Ólga og áhyggjur í Kristjaníu

Íbúar Krist­janíu í Kaup­manna­höfn hafa vax­andi áhyggjur af auknu ofbeldi og afbrotum í tengslum við sölu á fíkni­efnum á svæð­inu. Þeir eru hins­vegar ekki sam­mála um til hvaða ráða skuli gripið.

Lögreglumenn í eftirlitsferð um Pusher Street, miðstöð hassviðskipta í Kristjaníu.
Lög­reglu­menn í eft­ir­lits­ferð um Pusher Street, mið­stöð hass­við­skipta í Krist­janíu. Mynd: EPA

Í næsta mán­uði verða 50 ár síðan hópur fólks lagði undir sig fyrr­ver­andi umráða­svæði hers­ins á Krist­jáns­höfn og lýsti yfir stofnun frí­ríkis. Svæðið sem um ræðir er 34 hekt­arar og hóp­ur­inn gaf því nafnið Krist­janía. Krist­janitt­arnir lögðu undir sig fjöl­margar bygg­ingar sem höfðu til­heyrt hernum. Á þessum tíma var mikil hús­næðisekla í Kaup­manna­höfn og margir því til­búnir að setj­ast að í „frí­rík­inu“. Íbúarnir voru lengi vel í kringum eitt þús­und, eru núna rúm­lega átta hund­ruð. Tals­verður hluti þeirra sem sett­ust að í upp­hafi búa þar enn og eru eins og gefur að skilja orðnir nokkuð við aldur. Íbúi sem pistla­skrif­ari ræddi við fyrir nokkrum árum sagði Krist­janíu vera hægt og rólega að breyt­ast í hálf­gert elli­heim­ili.

Öðruvísi og umdeild

Lífstakt­ur­inn í Krist­janíu hefur frá upp­hafi að ýmsu leyti verið öðru­vísi en ann­ars staðar í Kaup­manna­höfn, og þótt víðar væri leitað. Á árunum um og eftir 1970 var hassneysla orðin all útbreidd og Krist­janía var fljót­lega eins konar sölu­mið­stöð þess­arar ólög­legu neyslu­vöru. Allir vissu að í „frí­rík­inu“ væri auð­velt að verða sér úti um „grasið“. Við­skiptin voru frá upp­hafi að mestu tak­mörkuð við eina til­tekna götu „Pusher Street“.

Krist­janía hefur alla tíð verið umdeild. Sumum hefur þótt yfir­völd sýna íbúum lin­kind og umborið margt sem ekki lið­ist ann­ars staðar. Aðrir segja nauð­syn­legt að í jurta­garði til­ver­unnar þurfi allur gróður að geta þrif­ist. Árum saman heyrð­ust alltaf raddir um að „hreinsa til“ eins og það var orðað. Aldrei varð þó neitt úr slíku en lengi bjuggu íbú­arnir við algjöra óvissu um fram­tíð svæð­is­ins.

Samningurinn frá 2012

Í byrjun júlí árið 2012, 41 ári eftir að „frí­ríkið“ varð til, var und­ir­rit­aður kaup­samn­ingur. Selj­and­inn var danska ríkið, kaup­and­inn var sjóð­ur­inn „Frista­den Christiania“. Óhætt er að segja að samn­ingur þessi hafi verið afar mik­il­vægur fyrir báða aðila sem að honum stóðu. Fyrir ríkið var mik­il­vægt að fá ein­hvern botn í þetta „Krist­jan­íu­mál“ eins og það var kallað og ljúka ára­löngum deilum um til­veru Krist­janíu. Fyrir kaup­and­ann var samn­ing­ur­inn kannski enn mik­il­væg­ari. Með honum var fram­tíð Krist­janíu tryggð. Í samn­ingnum var kveðið á um að yfir­bragð svæð­is­ins yrði með svip­uðum hætti og verið hafði frá upp­hafi, Krist­janitt­arnir skuld­bundu sig til að hlíta ýmsum reglum svosem íbúa­skrán­ingu, bygg­inga­reglu­gerðum og almennum skipu­lags­reglum. Þegar nýr reið­hjóla­stígur var lagður árið 2017 reyndi fyrir alvöru á sam­komu­lagið. Nýi stíg­ur­inn liggur þvert yfir hluta Krist­jan­í­u­svæð­is­ins, hann teng­ist hjóla- og göngu­brú frá Nýhöfn­inni yfir á Krist­jáns­höfn og út á Amager. Krist­janitt­anir voru and­snúnir lagn­ingu stígs­ins, en máttu sín lít­ils. Stíg­ur­inn er vin­sæll og um hann fara þús­undir á degi hverjum.

Slagurinn um peningana

Enginn veit með vissu umsvifin á hass­mark­aðnum í Krist­janíu. Í umfjöllun danskra fjöl­miðla und­an­farið hefur komið fram að árleg velta á hass­mark­aðnum í Krist­janíu sé ekki undir einum millj­arði danskra króna (20 millj­arðar íslenskir). Margir vilja fá bita af þess­ari köku.

Á 40 ára afmæli Krist­janíu árið 2011, spurði skrif­ari þessa pistils fjöl­miðla­full­trúa Krist­janitt­ana hvað hann teldi helst ógna fram­tíð svæð­is­ins. Ekki stóð á svar­inu „ég hef mestar áhyggjur af rokk­ur­unum (mót­or­hjóla­gengj­unum) sem reyna, með góðu og illu, að sölsa undir sig hass­mark­að­inn. Þeim fylgir ofbeldi“. Áhyggjur fjöl­miðla­full­trú­ans hafa ekki reynst ástæðu­lausar og á síð­ast­liðnum ára­tug hafa rokk­ar­arnir barist hart til að ná undir sig hass­mark­aðnum með þeim árangri að í dag ráða þeir stærstum hluta hans. Með ofbeldi og hót­unum.

Í sept­em­ber 2016 lést ungur fíkni­efna­sali eftir skot­bar­daga við lög­reglu. Kvöldið eftir héldu íbúar Krist­janíu fjöl­mennan íbúa­fund og morg­un­inn eftir létu tugir þeirra til skarar skríða og rifu niður hass­sölu­bás­ana í Pusher Street. Þetta var í fyrsta skipti sem íbú­arnir gripu til þessa ráðs en lög­reglan hafði nokkrum sinnum rifið niður bás­ana. Þetta breytti þó litlu og brátt sótti allt í sama farið.

Morð og íbúafundur

Aðfara­nótt 4. júlí sl. lést ungur maður, eftir skot­bar­daga í Krist­janíu. Maðurinn sem var 22 ára hafði alist upp í Krist­janíu og búið þar alla ævi. Morðið olli mik­illi reiði íbú­anna og sunnu­dag­inn 15. ágúst sl. var efnt til fundar. Hátt í tvö hund­ruð höfðu þá kraf­ist þess að fundur yrði hald­inn og að Pusher Street eða Gaden eins og íbú­arnar kalla göt­una yrði lokað, í eitt skipti fyrir öll.

Um þrjú hund­ruð manns mættu á fund­inn sem stóð í marga klukku­tíma. Ekki náð­ist sam­komu­lag um að loka Pusher Street þótt flestir fund­ar­manna væru sam­mála um að ástandið væri algjör­lega óvið­un­andi. Helsta ástæða þess að ekki náð­ist sam­komu­lag á fund­inum var að sögn sú að bar­áttan við glæpa­gengin sem stjórna hass­söl­unni væri íbú­unum, einum og sér, ofviða. Þar yrði lög­reglan að koma til skjal­anna. Á fund­inum kom fram að þótt hass­salan sé að mestu leyti í höndum glæpa­gengja, en ekki íbú­anna, eiga íbú­arnir, sumir hverjir, hags­muna að gæta. Ein­hverjir eiga sölu­bása sem þeir leigja út til sölu­mann­anna (glæpa­gengj­anna) eða geyma hass fyrir þá. Þetta fólk er ekki til­búið til að banna hass­söl­una og loka Pusher Street. Íbúi sem dag­blaðið Politi­ken ræddi við eftir fund­inn sagði að það væri ekki „quick fix“ að upp­ræta ofbeldið sem fylgir hass­söl­unni í Krist­janíu.

Í lokin má geta þess að Krist­janía hefur árum saman verið einn fjöl­sótt­asti við­komu­staður erlendra ferða­manna í Kaup­manna­höfn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár