„Ég er bara enn þá að vera krakki að leika mér“

Júlía Margrét segir frá því hvernig fyrstu drögin að Guð leitar að Salóme urðu til þegar hún var í meistara­námi í Los Angeles að læra handrita­skrif.

Bók

Guð leitar að Salóme

Höfundur Júlía Margrét Einarsdóttir
Una útgáfuhús
390 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Guð leitar að Salóme fjallar um konu sem heitir Salóme. Hún situr á Kringlu­kránni og er að skrifa bréf til manneskju sem hún þekkti fyrir tíu árum. Þetta er martraðar­kennd ástarsaga en líka fjölskyldu­saga,“ segir rithöfundurinn Júlía Margrét Einars­dóttir.

„Hún er í rauninni að útskýra hvers vegna slitnaði upp úr sambandi hennar og þessarar manneskju sem hún þekkti fyrir tíu árum. Til þess að segja þá sögu þarf hún að byrja á dramatískri fjölskyldu­sögu. Svo bregð ég upp mynd af svolítið gallaðri fjöl­skyldu á Akranesi og segi svo frá kynnum þeirra tveggja, Salóme og Helgu, sem unnu saman í versluninni Betra líf á þriðju hæð í Kringlunni. Þetta gerist að miklu leyti í Kringlunni árið 2000 af því mér þótti bara svo gaman að fara inn í þennan gamla heim sem ég ólst upp við. Það voru pálmatré og gosbrunnur með klinki og fólk reykti inni á Hard Rock og eitthvað svona. Þannig að þetta er líka svona smá nostalgíutripp fyrir mig.“

Afurð þess að vera enn krakki að leika sér

Fyrstu drögin að þessu verki urðu til þegar hún bjó úti í Los Angeles og var að læra kvikmynda­handrita­skrif í meistara­námi. „Þetta var fyrsta handritið sem ég skrifaði þar, það er í raun mjög ólíkt þessari lokaafurð. Þá byrjaði ég að leika mér að strúktúrera þessa sögu og eftir að ég flutti heim til Íslands. En fyrst gaf ég út bókina mína Drottningin á Júpíter. Þegar hún var búin var komið að því að fara í næsta verkefni og þá bara einhvern veginn byrjaði ég á að þróa þessa. Hún byggir á ýmsum minnum og þessari nostalgíu sem ég talaði um. Líka, það koma þarna inn einhverjir draumar sem mig dreymdi sjálf og svo er drauga­gangur og eitthvað svona. Fyrir mig er það að skrifa eins og þegar ég var barn að leika mér í Playmo. Ég skrifa ekki um sjálfa mig en ég bý alltaf til einhvern heim sem mér finnst heillandi að fara inn í. Þannig að þetta er líka bara: Ég er bara enn þá að vera krakki að leika mér. Og þetta er afurð þess.“ 

Tilfinningaþrungin stund

„Ég var rosalega heppin að ná að halda risastórt útgáfu­partí rétt áður en öllu var skellt í lás. Það var rosalega gaman. Ég gellaði mig upp, lét setja á mig augnhár, og var í rosa bronsbol. Það fylltist allt af fólki. Þetta var mjög tilfinninga­þrungin stund fyrir mig af því að ég er búin að vera í þrjú ár að vinna að þessu, með fullu starfi. En þetta var þannig á kvöldin og næturnar hjá mér og kærastanum mínum sem var ótrúlega mikið að lesa, við vorum að kasta á milli okkar pælingum. Og öll vinnan með ritstjóranum, stundum fór hann ekki heim fyrr en klukkan tvö á nóttunni af því við vorum í hundraðasta yfir­lestri. Við löbbuðum niðri í bæ í hvort í sína áttina eftir það og bara tókum andköf; þetta var rosalega mikið. En ég lagði allt, gjör­samlega allt í þetta. Með hjálp frábærra einstaklinga í mínu lífi. Þannig já, þessi tilfinning að sleppa takinu var algjör­lega súrrealísk. Og einhvern veginn núna þá er ég að lenda. En núna nátt­úrlega viðtökurnar. Það er bara að vita að fólk er að lesa þetta og fá komment, þau hafa öll verið góð hingað til og það er alveg priceless, það er alveg yndislegt og mjög gaman.“

Með upphitaða pitsu í kuðli uppi í sófa

„Auðvitað langar mig að skrifa í svona geðveikt fallegu húsi uppi á hæð í Toscana með geggjuðu útsýni eins og í Love Actually, hjá rithöfundinum sem fór alltaf í húsið sitt og horfði yfir vatnið, það væri snilld. En ég vona að ég sé ekki að taka rómantíkina úr þessu ferli með því að viðurkenna það að ég var oft bara með einhverja upphitaða rokkpitsu í kuðli uppi í sófa með sæng að hamra á lykla­borðið. Kannski að bestu aðstæðurnar sem ég skrifaði við var þegar ég fór stundum með kærastanum út á land og einu sinni til dæmis í hús sem reyndist ekki vera með neitt síma­samband, sem var mjög retró og skemmtilegt. Kvíða­valdandi fyrst en ég náði að vinna mjög mikið í þeim aðstæðum. Þannig að það er mjög gott, ég mæli alveg með því að koma sér upp úr sófanum til að skrifa.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hugleiðslu

Í bókinni Allir fuglar fljúga í ljósið riðlast tilvera ráfarans Bjartar og lífssaga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rithöfundur og skapari sögunnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hugleiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draumurinn kominn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár