Framhaldsskólakennari afneitar loftslagsbreytingum og segir Gretu Thunberg ekkert vita um vísindi

Páll Vilhjálmsson segir að vinstri­menn og „loftslags­sinnar“ noti „ungu, saklausu, fallegu stúlkuna Gretu Thunberg“ sem hugmynda­fræðilegt tákn.

Páll Vilhjálmsson, sögu­kennari við Fjölbrauta­skólann í Garðabæ, sem reglulega er vitnað til í Staksteinum Morgun­blaðsins, telur að hnattræn hlýnun sé „hugmynda­fræði en ekki vísindi.“ Þessu hélt hann fram í viðtali á Útvarpi Sögu í gær. Að sögn Páls nota vinstri­menn „hugmynda­fræðileg tákn til að koma boðskapnum á framfæri, eins og ungu, saklausu, fallegu stúlkuna Gretu Thunberg sem getur auðvitað alls ekki vitað eitt eða neitt um vísindi“. 

Hann telur þetta þó misráðið af loftslags­hreyfingunni. „Ef Greta Thunberg væri aldraður vísinda­maður, með mikinn ljóma í kringum sig, væri hún trúverðugri talsmaður fyrir þessa rugl­hugsun, að það sé til manngert veður.“ Páll segir að ungir upprennandi vísinda­menn sem trúi ekki á hamfara­hlýnun eigi enga möguleika í vísinda­heiminum. Þeir sem gagnrýni hnattræna hlýnun fái á sig stimpilinn „afneitarar“. 

Páll heldur því fram að fólk hafi komið sér saman um að trúa á hamfara­hlýnun af manna völdum vegna þess að með hruni kommúnismans og Sovét­ríkjanna hafi myndast „hugmynda­fræðilegt tóm“. Loftslags­ógnin réttlæti ríkis­afskiptin sem séu ær og kýr vinstri­manna. Segir Páll að „þessi meinta góðmennska gagnvart jörðinni“ valdi fólki sem á um sárt að binda ennþá meiri erfið­leikum en það búi við nú þegar. 

Uppi varð fótur og fit árið 2015 þegar Páll skrifaði pistil undir yfir­skriftinni „Vont kynlíf er ekki nauðgun-stráka­sjónarhorn“. „Að þessi maður sé læri­meistari ungmenna í Fjölbrauta­skólanum í Garðabæ er ekki boðlegt. Hverslags kjaftæði er þetta. Hver er tilgangurinn með þessum skrifum?“ skrifaði Máni Pétursson útvarps­maður, sem sat í skóla­nefnd Fjölbrauta­skólans í Garðabæ. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár