Bandaríkin setja pressu á Kínverja

Spennan magnast á Kóreu­skaga.

Kim Jong-un fylgist með hersýningu í Pjongjang.
Kim Jong-un fylgist með her­sýn­ingu í Pjongj­ang. Mynd: EPA

Donald Trump Bandaríkja­forseti og trúnaðar­menn hans, hafa að undan­förnu sett meiri pressu á stjórn­völd í Kína og óskað eftir því að þau stígi inn í deilurnar milli Bandaríkja­manna og Norður-Kóreu með afgerandi hætti. Samkvæmt upplýsingum Wall Street Journal þá vilja stjórn­völd í Banda­ríkjunum að Kínverjar gefi það í skyn með óyggjandi hætti að Norður-Kórea hafi engan stuðning hjá Kínverjum.

Slík yfir­lýsing hefur ekki komið fram ennþá, þrátt fyrir að Kínverjar hafi talað fyrir því að Norður-Kórea, með hinn óútreiknanlega Kim Jong-Un í broddi fylkingar, láti af tilraunum með langdreygar flaugar, þá hefur það engu skipt fyrir Norður-Kóreu. Jong-Un segir herinn í Norður-Kóreu tilbúinn í stríð við Banda­ríkin.

Samkvæmt skrifum Wall Street Journal er spennan á Kóreu­skaga nú sögð rafmögnuð, og líkur á að átök brjótist út á milli Bandaríkja­hers og hers Norður-Kóreu hafa aukist mikið á síðustu dögum. Jafnvel þó síðasta tilraun Norður-Kóreu með lang­drægar flaugar hafi mistekist þá er talið að Norður-Kórea ætli hvergi að hætta og frekar bæta í. Í yfir­lýsingum frá stjórn­völd í Norður-Kóreu hefur birst vilji til að gera árásir á Banda­ríkin og hafa stjórn­völd í Suður-Kóreu og Japan sagt að full ástæða sé til að taka tilraunir landsins með kjarnorku­vopn og lang­drægar flaugar alvarlega.

Bandaríkjaher er nu kominn með flota­deild á Japanshaf og fjölmennt lið í Suður-Kóreu, þar sem her nágrannana í Suður-Kóreu hefur notið góðs af stuðningi hersins lengi. Trump hefur ítrekað það að undan­förnu að Banda­ríkin séu tilbúin til þess að takast á við ógnina í Norður-Kóreu ein og óstudd, en hafa óskað eftir stuðningi annarra ríkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár