Hvernig varð Katar að einangruðu ríki?

Viðskipta­bann níu Mið-Austurlanda­ríkja við Katar hefur nú staðið yfir í rúman mánuð. Hvers vegna var því komið á og hverjir bera ábyrgð á því?

Sádí-Arabar eru leiðandi í viðskiptabanni við Katar.
Sádí-Arabar eru leið­andi í við­skipta­banni við Katar.

Viðskipta­bann hefur ríkt milli Katar og níu annarra ríkja í Mið-Austur­löndum undan­farnar vikur. Bandarískir fjöl­miðlar sökuðu Sameinuðu arabísku fursta­dæmin um að hafa leitt til bannsins með því að hakka sig inn á heima­síður katarskra yfirvalda, en fursta­dæmin höfnuðu ásökununum í dag. En um hvað snýst bannið í raun og veru?

Þann fimmta júní síðastliðinn settu Sádí Arabía, Sameinuðu arabísku fursta­dæmin, Egypta­land og Bahrain á viðskipta­bann við Katar. Ástæða bannsins var sögð vera meintur fjár­stuðningur og hýsing hryðjuverka­hópa, til dæmis Al-Quaeda og Múslímska bræðra­lagið. Tveimur dögum seinna settu svo fimm önnur ríki í heims­hlutanum á viðskipta­bann við landið. Katörsk yfirvöld hafa neitað ásökunum og segja þær raka­lausar.

Vinir Írans

Þótt stuðningur við hryðju­verkamenn sé opinbera skýring viðskipta­bannsins hafa stjórnmála­skýrendur bent á aðrar flóknari ástæður, til dæmis meint náið samband Katar við óvinaríki Sádí-Arabíu. Tveimur vikum fyrir bannið lokuðu stóru ríkin í Persaflóa fyrir útsendingar katarskra sjónvarps­stöðva, þeirra á meðal Al Jazeera, vegna vinalegra ummæla í garð Írans og Ísraels.

Þar var haft eftir emírnum af Katar, Sjeik Tamin Al Hamad Al Thani, að Íran væri íslamskt veldi og að samband Katara við Ísraela væri gott.


Í kjölfar lokun útsendinganna svöruðu Yfirvöld í Katar að umræddar fréttir væru falsaðar, sjónvarps­stöðvar og heima­síður þar í landi hafi orðið fyrir tölvu­árásum. Þetta staðfesti Washington Post svo þann 6. Júní, en í frétt þeirra kemur fram að tölvuárás hafi verið framkvæmd og að Sameinuðu arabísku fursta­dæmin hafi staðið að baki þeim.

Í dag neituðu svo yfirvöld í fursta­dæmunum ásökunum Washington Post en Anwar Gargash, utan­ríkis­ráðherra þeirra, kallaði fréttina „hreinlega ranga“ í ræðu sem hann hélt hjá bresku hugveitunni Chatham House í London í dag.

Viðbrögð Vesturlanda

Banda­ríkin hafa löngum verið mikil­vægur banda­maður Sádí-Arabíu, en í nýlegri ræðu sagði Bandaríkja­forseti Íran, höfuðóvin Sáda, vera stærstu ógn Mið-Austur­landa. Í kjölfar viðskipta­bannsins vildi hann einnig meina að hann hafi átt óbeinan þátt í því, ef marka má uppfærslu hans á Twitter:

Efnahagsleg áhrif deilunnar í Persaflóa hafa hins vegar ekki enn verið greinileg á Vestur­löndum, en víða var óttast um að olíuverð myndi hækka í kjölfar þeirra. Það hefur ekki gerst, en frá 5. Júní til 17. Júlí hefur heims­markaðsverð olíu lækkað um 3%.

Herða skrúfurnar

Óvíst er hvernig fram­haldið verður, en CNN hefur kallað málið eina stærstu stjórnmála­krísu Mið-Austur­landa síðustu ára. Fyrir tveimur vikum síðan virtist sem vísir að samninga­viðræðum væri að myndast, en þá gáfu Persaflóa­ríkin Katar auka tíma til að verða við kröfum þeirra. Í ræðu sinni hjá Chatham House gaf Gargash hins vegar í skyn að vænta mætti frekari refsiaðgerða, mögulega brott­vísun úr stjórnmála­samstarfi Persaflóa­ríkjanna.

„Við munum herða skrúfurnar eitthvað meira,“ sagði Gargash í nýlegu viðtali tengdu ræðunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár