Icelandair í hlutafjáraukningu í annað sinn á innan við ári

Icelandair Group ætlar að sækja sér átta milljarða króna í viðbót með því að selja nýtt hlutafé til bandarísks fjár­festinga­sjóðs. Félagið sótti sér síðast nýtt hlutafé í september í fyrra. Tap Icelandair á árinu 2020 var 51 milljarður króna.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group
Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group Mynd: Skjáskot/RÚV

Icelandair Group hefur gert bindandi samkomulag við bandaríska fjár­festingar­sjóðinn Bain Capital um að hann kaupi nýtt hlutafé í flug­félaginu. Samkvæmt samkomu­laginu, sem enn á eftir að samþykkja á hluthafa­fundi áður en það verður að veruleika, mun Bain Capital greiða 8,1 milljarð króna og eignast fyrir vikið 16,6 prósent hlut í Icelandair Group. Það þýðir að Bain Capital er að greiða aðeins lægra verð á hlut, 1,43 krónur, en virði bréfa í Icelandair Group var í lok dags í gær, þegar greiða þurfti 1,46 krónur á hlut fyrir bréf í félaginu. Núverandi hluthafar þurfa að falla frá forgangs­kauprétti á nýju hlutafé eigi samkomu­lagið að verða að veruleika.

Verði þetta samkomulag samþykkt á hluthafa­fundi mun Bain Capital verða stærsti einstaki eigandi Icelandair Group og fá fulltrúa í stjórn Icelandair. Úlfar Steindórsson, sem verið hefur stjórnar­formaður Icelandair Group undan­farin ár, mun stíga til hliðar sem slíkur ef hlutafjár­aukningin verður samþykkt af öðrum hluthöfum.

Til viðbótar gerir samkomu­lagið ráð fyrir því að Bain Capital, sem var meðal annars stofnað af fyrr­verandi forseta­fram­bjóðandanum og núverandi öldundardeildarþingmanninum Mitt Romney, fá áskriftar­réttindi fyrir hlutum sem samsvara 25 prósent af heildar­fjölda þeirra nýju hluta sem gefnir verða út. Bain Capital á eignar­safn sem er metið á 130 milljarða Bandaríkja­dala.

Í tilkynningu til Kaup­hallar Íslands vegna þessa segir að heimildin gildi í tíu daga frá og með birtingu uppgjörs Icelandair Group fyrir annan ársfjórðung, en honum lýkur í enda yfir­standandi mánaðar. „Áskriftar­réttindin veita Bain heimild, en ekki skyldu, til kaupa á nýjum almennum hlutum í félaginu á sama gengi á hvern hlut að viðbættum 15 prósent ársvöxtum.“

Sóttu síðast nýtt hlutafé í september í fyrra

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Icelandair Group fer í hlutafjár­aukningu. Félagið safnaði alls 23 milljörðum króna í útboði sem fór fram í september í fyrra, en það hefur átt í miklum rekstrar­vanda um árabil sem jókst verulega þegar kórónu­veiru­faraldurinn skall á í fyrravor. Fjöldi hluthafa fór yfir ellefu þúsund eftir útboðið og því ljóst að fjölmargir einstaklingar keyptu fyrir litlar fjárhæðir í því.

Alls nam tap sam­stæð­unnar um 45 millj­örðum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Stærstan hluta þess taps, sem nemur 245 millj­ónum króna á dag, má rekja beint til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Fyrir lá að félagið átti ekki nægt laust fé til að lifa mikið lengur við óbreyttar aðstæður. Tap Icelandair á árinu 2020 í heild var 51 milljarður króna og á fyrstu þremur mánuðum ársins 2021 tapaði félagið 3,9 milljörðum króna.

Eigið fé Icelandair Group nam 29,7 milljörðum króna í lok síðasta árs árs og eiginfjár­hlutfall lækkaði úr 29 prósent í 25 prósent frá fyrra ári. Lausafjár­staða félagsins nam 42,3 milljörðum króna. Hún lækkaði um 6,5 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi 2021 og eiginfjár­hlutfallið var komið niður í 23 prósent í lok mars.

Hluthafar þynntir niður...aftur

Í aðdrag­anda hlutafjár­útboðsins samþykkti íslenska ríkið að gangast í ábyrgð fyrir 90 prósent af 16,5 milljarða króna lánalínu til Icelandair Group. Sú ríkis­ábyrgð var samþykkt á Alþingi í ágúst.

Í útboðinu í fyrra, þar sem hlutir voru seldir á eina krónu, var hlutafé aukið það mikið að þeir sem áttu hlutafé í Icelandair Group áður þynntust niður í 15,3 prósent. Hluti þeirra tók aftur þátt í útboðinu og varði eign sína að hluta eða öllu leyti.

Verði samkomu­lagið við Bain Capital samþykkt munu núverandi hluthafar þynnast niður í 83,4 prósent hlut, níu mánuðum eftir að þeir keyptu nýtt hlutafé í félaginu.

Tilkynnt ofan í útboð Play

Tilkynning Icelandair Group um hlutafjár­aukninguna var send út kvöldið áður en að hlutafjár­útboð flug­félagsins Play hófst. Stefnt er að því að safna 4-4,4 milljörðum króna og skrá félagið, sem verður helsti samkeppnis­aðili Icelandair Group hérlendis, í kjölfarið á First North markaðinn.

Þess utan fer fyrsta flugvél Play í loftið í dag og flýgur með farþegar til London.

Í útboðs­lýsingu félagsins kemur fram að þessi fjár­mögnun muni hjálpa lausafjár­stöðu þess enn frekar, en Play segist nú þegar hafa náð að safna tæpum sjö milljörðum króna í fjár­mögnun.

Búist er við að almenn viðskipti með hluti í Play hefjist föstu­daginn 9. júlí.

Í útboðs­lýsingu segir að Play búist við því að selja selja jafnmörg sæti og WOW air gerði árið 2017 innan fjögurra ára. Það stefnir á að hefja flug til Banda­ríkjanna næsta vor, en mun halda starfsmanna­kostnaði í lágmarki með því að láta starfs­menn sína vinna lengur en starfs­menn annarra flug­félaga og taka færri frídaga en starfs­menn WOW air tóku.

Hægt er að lesa frétta­skýringu Kjarnans um útboðið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár