Óskar eftir opnum fundi til að ræða úrskurð NEL

Þing­maður Pírata telur að kanna þurfi hvort úrskurður NEL í Ásmund­ar­salar-mál­inu sé í sam­ræmi við lög­reglu­lög, lög um per­sónu­vernd og verk­lags­reglur lög­reglu um notkun búk­mynda­véla. Hefur hann óskað eftir opnum fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pirata.
Jón Þór Ólafsson, þing­maður Pirata. Mynd: Bára Huld Beck

Jón Þór Ólafsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis og þing­maður Pírata, hefur lagt til að nefndin taki fyrir nýlegan úrskurð nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu (NEL). Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Pírötum.

Kanna þurfi hvort úrskurð­ur­inn, sem lýtur að sam­tali tveggja lög­reglu­manna á Þor­láks­messu í Ásmund­ar­sal, stand­ist lög og reglur.

Jón Þór telur frétta­flutn­ing af mál­inu gefa fullt til­efni til þess að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd taki úrskurð NEL til umfjöll­unar á opnum fundi.

Tveggja manna tal sem ekki gæti haft áhrif á tilkynninguna

Rökin sem þing­mað­ur­inn gefur fyrir fundi eru þau að NEL telji sam­tal lög­reglu­mann­anna ámæl­is­vert en „ekki virð­ist hafa komið fram í fjöl­miðlum nákvæm­lega hvað það er við orð lög­reglu­manna sem sé ámæl­is­vert. Ljóst er þó að þarna fer fram tveggja manna tal sem getur ekki haft áhrif á það mál sem upp­runa­lega var til­kynnt um, þ.e. frétta­til­kynn­ingu frá lög­reglu dag­inn eftir.“

Í öðru lagi bendir Jón Þór á að komið hafi fram í fjöl­miðlum að hvor­ugur lög­reglu­mann­anna hafi komið nokkuð nálægt því að semja frétta­til­kynn­ing­una sem send var út að morgni aðfanga­dags og þetta sam­tal því ekki hluti af fram­kvæmd, starfs­að­ferðum eða verk­lagi lög­reglu.

Í þriðja lagi segir hann að sam­tal lög­reglu­mann­anna hafi farið fram í ein­rúmi þar sem almenn­ingur heyrir ekki til þeirra og því ljóst að ekki hafi verið kvartað til NEL vegna sam­tals­ins. Það komi ein­ungis í ljós þegar mynd­bands­upp­tökur eru skoð­aðar síðar.

Í fjórða lagi segir þing­mað­ur­inn að NEL virð­ist ekki gera grein­ar­mun á því að lög­reglu­menn hafi skoð­anir og að þeir gæti fyllstu hlut­lægni í störfum sínum, eins og kveðið er á um í 2. mgr. 13. gr. lög­reglu­laga. Verði þó með engu móti séð að þetta einka­sam­tal hafi haft áhrif á vett­vangi, því ekki var kvartað yfir fram­komu þess­ara tveggja lög­reglu­manna.

Vill að hægt sé að vitna í orð gesta fundarins

„Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefur eft­ir­lits­skyldu með fram­kvæmda­vald­inu og sjálf­stæðum stjórn­sýslu­nefndum eins og NEL, sam­kvæmt nýsam­þykktum lögum um þing­sköp Alþingis. Það er mat Jóns Þórs að kanna þurfi hvort úrskurður NEL sé í sam­ræmi við lög­reglu­lög, lög um per­sónu­vernd og verk­lags­reglur lög­reglu um notkun búk­mynda­véla.

Að sama skapi telur Jón Þór mik­il­vægt að fundur stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar sé opinn fjöl­miðlum svo hægt sé að vitna í orð gesta, sem eins og reynslan hefur sýnt okkur að sé for­senda þessa að eft­ir­lits­hlut­verk Alþingis virki,“ segir í til­kynn­ingu Pírata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár