Borga 35 milljarða í arð af bankastarfsemi

„Telst afar gott,“ segir formaður bankaráðs um gríðar­legan hagnað af vaxtamun. Lands­bankinn græddi 104 milljónir á hverjum degi ársins.

Lilja Björk Einarsdóttir
Lilja Björk Ein­ars­dóttir Banka­stjóri Lands­bank­ans skil­aði nið­ur­stöðu í fyrra sem telst góð á mæli­kvaðra nágranna­ríkja Íslands. Mynd: Aðsend

Aðal­fundur Lands­bankans sem haldinn var í nýjum höfðustöðvum bankans í dag samþykkti að greiða samtals 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa á árinu 2026. 

Hagnaðurinn í fyrra var 38 milljarðar króna, sem „telst afar gott, bæði í saman­burði við innlenda banka og banka í nágranna­ríkjunum,“ eins og Jón Þorvarður Sigur­geirsson, formaður bankaráðs, í skýrslu þess á fundinum.

Arðsemi eigin fjár var 11,6% og kostnaðar­hlutfallið 34,3%.

Bankinn hagnaðist fyrst og fremst á vaxtamun í fyrra. Hreinar vaxta­tekjur á árinu 2025 náum 62,1 milljarði króna og hreinar þjónustu­tekjur 12,6 milljarðar króna. Í dag tilkynnti peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands um hækkun stýri­vaxta um 0,25% upp í 7,5% eftir langt lækkunar­skeið.

Til að setja hagnað Lands­bankans í fyrra í samhengi má benda á að hann var 104 milljónir króna á dag, 4,3 milljónir á hverja klukku­stund ársins og 72 þúsund krónur á mínútu nótt sem dag.

Eigendur Lands­bankans eru um það bil 800 talsins, þar af er ríkis­sjóður stærsti eigandinn með 98,2%

Jón Þorvarður varaði við áhrifum stríðs­átaka og mikilli óvissu á fjármála­mörkuðum, en benti á að íslenska fjármála­kerfið stæði traustum fótum. 

„Að mínu mati markaði síðasta ár tímamót þegar lánshæfismat bankans hjá S&P var hækkað í apríl úr B-flokki í A-flokk fyrst íslenskra banka í nær 20 ár,“ sagði hann.

Þá boðaði hann að endur­hvarf frá þeirri stefnu að loka útibúum banka.

„Fyrir fáum árum gekk yfir bylgja þar sem útibúum banka var lokað í stórum stíl. Lands­bankinn tók seint þátt í þeirri bylgju og nú virðist svo sem hún sé víða að fjara út. Raunar hafa sumir erlendir bankar, til dæmis í Banda­ríkjunum, boðað fjölgun útibúa á ný til að vera nær viðskipta­vinum sínum,“ sagði Jón Þorvarður í skýrslu bankaráðs.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Þessi arðgreiðsla (ef árleg) getur einungis verið sanngjörn ef eigendurnir 800 hafi sett 349 miljarða eða meira inn í fyrirtækið. Það myndi þá jafngilda 10% ársávöxtun sem er það sem hagfræðingar telja vera hæðstu sanngjörnu ávöxtunarkröfuna.
    Það væri nú fróðlegt að vita hversu mikið eigendurnir eru búnir að setja inn í fyrirtækið. Það er að segja hversu mikið hlutafé hefur farið í bankan frá frumfjárfestunum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár