64 starfsmenn SÁÁ undirrita vantraustsyfirlýsingu: „Staðan er mjög alvarleg“

Starfs­menn SÁÁ undirrita vantrausts­yfirlýsingu á hendur formanni SÁÁ og framkvæmda­stjóra.

Höfuðstöðvar SÁÁ
Höf­uð­stöðvar SÁÁ Mikill styr stendur nú um stjórn SÁÁ.

Rúmlega sextíu starfs­menn SÁÁ hafa undir­ritað vantrausts­yfirlýsingu á hendur formanni SÁÁ og framkvæmda­stjóra samtak­anna. Áður höfðu forstjóri SÁÁ, Ragn­heiður Hulda Friðriks­dóttir og Þóra Björk Ingólfs­dóttir, fagstjóri meðferðar­stöðvarinnar Víkur, sagt upp störfum í ágúst vegna óánægju með stjórnina og ásakana um að stjórnin væri að hafa óeðlileg afskipti af faglegu starfi SÁÁ.

„Staðan er bara mjög alvarleg,“ segir Helga Katrín Jóns­dóttir, læknir hjá SÁÁ, í samtali við Heimildina. Hún undir­ritar vantrausts­yfir­lýsinguna, ásamt 64 starfs­mönnum SÁÁ.

RÚV greindi frá því í byrjun september að Valgerður Rúnars­dóttir, fráfar­andi framkvæmda­stjóri lækninga hjá SÁÁ, gagnrýndi stjórn SÁÁ fyrir afskipti af faglegu heilbrigðis­starfi samtak­anna, og sagði slíkt óviðunandi. Hún treysti sér ekki til að vinna faglegt heilbrigðis­starf undir nýjum utan­aðkomandi forstjóra og hafði einnig sagt upp störfum.

Í vantrausts­yfir­lýsingunni segir: „Sú alvarlega staða sem nú er komin upp innan SÁÁ verður að okkar mati ekki skýrð sem eðlilegar breytingar í stjórnun eða einstök …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár