Hluti Mývatns mjólkurhvítur - einhvers konar efnamengun

Síðustu tvo daga hefur hluti Mývatns, næst byggð­inni í Reykja­hlíð, verið sér­kenni­legur á lit­inn. Vatnið er mjólk­ur­hvítt á 150 til 200 metra belti í vatn­inu. Um ein­hvers konar efna­mengun er að ræða, segir Dr. Árni Ein­ars­son, líf­fræð­ingur og for­stöðu­maður Nátt­úru­rann­sókna­stöðv­ar­innar við Mývatn.

„Það er búið að taka sýni og skoða það í smá­sjá og þetta er ekki eitt­hvað líf­rænt, ekk­ert lif­andi, þannig að þetta er ein­hvers konar efna­mengun sem er sirka 150 metra úti í vatnið frá bakk­anum,“ segir hann. Þetta teng­ist lík­lega eitt­hvað byggð­inni, að sögn Árna, og er beint fyrir framan Hótel Reykja­hlíð. Árna var bent á málið í morgun og fór að skoða það og tók sýni. Hann segir beltið lík­lega um 150 metra, en það hafi ekki verið skoðað til hlítar hversu langt það teygir sig með­fram bökkum Mývatns.

„Það sem er mjög óvana­legt, ég hef aldrei séð svona lagað í Mývatni, það er þessi mjólk­ur­litur sem ein­hvern veg­inn er ekk­ert gegn­sær svo það sést ekk­ert ofan í vatnið. Maður sér bara nokkra senti­metra, og gróð­ur­inn sem sést á mynd­unum flýtur við yfir­borðið.“

[caption id="attachment_35476" align="alignnone" width="717"] Mynd: Nátt­úru­rann­sókna­stöðin við Mývatn[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár