Sitjandi dómari við Landsrétt metinn hæfastur til að verða skipaður í Landsrétt

Dómnefnd um hæfi umsækj­enda um lausa stöðu í Lands­rétti telur að Ásmundur Helgason standi öðrum umsækj­endum framar og sé hæf­astur til að gegna emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt. Hann er þegar dóm­ari við rétt­inn, en hefur ekki starfað þar í rúmt ár.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra mun skipa í embættið.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra mun skipa í emb­ættið. Mynd: Bára Huld Beck

Dómnefnd um hæfi fjög­urra umsækj­enda um skipun í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt hefur kom­ist að þeirri

nið­ur­stöðu að Ásmundur Helgason

sé hæf­astur umsækj­enda. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra mun nú taka ákvörðun um skip­un­ina með hlið­sjón af nið­ur­stöðu dóm­nefndar.

Fjórir sóttu um stöð­una: Ásmundur og Ragn­heiður Braga­dótt­ir, sem eru bæði dóm­­­arar við Lands­rétt, Sandra Bald­vins­dóttir, settur dóm­ari Í Lands­rétti, og Ástráður Har­alds­son, hér­aðs­dóm­ari.

Ásmundur og Ragn­heiður voru bæði á meðal þeirra fjög­urra ein­stak­linga sem voru ekki metin á meðal 15 hæf­ustu í hæfn­is­mati dóm­nefndar þegar dóm­arar voru upp­haf­lega skip­aðir í Lands­rétt í aðdrag­anda stofn­unar hans, en voru samt sem áður skipuð í emb­ætti við rétt­inn. Það gerð­ist eftir að Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­­­mála­ráð­herra, ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­­­­­­nefndar og til­­­­­­­­­­­nefna fjóra ein­stak­l­inga dóm­­­­­­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­­­­­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­­­­­­ustu. Alþingi sam­­­­­­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Í kjöl­farið hafa íslenskir dóm­stólar úrskurðað að Sig­ríður hafi brotið stjórn­sýslu­lög með atferli sínu. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­dóm­­­stóll Evr­­­ópu að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­­ar­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­með­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­mála­ráð­herra.

Áskildi sér rétt til að höfða dómsmál

Ást­ráður var einn þeirra fjög­­­urra sem urðu af dóm­­­ara­­­sæti vegna þessa en dóm­nefnd hafði metið hann á meðal 15 hæf­ustu. Kjarninn greindi frá því 24. jan­úar síð­ast­lið­inn að hann hefði til­kynnt dóms­mála­ráð­herra með bréfi að hann áskildi sér rétt til að láta reyna á það fyrir dóm­stólum ef þegar skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt verði skip­aðir í lausa stöðu við rétt­inn.

Í bréf­inu sagði að það væri að mati Ást­ráðs aug­ljós hætta á því að ef umsókn skip­aðs Lands­rétt­ar­dóm­ara væri talin gild og myndi svo leiða til nýrrar skip­unar umsækj­and­ans í emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara gætu þeir sem svo kysu látið á það reyna hvort slík skipun teld­ist lög­mæt.

Með slíkri skipan væri í raun verið að gera til­raun til að lög­helga eftir á skipun dóm­ara sem þegar hefði verið metin ólög­mæt. „Ég tel tals­verðar líkur á að nið­ur­staða dóm­stóla yrði sú að slík skipan stæð­ist ekki. Það væri, svo vægt sé til orða tek­ið, í ljósi for­sög­unn­ar, afar óheppi­legt bæði fyrir dóms­kerfið og umsækj­and­ann ef það yrði nið­ur­stað­an. Slíkur fram­gangur væri auk þess til þess fall­inn að draga á lang­inn ríkj­andi réttaró­vissu um fram­tíð­ar­skipan Lands­réttar og fæli í sér afar sér­kenni­leg skila­boð inn í yfir­stand­andi mála­rekstur fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evr­ópu. Ég tel raunar að Lands­réttur megi illa við frek­ari slíkum skakka­föll­u­m.“

Í umsögn dóm­nefndar nú kemur fram að dóms­mála­ráðu­neytið hafi tekið sér­stak­lega til athug­unar hvort lög stæðu í vegi fyrir því að umsóknir Ásmundar og Ragn­heiðar, sem þegar hafa skipun í Lands­rétt, yrðu teknar til með­ferðar. Nið­ur­staða ráðu­neyt­is­ins var sú að svo væri ekki. Því lagði dóm­nefndin mat á hæfi allra umsækj­end­anna. Kjarninn greindi frá því í byrjun febr­úar að lög­fræð­ingar innan dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins hefðu fram­kvæmt athug­un­ina. Ekki var leitað álits utan­að­kom­andi sér­fræð­inga.

Ásmundur bar af í gæðum við samningu dóma

Ásmundur hefur ekki sinnt Lands­dóm­ara­störfum í rúmt eitt ár, eða frá því að dómur Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu féll. Störf hans sem Lands­rétt­ar­dóm­ari eru hins vegar metin þegar tekin er saman reynsla af dóm­störfum sem vigta inn í nið­ur­stöðu dóm­nefndar um hæfi, enda hafði hann starfað við rétt­inn frá byrjun árs 2018.

Einn liður sem dóm­nefndin skoð­aði sér­stak­lega var almenn starfs­hæfni og and­legt atgervi. Þar skil­uðu umsagn­ar­að­ilar sem umsækj­endur höfðu til­nefnt umsögn um þá. Í til­felli Ásmundar veittu tveir aðilar umsögn: Hervör Þor­valds­dóttir, for­seti Lands­réttar, og Aðal­steinn E. Jónasson lands­rétt­ar­dóm­ari.

Dóm­nefndin lagði líka sér­stakt mat á færni umsækj­enda við að semja dóma. Í dómum Hæsta­réttar í des­em­ber 2017, þar sem skipun fjög­urra dóm­ara við Lands­rétt í júní 2017 var dæmd ólög­mæt, kom fram að það væri ann­marki á umsögn dóm­nefndar þá að ekki var sér­stak­lega lagt mat á þá færni.

Nið­ur­staða þess mats var að dóms­úr­lausnir Ásmundar „beri af í gæðum, hvort sem horft er til skýr­leika og mál­fars, reif­unar máls­at­vika, ágrein­ings­efna og máls­á­stæðna, og loks rök­stuðn­ings fyrir nið­ur­stöðu á grund­velli sönn­unar- og laga­at­riða“. Næst honum kom Ragn­heiður, svo Sandra og loks Ástráður.

Sam­an­dregið var það mat nefnd­ar­innar, eftir að hafa lagt heild­rænt mat á menntun og reynslu umsækj­enda, að Ásmundur stæði öðrum umsækj­endum framar. Hann væri því hæf­astur umsækj­enda til að gegna emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár