Sandra og Ása settar dómarar við Landsrétt

Dóms­mála­ráð­herra hefur ákveðið að setja tvö af þeim þremur umsækj­endum sem metnir voru hæf­astir til að gegna emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt í emb­ætti við rétt­inn. Nið­ur­staða dóm­nefndar tók breyt­ingum frá því að hún lá fyrir í drögum og þar til hún var birt.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra setti tvo dómara við Landsrétt í dag.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra setti tvo dóm­ara við Lands­rétt í dag. Mynd: Bára Huld Beck

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur ákveðið að setja þær Ásu Ólafs­dóttur pró­fessor og Söndru Bald­vins­dóttur hér­aðs­dóm­ara í tvo emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt sem aug­lýst voru laus til umsóknar 20. des­em­ber 2019, sam­kvæmt frétt á vef dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Ása hefur verið sett í emb­ætti frá 25. febr­úar til 30. júní 2020 og Sandra frá 2. mars til 30. júní 2020.

Dómnefnd hafði metið Ásu hæf­asta umsækj­enda um emb­ættin en Söndru og Ástráð Har­alds­son hér­aðs­dóm­ara næst á eftir henni. Því situr Ástráður eftir úr þriggja manna hópnum.

Samkvæmt gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum þá var nið­ur­staðan dóm­nefndar, þegar drög að umsögn hennar voru send á umsækj­endur 3. febr­úar síð­ast­lið­inn önnur en end­an­leg nið­ur­staða hennar. Í drög­unum eru Ása og Ástráður metin hæfust til að verða sett í emb­ætti. Átta dögum síðar, 11. febr­úar, eftir að umsækj­endum gafst færi á and­mælum, hafði Sandra hins vegar líka verið metin á meðal þeirra hæf­ustu.

Sandra og Ástráður voru bæði á meðal þeirra sem sóttu um emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara í aðdrag­anda þess að dóm­stigið tók til starfa. Þá voru 15 dóm­arar skip­aðir og taldi dóm­nefnd að Ástráður væri á meðal þeirra 15 hæf­ustu. Hann lenti, nánar til­tekið, í 14. sæti á lista nefnd­ar­innar en Sandra var í 22. sæti. Síðan þá hefur Ástráður verið skip­aður hér­aðs­dóm­ari og bætt við sig dóm­ara­reynslu, en Sandra hefur verið settur, og síðar skip­aður, hér­aðs­dóm­ari frá árinu 2006.

Sigríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað hins vegar að færa fjóra umsækj­endur sem dóm­nefndin hafði mælt með að yrðu skip­aðir af skip­un­ar­list­anum og bæta fjórum öðrum inn á hann. Alþingi sam­þykkti svo breyttan lista Sigríðar. Ástráður var því ekki skip­aður á þeim tíma. Hann, og annar umsækj­andi sem var í sömu stöðu, stefndu rík­inu vegna þessa.

[adspot]Hæst­i­­­­­réttur komst að þeirri nið­­­­­ur­­­­­stöðu í des­em­ber 2018 að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­­­­nefnd­­­­­ar­inn­­­­­ar. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­dóm­­­stóll Evr­­­ópu að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­­ar­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­með­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­mála­ráð­herra.

Þær stöður sem þær Ása og Sandra hafa verið settar í eru stöður tveggja þeirra dóm­ara sem Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn taldi að væru ólög­lega skip­aðir. Nið­ur­stöðu hans var skotið til yfir­deildar Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins og fór mál­flutn­ingur þar fram fyrr í mán­uð­inum. Búist er við nið­ur­stöðu fyrir árs­lok. Þangað til munu dóm­ar­arnir fjórir ekki dæma.

Áskildi sér rétt til að stefna

Auk þess var ein laus staða við Lands­rétt til fram­búðar aug­lýst til umsóknar í des­em­ber. Fjórir sótt­ust eftir skipun í hana. Ást­ráður og Sandra eru bæði þar á með­al. Hinir þrír eru Ásmundur Helga­­­son Ragn­heiður Braga­dótt­ir, sem eru bæði dóm­­­arar við Lands­rétt og eru á meðal þeirra fjög­urra sem mega ekki dæma við rétt­inn eftir dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Eftir að greint var frá umsækj­endum sendi Ástráður dóms­mála­ráð­herra bréf þar sem hann sagð­ist áskilja sér að hann áskilji sér allan rétt til þess að láta á það reyna fyrir dóm­stólum ef þegar skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt verði skip­aðir í lausa stöðu við rétt­inn.

Í bréfi hans, sem Kjarn­inn hefur undir höndum og var einnig sent til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, segir að það sé að mati Ást­ráðs aug­ljós hætta á því að ef umsókn skip­aðs Lands­rétt­ar­dóm­ara sé talin gild og myndi svo leiða til nýrrar skip­unar umsækj­and­ans í emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara gætu þeir sem svo kysu látið á það reyna hvort slík skipun teld­ist lög­mæt.

Með slíkri skipan væri í raun verið að gera til­raun til að lög­helga eftir á skipun dóm­ara sem þegar hefði verið metin ólög­mæt. „Ég tel tals­verðar líkur á að nið­ur­staða dóm­stóla yrði sú að slík skipan stæð­ist ekki. Það væri, svo vægt sé til orða tek­ið, í ljósi for­sög­unn­ar, afar óheppi­legt bæði fyrir dóms­kerfið og umsækj­and­ann ef það yrði nið­ur­stað­an. Slíkur fram­gangur væri auk þess til þess fall­inn að draga á lang­inn ríkj­andi réttaró­vissu um fram­tíð­ar­skipan Lands­réttar og fæli í sér afar sér­kenni­leg skila­boð inn í yfir­stand­andi mála­rekstur fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evr­ópu. Ég tel raunar að Lands­réttur megi illa við frek­ari slíkum skakka­föll­u­m.“

Ekki hefur verið greint frá því hvern dóms­mála­ráð­herra hyggst skipa í hina lausu stöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár