan­úar, birt­ist fimm dálka skoð­ana­grein eftir Jón Skafta­son, bróður Ólafar Skafta­dóttur, ann­ars rit­stjóra Frétta­blaðs­ins og sonar útgef­anda blaðs­ins, Krist­ínar Þor­steins­dóttur, í Mark­aðnum. Jón starfar sem fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­inga hjá 365 og er nán­asti sam­starfs­maður Jóns Ásgeirs. Í grein­inni setti Jón fram gagn­rýni á til­nefn­ing­ar­nefnd Haga og stjórn­ar­kjörið í félag­inu og sagði mik­il­vægt að Hagar dragi lær­dóm af ferl­inu. Þar sagði hann að nokkuð „óum­deilt hlýtur að vera að Jón Ásgeir hefur ein­staka þekk­ingu á verslun bæði hér heima og erlendis. Þá hefur hann sem stofn­andi Bónuss og síðar for­stjóri Haga og stjórn­ar­for­maður ágæta inn­sýn í félagið. Þrátt fyrir þetta, og þá stað­reynd að Jón Ásgeir virt­ist fljótt á litið skora hátt á nán­ast öllum þeim mæli­kvörðum sem bar að leggja til grund­vallar, hlaut hann ekki náð fyrir augum nefnd­ar­innar.“

Fullyrða má að Jón Ásgeir hafi ekki verið jafn títt til við­tals í fjöl­miðlum, hvorki þeim sem hann stýrir né öðrum, vegna við­skipta­mála frá því fyrir hrun.

Og ljóst má vera að hann ætlar sér ekki lengur að sigla undir yfir­borð­inu í við­skipta­veldi þeirra hjóna, heldur að stíga á ný fram í dags­ljósið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannlíf

Mest lesið undanfarið ár