Forstjóri Boeing sér fram á að Max vélarnar komist brátt í loftið

Teymi sérfræðing Boeing vinnur nú að því að fínstilla uppfærslur á hugbúnaði til að tryggja öryggi 737 Max vélanna frá Boeing, svo þær geti komist í loftið aftur.

Dennis Muilenburg, forstjóri Boeing, segist sjá fram á að enda­taflið sér framundan, varðandi kyrr­setninguna á 737 Max vélum félagsins, og að þær munu komast loftið til að þjóna hlutverki sínu í farþega­flugi innan tíðar.

Þetta kemur fram í viðtali Seattle Times við Muilenburg, en megin framleiðslu­starfsemi Boeing er í Renton á Seattle svæðinu, og er fyrir­tækið stærsti vinnu­veitandinn á svæðinu með 80 þúsund starfs­menn.

Eins og mikið hefur verið fjallað um undan­farna mánuði þá hafa 737 Max vélarnar frá Boeing verið kyrr­settar um allan heim, eftir að tvær vélar af þeirri tegund fórust í Indónesíu og Eþíópíu, með þeim afleiðingum að 346 - allir um borð - létu lífið. Fyrra slysið var 29. október í fyrra en hið síðara 13. mars síðastliðinn.

Frá því seint í mars hefur verið í gildi alþjóðleg kyrr­setning á vélunum, á meðan rannsakað er hvað olli slysunum og hvort einhverjir gallar hafi verið í vélunum.

Nú þegar hefur verið staðfest að gallar voru í svonefndu MCAS kerfi sem vinnur gegn ofrisi. Þá hefur öll framleiðslu­lína Boeing verið uppfærð, og eru nú í gangi loka­yfirferðir á helstu framleiðslu­þáttum, að því er fram kemu í viðtalinu við Muilenburg.

Fyrir­tækið leggur nú kapp á að ljúka síðustu verk­þáttum og fá grænt ljós frá flugmála­yfirvöldum - bæði í Banda­ríkjunum og annars staðar í heiminum - áður en kyrr­setningu verður aflétt. Ekkert liggur þó fyrir um það enn, og Boeing mun þurfa að fá samþykki frá flugmála­yfirvöldum víða um heim áður vélarnar fara aftur í loftð.

Icelandair er eitt þeirra flug­félaga sem á mikið undir því að kyrr­setningunni verði aflétt. Félagið reiknar með að kyrr­setningunni verði aflétt í byrjun næsta árs, og þá geti félagið byrjað að fljúga farþegum með þeim.

Markaðs­virði Boeing er nú 214 milljarðar Bandaríkja­dala, en félagið hefur í gegnum tíðina verið eitt stærsta útflutnings­fyrirtæki Banda­ríkjanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár