Vilja láta reyna á ábyrgðartryggingar stjórnenda WOW air

Skuldabréfa­eigendur WOW air vilja láta reyna á ábyrgðar­tryggingar stjórn­enda WOW air á grund­velli þess að þeir hafi ekki fengið fullnægjandi upplýsingar í skuldabréfa­útboði flug­félagsins síðasta haust, samkvæmt heimildum Markaðsins.

Skuldabréfa­eigendur vilja láta reyna á ábyrgðar­tryggingar stjórn­endanna WOW air á grund­velli þess að þeir hafi ekki fengið fullnægjandi upplýsingar um fjárhags­stöðu félagsins og framkvæmd skuldabréfa­útboðs flug­félagsins síðasta haust. Talið er að minna en helmingur þeirrar fjárhæðar sem safnaðist í skuldabréfa­útboðinu hafi verið nýtt fjármagn. Yfirdráttar­láni WOW air hjá Arion banka var til að mynda breytt í skulda­bréf að sömu fjárhæð í útboðinu en sú skuld­breyting nam nærri tíu prósentum af heildar­stærð skuldabréfa­útgáfunnar. Frá þessu er greint í Markaðinum í dag.

Skuldbreyttu 550 milljóna yfirdráttarláni WOW

Samkvæmt heimildum Markaðarins hefur fulltrúi skuldabréfa­eigenda óskað eftir því að skipta­stjórar þrotabús WOW air veiti þeim upplýsingar um skilmála ábyrgðar­trygginga stjórn­enda flug­félagsins. Stjórnendurnir kunni að hafa bakað sér persónu­lega skaða­bótaskyldu á grund­velli þess að þeir hafi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar um skuldabréfaúboðið síðasta haust. Við þeirri beiðni hafi skipta­stjórarnir hins vegar ekki enn getað orðið að þar sem erlent trygginga­félag, sem WOW air hafði keypt stjórnenda­tryggingar af, hafi lagst gegn því að afhenda þau gögn sem óskað er eftir.

Skipta­stjórar þrota­búsins skoða jafnframt hvort að efni sé til riftunar á því samkomu­lagi sem Arion banki og WOW air gerðu með sér í fyrra um að breyta fimm milljóna dala yfirdráttar­láni í skulda­bréf að sömu fjárhæð í flug­félaginu í skuldabréfa­útboðinu. Bankinn lagði félaginu því ekki til neitt nýtt fjármagn heldur var um að ræða skuld­breytingu á kröfum. Ráðgjafa­fyrirtækið Deloitte hefur verið fengið þrota­búinu til aðstoðar til að kanna hvort að rifta eigi umræddu samkomu­lagi en ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum.

Talið er að minna en helmingur hafi í reynd verið nýtt fjármagn

Skuld­breytingin lánsins frá Arion banka nam tæplega tíu prósentum af stærð skuldabréfa­útgáfu WOW air en talið er að innan við helmingur þeirra 50 milljón evra sem söfnuðust í útboðinu var nýtt fjármagn en á þeim tíma var lausafjár­staða flug­félagsins afar slæm. Markaðurinn greinir frá því að margir þeirra fjárfesta sem lögðu félaginu til nýtt fjármagn séu afar óánægðir en félögin hefðu líklegast ekki lagt flug­félaginu til fjármagn ef þeim hefði verið kunnugt um að stærstur hluti fjár­hæðarinnar sem safnaðist í útboðinu hafði verið umbreyting á kröfum í skulda­bréf . Upplýsingar um slíkt hafi ekki legið fyrir þegar fjárfesta­kynningar voru haldnar eða þegar niður­stöður útboðsins voru kunn­gjörðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár