Skora á yfirvöld að bregðast við alvarlegri stöðu í lífríki Laxár og Mývatns

Aðal­fundur Veiði­félags Laxár og Krákár, sem haldinn var í Rauðhólum í Laxárdal, 30. apríl 2016 skorar á yfirvöld umhverfis­mála, bæði á landsvísu og á sveitar­stjórnar­stigi, „að bregðast við því alvarlega ástandi sem lýst hefur verið í lífríki Laxár og Mývatns í Suður-Þing­eyjarsýslu“. Þetta kemur fram í yfir­lýsingu frá veiði­félaginu. Formaður stjórnar veiði­félagsins er Bragi Finnbogason.

„Lífríki Mývatns og Laxár hefur verið undir miklu álagi undan­farna áratugi og svæðið er á rauðum lista Umhverfis­stofnunar fjórða árið í röð. Kúlu­skíturinn, sem aðeins finnst á einum öðrum stað í heiminum, er horfinn og botni Mývatns má líkja við uppblásinn eyðisand,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir ennfremur að bleikjan hafi verið nánast friðuð undan­farin ár, til að koma í veg fyrir útrýmingu og sílastofn í sögulegri lægð. „Hornsíla­stofninn er í sögulegri lægð. Við rann­sóknir síðasta sumar veiddust 319 síli en sambærilegar rann­sóknir síðustu 25 ár hafa skilað 3.000-14.000 sílum. Hrunið í hornsíla­stofninum bitnar illa á urriðanum bæði í Laxá og vatninu. Draga verður verulega úr veiðum á honum í Mývatni í sumar. Bakteríu­gróður, sem Mývetningar kalla leirlos, fer vaxandi og hefur síðustu tvö sumur verið með fádæmum og langt yfir þeim heilsu­verndar­mörkum sem Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunin miðar við í vötnum þar sem útivist er stunduð. Leirlos í svo miklu magni hefur mjög neikvæð áhrif á lífríki Laxár allt til sjávar, sem og upplifun veiði­manna á svæðinu,“ segir í tilkynningu veiði­félagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár