Ástráður með það til skoðunar að stefna íslenska ríkinu ... aftur

Ástráður Har­alds­son hefur fjórum sinnum sóst eftir því að kom­ast að sem dóm­ari við Lands­rétt. Þrívegis hefur honum verið hafnað en ekki hefur verið tekin ákvörðun um eina umsókn hans. Ástráður telur sig hafa mátt þola ítrekuð rétt­ar­brot.

Ástráður Har­alds­son hér­aðs­dóm­ari er með það til skoð­unar að stefna íslenska rík­inu vegna ákvörð­unar Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra um setn­ingu í tvö emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt í lok síð­ustu viku. Ef Ástráður ákveður að stefna mun hann fara fram á ógild­ingu á ákvörðun ráð­herr­ans.

Í bréfi sem hann sendi dóms­mála­ráð­herra 12. febr­úar síð­ast­lið­inn, og Kjarninn hefur undir höndum, segir Ástráður að hann hafi ítrekað mátt þola „rétt­ar­brot í með­ferð umsókna minna um skipun og nú setn­ingu í emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara“. Því sé óhjá­kvæmi­legt að hann freisti þess með öllum til­tækum ráðum að fá hlut sinn réttan og „að minnsta kosti gera það sem í mínu valdi stendur til að upp­lýsa um þau vinnu­brögð sem höfð eru uppi.“

Ástráður var einn tveggja umsækj­enda, ásamt Ásu Ólafs­dóttur pró­fessor, sem hæf­is­nefnd hafði metið hæfust til að vera sett í stöð­urnar þegar hún skil­aði nið­ur­stöðu sinni í drögum 3. febr­úar síð­ast­lið­inn. Hann sá ekki ástæða til að and­mæla þeirri nið­ur­stöðu.

Þegar að and­mæla­réttar umsækj­enda var lið­inn hafði nið­ur­staða hæf­is­nefnd­ar­innar hins vegar breyst á þann veg að Sandra Bald­vins­dóttir hér­aðs­dóm­ari væri jafn­sett Ástráði í hæfi, en hún hafði skilað and­mælum til nefnd­ar­innar.

Áslaug Arna tók svo ákvörðun fyrir helgi um að skipa Ásu og Söndru hinar lausu stöður.

Í bréf­inu sem Ástráður sendi til dóms­mála­ráð­herra 12. febr­úar, dag­inn eftir að end­an­leg umsögn dóm­nefndar lá fyrir, segir hann að ekk­ert komi fram í álits­gerð nefnd­ar­innar sem gefi neina vís­bend­ingu um eða skýr­ingu á því hvers vegna ályktun nefnd­ar­innar hafi verið breytt.

Þar segir Ástráður enn fremur að hann telji máls­með­ferð­ina ekki stand­ast reglur stjórn­sýslu­réttar. „Ég hef engar upp­lýs­ingar um það hvaða for­sendur hafa breyst og hef ekki notið and­mæla­réttar vegna þessa. Þá verð ég al láta þess getið að breyt­ingin sem gerð er á ályktun nefnd­ar­innar er að mínu mati aug­ljós­lega efn­is­lega röng. Við mat á umsækj­endum um emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara við stofnun dóms­ins 2017 var ég met­inn 14. hæf­astur en Sandra Bald­vins­dóttir 22. Síðan þá er mér ekki kunn­ugt um að neinar veru­legar breyt­ingar hafi orðið á hennar háttum að því er starfs­vett­vang áhrærir en ég hef hins vegar með því að taka við emb­ætti hér­aðs­dóm­ara bætt úr þeim ágalla sem helstur var tal­inn á hæfni minni 2017 og ætti því hlut­rænt séð að aukast munur á hæfi okkar tveggja mér í hag frá hinu fyrra mati.“

Sagði nefnd hafa litið fram hjá auka- og félagsstörfum

Í athuga­semdum sem Sandra gerði við drög að umsögn hæf­is­nefndar, þar sem hún var ekki metin á meðal hæf­ustu umsækj­enda til að verða skipuð, segir hún að dóm­nefnd hafi litið fram hjá fjöl­mörgum auka­störfum sínum og félags­störfum. Því gefi umsögnin ekki rétta mynd af starfs­reynslu hennar.

Sandra benti á að hún hefði setið í fjöl­mörgum nefndum og hópum síð­ast­liðna tvo ára­tugi sem unnið hefðu að marg­vís­legum úrbótum innan stjórn­sýsl­unnar. Í sumum til­vikum hafi nefnd­irnar skilað af sér í formi frum­varps­draga. Á meðal slíkra sem hún var í er starfs­hópur dóm­stóla­ráðs um hag­kvæmni og skil­virkni við vinnslu dóms­mála. Lagt var fram frum­varp með til­lögum starfs­hóps­ins sem sam­þykkt var sem lög árið 2015.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra setti tvo aðra umsækjendur í stöðu Landsréttardómara á föstudag.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra setti tvo aðra umsækj­endur í stöðu Lands­rétt­ar­dóm­ara á föstu­dag.

Þá hafi þess ekki verið getið í drög­unum að Sandra hafi und­an­farin ár „setið í stjórn Dans­í­þrótta­sam­bands Íslands, en sam­bæri­leg reynsla ann­ars umsækj­anda er til­greind í fyr­ir­liggj­andi drögum, þ.e. að Ása Ólafs­dóttir hafi verið í stjórn Kraft­lyft­inga­sam­bands Íslands. Það kemur heldur ekki fram að ég var for­maður félags sum­ar­húsa­eig­enda í Hvammi, Skorra­dal, frá 2005-2006.“

Með vísan til ofan­greinds taldi hún ljóst að veru­legir ágallar væru á drögum að umsögn hæf­is­nefndar og fór fram á að þau yrðu end­ur­skoðuð.

Hæf­is­nefndin varð við þeirri beiðni og í end­an­legri umsögn hennar var Ása metin hæfust, en Ástráður og Sandra metin jafn­sett.

Var á meðal hæfustu en ekki skipaður

Þetta er ekki í eina skiptið sem Ástráður hefur sóst eftir því að vera skip­aður dóm­ari við Lands­rétt. Hann sótti um að vera einn þeirra 15 sem valdir voru til að sitja þar við stofnun dóm­stigs­ins á árinu 2017 og var þá, líkt og áður sagði, tal­inn sá 14. hæf­asti af hæf­is­nefnd.

Sig­ríður Á. Andersen, þáver­andi dóms­mála­ráð­herra, ákvað hins vegar að færa fjóra umsækj­endur sem dóm­nefndin hafði mælt með að yrðu skip­aðir af skip­un­ar­list­anum og bæta fjórum öðrum inn á hann, sem nefndin hafði ekki talið á meðal þeirra hæf­ustu. Alþingi sam­þykkti svo breyttan lista Sig­ríð­ar. Ást­ráður var því ekki skip­aður á þeim tíma. Hann, og annar umsækj­andi sem var í sömu stöðu, stefndu rík­inu vegna þessa.

Hæst­i­­­­­réttur komst að þeirri nið­­­­­­ur­­­­­­stöðu í des­em­ber 2018 í málum þeirra að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­­­­­nefnd­­­­­­ar­inn­­­­­­ar. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­­dóm­­­­stóll Evr­­­­ópu að þeirri nið­­­­ur­­­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­­­ar­­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­­með­­­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­­mála­ráð­herra.

Ástráður sótt­ist síðar eftir því að verða skip­aður hér­aðs­dóm­ari og var skip­aður slíkur í byrjun mars 2018.

Athugasemdir við einkunn

Í fyrra­vor sagði einn þeirra ell­efu dóm­ara sem lög­lega voru skip­aðir í Lands­rétt, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, starfi sínu lausu og greindi frá því að hann hygð­ist setj­ast í helgan stein.

Alls sóttu átta um þá stöðu. Þar á meðal var Ástráður.

Þá var Eiríkur Jónsson, þá pró­fessor við Háskóla Íslands, skip­aður, en Eiríkur hafði verið í sjö­unda sæti yfir þá sem sem hæf­is­nefnd hafði metið hæf­asta til að vera dóm­arar við Lands­rétt í aðdrag­anda þess að hann var stofn­aður. Hann var, líkt og Ástráður, færður af list­anum af þáver­andi dóms­mála­ráð­herra.

Valið á Eiríki kom ekki á óvart og ekki voru gerðar athuga­semdir við það að hálfu ann­arra umsækj­enda. Kjarninn hefur hins vegar undir höndum and­mæla­skjal sem Ástráður sendi hæfn­is­nefnd­inni sem mat umsækj­endur sum­arið 2019, þar sem hann gerir athuga­semdir við ýmis­legt sem sett var fram við mat á hæfni hans í drögum að umsögn og tveimur vinnu­skjölum nefnd­ar­innar sem honum höfðu verið send.

Landsréttur hefur verið stanslaust þrætuepli frá því að til hans var stofnað, vegna þess hvernig til hans var stofnað.
Lands­réttur hefur verið stans­laust þrætu­epli frá því að til hans var stofnað, vegna þess hvernig til hans var stofnað.

Annars vegar er um að ræða athuga­semdir við ein­kunna­gjöf nefnd­ar­innar og hins vegar athuga­semdir sem varða minn­is­blað nefnd­ar­innar um færni umsækj­enda um emb­ætti lands­rétt­ar­dóm­ara til að semja dóma.

Taldi nefndina hafa uppi meiðyrði

Nefndin gerði athuga­semdir við það hvernig Ástráður semdi dóma sem hér­aðs­dóm­ari. Í umsögn nefnd­ar­innar sagði að Ástráður virt­ist ekki „ gera nægan grein­ar­mun á þeirri skyldu sinni sem dóm­ara að dæma ein­ungis eftir lög­unum og per­sónu­legum við­horfum sínum til máls­að­ila eða sak­ar­efn­is­ins, sem til úrlausnar er hverju sinni.“

Í and­mæla­bréfi Ástráðs segir að sé þessi texti skil­inn bók­staf­lega verði ekki annað séð en að dóm­nefndin sé að halda því fram að hann hafi gerst sekur um hlut­drægni gagn­vart máls­að­ilum og byggi dóma sína á per­sónu­legum skoð­unum sínum en ekki lögum. „Hvort sem væri fæli auð­vitað í sér brot á starfs­skyldum mínum og stjórn­ar­skrá svo varðað gæti emb­ætt­is­missi. Dómari verður varla bor­inn þyngri sökum. Hér hlýtur ein­hver mis­skiln­ingur að hafa orðið.[...]Það getur varla hafa verið til­ætlun nefnd­ar­innar að hafa uppi meið­yrði við ein­staka umsækj­endur í álits­gerð sinni. Við þessa fram­setn­ingu óbreytta verður ekki búið. Ég treysti því að þessi fram­setn­ing verði löguð en verði það ekki gert er óhjá­kvæmi­legt að benda á að þessi ummæli eru órök­studd og efn­is­lega röng. Ég áskil mér allan rétt til að bregð­ast við ef ekki verður úr þessu bætt.“

Lækkaði í hæfi þrátt fyrir að hafa bætt við sig

Varðandi ein­kunn­ar­gjöf­ina þá kom það Ástráði í opna skjöldu að hann lækk­aði tölu­vert í ein­kunn frá þeim tíma sem að hæf­is­nefnd um skipun dóm­ara við Lands­rétt mat hann árið 2017, þrátt fyrir að hafa tekið við dóm­ara­stöðu við hér­aðs­dóm í milli­tíð­inni. „Þetta tel ég að hljóti að telj­ast eins­dæmi og afar und­ar­leg þróun. Ég minni á að mat hæfn­is­nefndar frá 2017 hefur sætt sér­stakri umfjöllun Hæsta­réttar sem ekki taldi ástæðu til að gera við það athuga­semdir,“ segir í bréfi Ástráðs.

Aðrir umsækj­endur sem metnir voru bæði 2017 og 2019 breytt­ust ekki með sama hætti og Ástráður í ein­kunn í mati hæf­is­nefnd­ar­innar, og einn hækk­aði jafn­vel að teknu til­liti til auk­innar dóm­ara­reynslu sem hann hafði aflað sér í milli­tíð­inni. „Þetta ger­ist þrátt fyrir að ég sé hinn eini úr þessum fjög­urra manna hópi sem ætti að hafa veru­lega mögu­leika á að hækka í ein­kunn. Ég er sá eini úr hópnum sem hef frá 2017 gert veru­legar breyt­ingar á starfs­ferli mínum og högum sem hlut­lægt séð ættu að leiða til hækk­unar á ein­kunn minni. Ég gekk í það með því að taka að mér starf hér­aðs­dóm­ara að vinna mér inn reynslu á því sviði sem helst þarfn­að­ist úrbóta að mati hæfn­is­nefnd­ar­innar árið 2017,“ segir Ástráður í bréf­inu.

Hann tók fram að ef ein­kunn­ar­gjöf hans yrði ekki lag­færð þá myndi hann ekki una því og áskilja sér rétt til að láta á nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar reyna fyrir dómi.

Þegar end­an­lega umsögn lá fyrir hafði ein­kunn Ástráðs hækkað, en hún var samt lægri en vorið 2017.

Vill að þrír víki úr hæfisnefnd

Í des­em­ber 2019 var ekki bara aug­lýst eftir setn­ingu í tvö emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt heldur líka skipun í eina stöðu, eftir að Ing­veldur Ein­ars­dóttir var skipuð dóm­ari við Hæsta­rétt.

Alls sóttu fjórir um þá stöðu: Þau Ástráður og Sandra og tveir þeirra dóm­ara sem skip­aðir voru ólög­lega við stofnun Lands­réttar, Ásmundur Helgason og Ragn­heiður Braga­dóttir.

Þegar greint var frá því hverjir sóttu um starfið gleymd­ist hins vegar að hafa nafn Ástráðs með í fretta­til­kynn­ing­unni. Það var síðar lag­fært.

Við þetta til­efni skrif­aði Ástráður dóms­mála­ráð­herra einnig bréf þar sem hann til­kynnti henni að hann myndi áskilja sér rétt til þess að láta á það reyna fyrir dóm­stólum ef þegar skip­aðir dóm­arar við Lands­rétt verði skip­aðir í lausa stöðu við rétt­inn.

Í bréf­inu, sem var einnig sent til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, sagði að það sé að mati Ást­ráðs aug­ljós hætta á því að ef umsókn skip­aðs Lands­rétt­ar­dóm­ara sé talin gild og myndi svo leiða til nýrrar skip­unar umsækj­and­ans í emb­ætti Lands­rétt­ar­dóm­ara gætu þeir sem svo kysu látið á það reyna hvort slík skipun teld­ist lög­mæt.

Með slíkri skipan væri í raun verið að gera til­raun til að lög­helga eftir á skipun dóm­ara sem þegar hefði verið metin ólög­mæt. „Ég tel tals­verðar líkur á að nið­ur­staða dóm­stóla yrði sú að slík skipan stæð­ist ekki. Það væri, svo vægt sé til orða tek­ið, í ljósi for­sög­unn­ar, afar óheppi­legt bæði fyrir dóms­kerfið og umsækj­and­ann ef það yrði nið­ur­stað­an. Slíkur fram­gangur væri auk þess til þess fall­inn að draga á lang­inn ríkj­andi réttaró­vissu um fram­tíð­ar­skipan Lands­réttar og fæli í sér afar sér­kenni­leg skila­boð inn í yfir­stand­andi mála­rekstur fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evr­ópu. Ég tel raunar að Lands­réttur megi illa við frek­ari slíkum skakka­föll­u­m.“

Kjarninn hefur einnig undir höndum annað bréf sem Ástráður sendi til hæfn­is­nefnd­ar­innar um hæfi umsækj­enda um skip­un­ina, sent 13. febr­úar síð­ast­lið­inn, þar sem hann fer fram á að þeir þrír nefnd­ar­menn sem tóku líka ákvörðun um hæfi þeirra sem sótt­ust eftir því að vera settir dóm­arar í Lands­rétt fyrr í mán­uð­inum, víki úr nefnd­inni. Um er að ræða Ingimund Ein­ars­son, Ragn­hildi Helga­dóttur og Óskar Sig­urðs­son. Í bréf­inu segir Ástráður að hann telji nefnd­ar­menn­ina þrjá mögu­lega hafa brotið stjórn­sýslu­reglur bæði um form og efni og með aðkomu sinni að nið­ur­stöð­unni frá 12. febr­úar valdið því að fyrir hendi séu aðstæður sem séu til þess fallnar að draga megi í efa óhlut­drægni þeirra varð­andi mat á hæfi Ástráðs.

Það hafi þre­menn­ing­arnir gert með því að „gera á ell­eftu stundu óvæntar breyt­ingar á áður boð­aðri nið­ur­stöðu sinni vegna and­mæla ann­ars umsækj­anda án þess að gefa mér kost á að koma að sjón­ar­miðum mínum um þennan breytta grund­völl afgreiðslu nefnd­ar­innar viðrist mér að nefndin hafi brotið and­mæla­reglu gagn­vart mér. Þá tel ég að allt bendi til þess að fyrr­greind breyt­ing á hæfn­is­röðun stand­ist ber­sýni­lega ekki efn­is­lega skoðun og sé röng og ómál­efna­leg og brot á efn­is­reglum stjórn­sýslu­réttar. [...]Ályktun hæfn­is­nefndar frá 12. febr­úar hefur leitt til þess að ég hef nú til skoð­unar að höfða mál til ógild­ingar nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar og þeirrar ákvörð­unar sem ráð­herra mun taka á grund­velli hennar og í því máli munu ofan­greindir nefnd­ar­menn verða kall­aðir til sem vitni. Ekki þarf að fjöl­yrða um hversu óheppi­leg aðkoma þeirra að starfi hæfn­is­nefndar verður í því ljósi.“

Hæfn­is­nefndin tók erindið fyrir á fundi sínum í síð­ustu viku, þann 17. febr­úar. Þar var kröfu Ástráðs um að þre­menn­ing­arnir myndu víkja sæti hafnað.

Enn hefur ekki verið skipað í þá stöðu sem er laus við Lands­rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár