Kalla eftir því að ráðherra undirriti reglugerð sem heimilar slit á félögum sem fyrst

Fimm ár eru síðan að ákvæði var sett í lög sem heimilaði slit á þeim félögum sem skiluðu ekki ársreikningi innan ákveðins tíma. Það hefur aldrei verið virkt þar sem reglugerð skorti. Umsagnar­ferli um slíka reglugerð lauk fyrir tveimur vikum.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er ráðherra málaflokksins.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir er ráð­herra mála­flokks­ins. Mynd: RÚV/Skjáskot

Samband íslenskra sveitar­félaga skilaði í síðasta mánuði inn umsögn um drög að reglugerð atvinnu­vega- og nýsköpunar­ráðuneytisins sem heimilar árs­reikn­inga­skrá skatts­ins að slíta félögum sem hafa ekki skilað árs­reikn­ingum 14 mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lýk­ur. Þar kemur fram að sambandið geri ekki athuga­semdir við reglu­gerðina en hvetji til „þess að ráðherra undirriti reglu­gerðina sem fyrst svo ekki verði frekari tafir á mögu­leikum ársreikninga­skrár til að krefjast slita á félögum er ekki hafa skilað inn ársreikningi.“

Reglu­gerðin var birt í samráðs­gátt stjórn­valda í september í kjölfar umfjöllunar Kjarnans um að ákvæði sem heimilar slit á félögum sem sinna ekki lög­bund­inni skila­skyldu á árs­reikn­ingum sé ekki virkt þrátt fyrir að hafa verið í lögum frá árinu 2016. Ástæðan er sú að það ráðu­neyti sem stýrir mála­flokkn­um, sá hluti atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins sem heyrir undir Þór­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dótt­ur, hafði ekki gefið út reglu­gerð sem virkjar það. Ákvæðið var því óvirkt í lögum í fimm ár og því hefur aldrei verið beitt.

Drögin voru til umsagnar til 20. september. Þrátt fyrir að tvær vikur séu síðan að umsagnar­ferlinu lauk hefur reglu­gerðin ekki verið auglýst í Stjórnar­tíðindunum, líkt og þarf til að hún taki gildi. Kjarninn sendi fyrir­spurn á ráðuneytið til að spyrjast fyrir um af hverju og í svari þess kemur fram að reglu­gerðin hafi þegar verið send til birtingar, en að það geti tekið 2-3 vikur fyrir hana að birtast þar.

Mikill samfélagslegur skaði af skattsvikum

Í umsögn sambands íslenskra sveitar­félaga er rifjuð upp skýrsla starfs­hóps

um umfang skatt­undanskota og tillögur til aðgerða frá 20. júní 2017. Í þeirri skýrslu var áætlað að umfang skatts­vika hérlendis væri á bilinu 3-7 prósent af lands­framleiðslu eða tíu prósent af heildar­tekjum hins opinbera á þeim tíma. Sam­fé­lags­legt tap hér á landi var metið á bil­inu 1-6 millj­arða íslenskra króna á hverju ári.

Þegar tillögur til aðgerða voru kynntar af þáverandi fjármála- og efnahags­ráðherra Benedikt Jóhannessyni sagði hann að með aðgerðunum, sem höfðu meðal annars þau markmið að lágmarka skattsvik og milli­verð­lagningu, væri skattsvik­urum sagt „stríð á hend­ur“. Þrátt fyrir það hefur lítið þokast í stórum aðgerðum til að taka á skatts­vikum hérlendis síðan að þessi blaðamanna­fundur var haldinn um mitt ár 2017.

Samband íslenskra sveitar­félaga sagði í umsögn sinni að þegar ársreikninga­skrá var veitt heimild til að slíta félögum árið 2016, sem þó hefur aldrei öðlast virkni, hafi komið fram í greinar­gerð að markmiðið með þeirri heimild væri að auka gagnsæi í viðskiptum, þ.m.t. að sporna við kennitölu­flakki og bæta skil ársreikninga. „Kennitölu­flakki fylgir gífur­legur kostnaður fyrir ríki, sveitar­félög, lífeyris­sjóði, stéttar­félög, launafólk og önnur fyrirtæki og félaga­samtök. Því er mikilvægt að allra leiða sé leitað til að hindra kennitölu­flakki en eitt af þeim verkfærum er að fara fram á slit á félögum ef þau skila ekki ársreikningi. Þannig eru auknar líkur á því að hægt sé að koma í veg fyrir að verðmæti séu tekin úr félaginu og færð í annað félag svo dæmi sé nefnt.“

Hægt að sekta félög um 600 þús­und krónur

Það hefur lengi verið vanda­mál að fá íslensk félög til að skila árs­reikn­ingum inn til Skatts­ins á réttum tíma. Sam­kvæmt lögum á að skila slíkum átta mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lýk­ur, en í flestum til­fellum rennur sá frestur út 1. sept­em­ber á ári hverju. Árið 2007 höfðu ein­ungis 15,4 pró­sent félaga í land­inu sem áttu að skila inn árs­reikn­ingi gert það á réttum tíma.

Árið 2016 voru inn­leidd í lög við­ur­lög við því að skila ekki inn árs­reikn­ingi á réttum tíma. Ann­ars vegar átti að vera hægt að sekta félög um 600 þús­und krónur ef þau skil­uðu ekki innan átta mán­aða og hins vegar átti að vera hægt að slíta þeim ef árs­reikn­ingar hefðu enn ekki borist sex mán­uðum eftir að átta mán­aða frest­ur­inn rann út, eða 14 mán­uðum eftir að reikn­ings­ári lauk.

Fyrir flest félög er 600 þús­und króna sekt ekki erfið viður­eignar og því lá ljóst fyrir að hótun um slit á félagi myndi virka sem meiri hvati til skila en sekt­ar­greiðsl­an.

Kjarn­inn spurði Skatt­inn að því í ágúst 2021 hversu oft stofn­unin hefði beitt ákvæð­inu um slit á félagi frá því að það var leitt í lög fyrir fimm árum. Í svari stofn­un­ar­innar kom fram að það hefði aldrei verið gert þar sem ákvæðið væri í raun óvirkt. Ástæð­an: ráðu­neytið sem stýrir mála­flokknum hafði aldrei sett reglu­gerð sem virkj­aði það.

Þegar Kjarn­inn leit­aði skýr­inga hjá ráðu­neyt­inu feng­ust þau svör, í síð­ustu viku, að unnið hefði verið að gerð reglu­gerðar um nokk­urt skeið í sam­starfi við Skatt­inn og að hún væri á loka­metr­un­um. Í svör­unum sem Skatt­ur­inn sendi Kjarn­anum um málið í ágúst kom ekk­ert fram um að hann hefði unnið að gerð reglu­gerðar í sam­starfi við ráðu­neyt­ið.

Fá frest eftir að frest­ur­inn er lið­inn

Í drög­unum að reglugerð sem birt voru í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í byrjun september kom fram að þegar 14 mán­aða frest­ur­inn er lið­inn muni árs­reikn­inga­skrá senda til­kynn­ingu til við­kom­andi félags, þar sem veittur verður fjög­urra vikna frestur til þess að skila árs­reikn­ingi eða eftir atvikum sam­stæðu­reikn­ingi sem upp­fyllir kröfur laga. Ekki verða veittir frek­ari frestir af hálfu árs­reikn­inga­skrár.

Ef þessi loka­frestur er virtur að vettugi mun árs­reikn­inga­skrá senda hér­aðs­dómi beiðni um að félag verði tekið til skipta.

Dóm­ari mun svo meta fram­lagða kröfu og taka ákvörðun um með­ferð henn­ar. „Ef stjórn félags eða fram­kvæmda­stjóri mætir til fyrstu fyrirtöku getur dóm­ari orðið við beiðni félags um allt að tveggja mán­aða frest á með­ferð kröfunnar[...]Ef full­nægj­andi árs­reikn­ingi og sam­stæðu­reikn­ingi ef við á, er skilað til árs­reikn­inga­skrár eftir að krafa um skipti hefur komið fram en áður en úrskurður um skipti er kveð­inn upp, aft­ur­kallar árs­reikn­inga­skrá kröfu um skipti á félagi. Skil­yrði aft­ur­köll­unar kröfu um skipti, er að félag hafi greitt allan kostnað vegna skipta, sem og álagða sekt vegna van­rækslu á réttum skilum árs­reikn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár