Í útvarpsfréttunum á miðnætti í nótt heyrði ég viðtal við Þorstein Má Baldvinsson forstjóra Samherja. Hann var niðri á bryggju og hæstánægður með niðurstöðu samninga í sjómannadeilunni.
Þetta væri svo sannarlega góð lausn fyrir báða aðila, og það var ekki að heyra annað á honum en þetta væri einmitt það sem útgerðarmenn hefðu allan tímann helst viljað og nánast þráð að veita sjómönnum.
Af hverju þurftu þeir þá að vera í tíu vikna verkfalli til að ná fram þessari ágætu og sanngjörnu lausn?
Svo kom á eftir viðtal við þrjá sjómenn sem voru að búast til farar út á sjó.
Allir voru þeir sáróánægðir með niðurstöðuna.
Íslenskt samfélag er nú þannig að eftir tíu vikna verkfall og yfirvofandi skýra hótun ríkisstjórnar um lög á verkfallsmenn, þá sigla skipin til hafs með grjótafúla og ósátta sjómenn - en á bryggjunni stendur forstjóri Samherja og skellihlær.
Takk fyrir; alltaf gaman að rifja upp í hvaða samfélagi við búum.
Ég vona bara að sjómenn verði ekki eins viljugir og síðast að þeyta pípur skipa sinna eða sigla í land og mæta á baráttufundi á Austurvelli næst þegar sægreifunum finnst ofsagróða sínum ógnað af stjórnvöldum (það verður ekki þessi ríkisstjórn, ónei).
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.














































Athugasemdir