Skorar á forseta Alþingis að prenta út miða #ekkiáokkarþingi

Þing­maður Mið­flokks­ins sagði í ræðu á þing­fundi í dag að það væri í höndum karl­kyns þing­manna að upp­ræta kyn­ferð­is­lega áreitni sem við­gengst í öllum þjóð­þingum Evrópu.

Birgir Þórarinsson
Birgir Þór­ar­ins­son Mynd: Samsett mynd

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, skor­aði á for­seta Alþingis á þing­fundi í dag að láta prenta spjöld á íslensku sem á stæði #ekki­áokk­arþingi, taka mynd af þing­mönnum sam­an­komnum þar sem þeir sýni sam­stöðu og berj­ist gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi gegn þing­konum.

Birgir fjall­aði um nið­ur­stöður rann­sóknar sem gerð var á meðal 80 þing­kvenna í 45 löndum sem Evr­ópu­ráðið birti í októ­ber á síð­asta ári en rann­sóknin var um kyn­ferð­is­legt ofbeldi, lík­am­legt og and­legt, gagn­vart þing­konum. Hann sagði nið­ur­stöð­urnar vera slá­andi.

„Daglega verða þing­konur í Evrópu fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Rúmlega 40 pró­sent af þing­konum í þjóð­þingum Evrópu hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni og í 70 pró­sent til­fella eru ger­end­urnir karl­kyns þing­menn. 50 pró­sent eða helm­ingur þing­kvenna hefur orðið fyrir kyn­ferð­is­legum athuga­semdum þar sem mik­ill meg­in­hluti ger­enda eru karl­kyns þing­menn,“ sagði hann.

Birgir sagði það einnig vera slá­andi hversu lágt hlut­fall þess­ara kvenna kæri verkn­að­inn eða ein­ungis 20 pró­sent. Í rann­sókn­inni kemur jafn­framt fram að afleið­ingar þessa fyrir þing­konur eru marg­vís­legar; kvíði, svefn­leysi og ýmis heilsu­far­s­vanda­mál, auk þess hefur þetta nei­kvæð áhrif á öll störf þeirra og fram­gang í stjórn­málum.

„Það er í höndum okkar karl­kyns þing­manna að upp­ræta þessa miklu mein­semd sem við­gengst í öllum þjóð­þingum Evrópu, einnig hér á landi,“ sagði Birgir en hann sótti þing Evr­ópu­ráðs­ins í síð­ustu viku ásamt Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur, þing­manni VG, og Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, þing­manni Pírata. Hann segir að á þing­inu hafi verið hleypt af stokk­unum átaki gegn kyn­ferð­is­legu ofbeldi í þjóð­þingum.

Átakið heitir á ensku „Not in my Parli­ament“, sem þýða mætti á íslensku „Ekki á okkar þingi“. Birgir sagði að tekin hefði verið mynd af hverjum og einum þing­manni með slíkt spjal og þing­menn beðnir um að dreifa á sam­fé­lags­miðl­unum.

Hægt er að sjá færslur á Twitter undir myllu­merk­inu #not­in­myp­ar­li­ament.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár