Hvers vegna dóu börn á bar?

Með­vit­und­ar­laus ung­menni á bar. Þannig hljóm­aði útkall til lög­reglu í borg­inni East London í Suður-Afríku aðfara­nótt sunnu­dags. Ýmsar sögur fóru á kreik. Var eitrað fyrir þeim? Og hvað í ósköp­unum voru ung­lingar – börn – að gera á bar?

Viðbragðsaðilar og vegfarendur á vettvangi aðfaranótt sunnudags. 22 unglingar létust á Enyobeni-kránni.
Við­bragðs­að­ilar og veg­far­endur á vett­vangi aðfara­nótt sunnu­dags. 22 ung­lingar lét­ust á Enyobeni-kránni. Mynd: EPA

Á Enyobeni í borg­inni East London í Suður-Afríku iðar oft­ast allt af lífi á kvöldin og fram á nótt. Það ætti ekki að koma á óvart, þetta er bar, þar sem fólk kemur saman til að fá sér drykk. Spjalla saman. Hlæja saman. Dansa. En það sem er óvenju­legt, og reyndar kolólög­legt, er að Enyobeni er vin­sæll sam­komu­staður ung­linga. Því þar hafa þeir geta keypt sér áfengi án þess að hafa aldur til.

Með­vit­und­ar­laus ung­menni í hrönnum, sagði í til­kynn­ingu til lög­regl­unnar um kl. 4 aðfara­nótt sunnu­dags. 22 þeirra lét­ust. Flest voru úrskurðuð látin á staðnum en tvö lét­ust á sjúkra­húsi. Meiri­hluti lát­inna eru stúlkur.

Suður-afrískir frétta­miðlar segj­ast hafa heim­ildir fyrir því að lög­reglan telji að ung­mennin hafi lát­ist úr kol­sýr­ingseitrun. Að kol­sýr­ing­ur­inn eigi upp­tök sín í bensín raf­stöð sem var í hús­næð­inu. Raf­stöðin hafi dælt eitr­uðu lofti yfir við­stadda. Þetta á enn eftir að stað­festa og eiga nið­ur­stöður krufn­inga að liggja fyrir á næstu dögum.

Hin látnu voru á aldr­inum 13-17 ára.

Á laug­ar­dags­kvöldið voru tugir ung­menna sam­an­komin til að skemmta sér á Enyobeni-barnum. Gleð­skap­ur­inn stóð langt fram á nótt. Nokkrir sem voru á staðnum og hafa rætt við fjöl­miðla segja að á ein­hverju tíma­bili hafi raf­magnið farið af bygg­ing­unni.

Það er ekki óal­gengt. Rafmagn er víða ótryggt í Suður-Afríku. Þess vegna eru margir með vara­afl, raf­stöðvar, til að bregð­ast við. Þannig kann að standa á því að bens­ínknúna raf­stöðin á Enyobeni-barnum fór í gang.

Rétt­ar­meina­fræð­ing­ur­inn Solomon Zondi, sem tók við líkum ung­menn­anna til rann­sóknar og rann­sak­aði einnig vett­vang­inn, segir við frétta­mið­il­inn Mail and Guardian að gaseitrun sé mögu­leg dán­ar­or­sök. Ákveðin lykt af hinum látnu beri það með sér auk þess sem áverkar á þeim bendi einnig til þess.

Yfirvöld segj­ast hafa sett helstu sér­fræð­inga lands­ins í að rann­saka málið. Sent þá frá höf­uð­borg­inni Pretoríu til að velta við öllum steinum. Suður-afríska þjóðin er í áfalli eftir upp­á­kom­una og vill skýr svör og það sem fyrst. Rann­sókn­ar­gögn hafa svo verið send á bestu rann­sókn­ar­stofur lands­ins, að sögn ráða­manna.

En hvað voru öll þessi börn að gera á skemmti­stað langt fram á nótt?

Suður-afrískir fjöl­miðlar segja þau mörg hver hafa verið lokkuð þangað með lof­orði um ókeypis áfengi, ókeypis þráð­laust net og mynda­tökum. Íbúar Senery Park-hverf­is­ins, þar sem Enyobeni-krána er að finna, eru fátækir, meðal þeirra fátæk­ustu á þessum slóðum. Í hverf­inu er að finna ódýrt, félags­legt hús­næði og kofa. Kofa þar sem oft er hvorki raf­magn né renn­andi vatn. Og þessar aðstæður geta gera boð um að kom­ast í ókeypis net­sam­band ómót­stæði­legt fyrir ung­linga.

„Börnin í þessu hverfi hafa ekk­ert við að vera því það er ekk­ert í boði fyrir þau,“ sagði Nomthunzi Mbiko, tals­maður íbúa­sam­taka, á íbúa­fundi eftir harm­leik­inn. Börn hefðu engan stað til að hitt­ast á. Þess vegna fari þau að neyta áfengis og hanga á krám fram á nótt. „Borgin verður að gera almenn­ings­garða og fjár­festa í íþrótta­mann­virkjum,“ sagði Mbiko, „svo að börnin okkar geti stundað íþróttir í stað þess að vera á krám.“

Borg­ar­yf­ir­völd hafa lofað fjöl­skyldum fórn­ar­lambanna ókeypis graf­reit fyrir látin börn sín. Mbiko segir aðstoð­ina allt of litla. „Þetta er óásætt­an­legt. Við munum fara hús úr húsi og meta þarfir fjöl­skyld­anna og afhenda yfir­völdum svo að þau geti brugð­ist við með við­eig­andi hætti. Það verður að veita fjöl­skyld­unum fjár­hags­að­stoð.“

Mbiko er ekki hrædd við að tala opin­skátt. Hún gagn­rýnir yfir­völd í borg­inni sem og land­inu öllu fyrir að setja upp leik­rit í kringum rann­sókn­ina sem verði þegar upp er staðið „gagns­laus“. Yfirvöld séu spillt og nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar verði það líka.

Segja líkum hafa verið hent út

„Við stukkum niður af svöl­unum því dyrnar voru læstar,“ hafa þrjú ung­menni sem lifðu þessa nótt á barnum af, sagt við fjöl­miðla. Að ekki hafi verið um slys að ræða heldur „vel skipu­lagt morð“. Þegar gestir fóru að hósta og eiga erfitt með að ná and­anum hafi ekki verið hægt að kom­ast út. Að dyra­verðir hafi kastað líkum út og svo læst svo að þeir sem inni voru komust hvergi.

Rétt­ar­meina­fræð­ing­ur­inn Zondi hefur aðrar skýr­ingar á því hvers vegna líf­vana fólki var hent út. Dyra­verðir hafi verið að reyna að koma þeim út undir ferskt loft.

„Börnin dóu vegna eitr­unar,“ sagði Zondi í við­tölum í gær. Hvernig þau komust í tæri við eitrið sé hins vegar enn ekki ljóst. Sögur hafa verið á kreiki um að eit­ur­efni hafi verið sett í vatns­pípur sem gestir krár­innar voru að reykja. Eða í drykki sem þeim var boðið upp á. Ókeypis.

Ekkert slíkt hefur verið stað­fest.

Hann vill róa landa sína. Þar með talið Mbiko. „Ég get full­vissað alla Suður-Afr­íku­menn um að allir eru að taka málið alvar­lega. Þetta er umfangs­mikil rann­sókn á harm­leik. Við viljum vita allt sem gerð­ist. Við vinnum með lög­regl­unni. Við erum ekki að vinna hvert í sínu horni, þetta er sam­vinna. Það verða svo við, rétt­ar­meina­fræð­ing­arnir, sem munum gefa út end­an­lega nið­ur­stöðu rann­sókna á dán­ar­or­sök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár