Jón líkir ástandi Mývatns við náttúruhamfarir

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, segir nauðsynlegt að bregðast við ástandinu í Mývatni eins og náttúru­hamförum. Skipa verði hóp sérfræðinga til að greina vandann. Ríkið verði að veita fjármagn til aðgerð­anna.

Jón Gunnarsson segir að stjórnvöld verði að veita fjármagn til að bjarga Mývatni.
Jón Gunn­ars­son segir að stjórn­völd verði að veita fjár­magn til að bjarga Mývatni.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokks, segir nauðsynlegt að bregðast skjótt við þeirri þróun sem hefur átt sér stað í Mývatni undan­farið. Jón sendi frá sér yfir­lýsingu í morgun þar sem segir að yfirvöld verði að bregðast við með sama hætti og þegar brugðist er við náttúru­hamförum af fullum þunga.

„Skipa verður hóp sérfræðinga sem greinir vandann og kemur með tillögur um úrbætur. Fámennt sveitar­félag ræður ekki við verkefnið og því verður ríkis­stjórnin/þingið að tryggja það fjármagn sem til þarf," segir Jón. „Það má engu til spara og sumarið má ekki líða án þess að það sé notað til þeirra framkvæmda sem nauðsynlegar eru. Viðkvæm náttúru­perla á heimsvísu er undir og afleiðingar aukins straums ferða­manna með tilheyrandi álagi á náttúruna eru kannski að birtast okkur hér með hvað skýrustum hætti. Ábyrgð okkar er mikil og málið þolir enga bið. Þetta mál brýnir einnig mikilvægi umræðu um gjaldtöku í ferða­þjónustunni."

Ástandið alvarlegt

Fram kom í yfrlýsingu Veiði­fé­lags Laxár og Krá­kár í lok apríl, þar sem skorað var á yfir­völd umhverf­is­mála, bæði á lands­vísu og á sveit­ar­stjórn­ar­stigi, að bregð­ast við því alvar­lega ástandi sem lýst hef­ur verið í líf­ríki Laxár og Mývatns í Suð­ur­-­Þing­eyjasýslu. Líf­ríki Mývatns og Laxár hefur verið undir miklu álag­i und­an­farna ára­tugi og svæðið er á rauðum lista Umhverf­is­stofn­unar fjórða árið í röð.

„Kúlu­skít­ur­inn, sem aðeins finnst á einum öðrum stað í heim­in­um, er horf­inn og botni Mývatns má líkja við upp­blás­inn eyðisand," sagði í yfir­lýsingunni. Þá sagði enn­fremur að bleikjan hafi verið nán­ast friðuð und­an­farin ár, til að koma í veg fyrir útrým­ingu og síla­stofn í sögu­legri lægð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár