Stjórnendur svartsýnni á að skapa ný störf eftir Brexit

Brexit-kosn­ingin í Bret­landi heldur áfram að draga dilk á eftir sér. Stjórn­endur fyr­ir­tækja eru fremur svart­sýnir á stöðu mála.

Sex af hverjum níu stjórn­endum fyr­ir­tækja í Bret­landi eru svart­sýnir á að skapa ný störf og tengja þeir stöð­una við Brexit-kosn­ing­una í Bret­landi, þar sem almenn­ingur kaus með því að Bretland myndi yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið. Ekki liggur fyrir enn hvernig að því verður staðið, en Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra, hefur ítrekað að við það verði staðið.

Könnunin, sem var með stóru úrtaki, var gerð í sumar en nið­ur­stöð­urnar voru kunn­gerðar í gær. Það var alþjóð­lega fyr­ir­tækið Manpower sem fram­kvæmdi könn­un­ina, en hún nefn­ist Manpower Employ­ment Outlook Survey. Með könn­un­inni reynir fyr­ir­tækið að kort­leggja í hvaða geirum atvinnu­lífs­ins störfum muni fjölga og í hvaða geirum störfum muni fækka.

Samkvæmt frétt breska rík­is­út­varps­ins BBC þá náði könn­unin til 2.100 stjórn­enda fyr­ir­tækja, og voru þeir spurðir út í ráðn­ing­ar­horfur á næstu miss­erum. Horf­urnar þykja sér­stak­lega slæmar í fjár­mála­geir­anum og í mann­virkja­geir­anum, en fall punds­ins hefur komið illa við ýmsa geira sem reiða sig á inn­flutt efni af ýmsu tagi, eins og þarf til hús­bygg­inga.

Smásalar bera sig betur, og segj­ast ekki hafa fundið fyrir miklu falli í verslun ennþá, og telja að horfur á mark­aði séu ekki svo slæmar.

Samtals telja 8 pró­sent stjórn­enda að þeir muni fjölga starfs­fólki, um fjögur pró­sent telja öruggt að þeir muni fækka fólki, en 87 pró­sent að starfs­mönnum muni ekki fjölga.

Gengi punds­ins hefur fallið veru­lega gagn­vart helstu við­skipta­myntum heims­ins á und­an­förnum mán­uðum. Sé sér­stak­lega horft á gengi punds­ins gagn­vart krón­unni þá nemur fallið um 25 pró­sentum á und­an­förnu ári. Pundið kostar nú 153 krónur en það kost­aði 206 krónur fyrir ári síðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár