140 einkafjárfestar keyptu fyrir 16,1 milljarð í Íslandsbanka – Fengu um 700 milljóna afslátt

Alls fengu 209 aðilar að kaupa í Íslands­banka í síðustu viku í lokuðu útboði. 85 prósent þeirra voru innlendir, og þar af fengu 140 einka­fjárfestar að kaupa hlut með afslætti. Alls 59 fjár­festar keyptu fyrir minna en 30 milljónir króna.

Samþykkt var að halda áfram að selja hlut í Íslandsbanka í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Í ráðherranefnd um efnahagsmál sitja forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og viðskipta- og menningarmálaráðherra.
Samþykkt var að halda áfram að selja hlut í Íslands­banka í stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar. Í ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál sitja for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og við­skipta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Innlendir einka­fjárfestar fengu að kaupa í Íslands­banka fyrir 16,1 milljarða króna í síðustu viku. Það er 30,6 prósent af öllum þeim hlut sem seldur var í bankanum. Um að ræða 140 aðila. Eina upplýsingarnar sem liggja fyrir um hverjir þeir eru koma úr þremur innherja­tilkynningum sem birtar voru í Kauphöll Íslands.

Alls 24 þeirra sem tóku þátt fengu að kaupa hlut fyrir tíu milljónir króna eða minna, 35 keyptu fyrir tíu til 30 milljónir króna og 20 keyptu fyrir 30 til 50 milljónir króna. Því liggur fyrir 79 aðilar, rúmlega helmingur allra þátt­takenda, keypti fyrir 50 milljónir króna eða minna.

Þetta kemur fram í kynningu sem Banka­sýsla ríkisins hélt fyrir ráðherra­nefnd um efnahagsmál í morgun um sölu­meðferð eignar­hluta í Íslands­banka sem fór fram í síðustu viku. Þá var alls 22,5 prósent hlutur í Íslands­banka var seldur fyrir 52,65 milljarða króna, með 2,25 milljarða króna afslætti frá marka­virði bankans. Hluturinn var seldur með svokölluðu tilboðs­fyrir­komulagi sem þýðir að hann salan fór fram í lokuðu útboði til valinna fjárfesta. Í ráðherra­nefndinni sitja Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, og Lilja Alfreðs­dóttir, ferðamála- viðskipta- og menningar­mála­ráðherra.

Ef einka­fjár­festarnir 140 hefðu keypt hlut sinn á markaðs­virði hefðu þeir þurft að greiða samtals 688 milljónum króna meira fyrir hann en þeir gerðu í útboðinu.

85 prósent kaupenda íslenskir

Í kynningu Banka­sýslunnar er framkvæmd sölu­meðferðarinnar lýst. Þar segir að að morgni mánudagsins 21. mars hafi verið ákveðið að hefjast handa við markaðs­þreifingar á meðal „hæfra innlendra fjárfesta á mánudeginum á grund­velli tillagna innlenda ráðandi sölu­ráðgjafans“, en sá ráðgjafi var fjármála­fyrirtækið Fossar markaðir.

Á grund­velli endur­svörunar þeirra var talið rétt að ráðast í markaðs­þreifingar á meðal erlendra fjárfesta í samræmi við tillögur alþjóð­lega leiðandi sölu­ráðgjafa Banka­sýslunnar, HSBC Continental Europe. „Í kjölfarið voru frekari sölu­ráðgjafar ráðnir og fleiri en í sambærilegum útboðum með tilboðs­fyrir­komulagi, vegna áherslu á dreift eignar­hald og að afla markaðs­verðs fyrir hlutinn,“ segir í kynningunni.

Greint hefur verið frá því að tilboð hafi borist frá 430 fagfjárfestum. Í kynningu Banka­sýslunnar kemur fram að fjöldi tilboða sem var tekið hafi verið 209. Þar af keyptu innlendir fjár­festar 85 prósent af hlutnum fyrir samtals 44,8 milljarða króna, en erlendir aðilar 15 prósent fyrir 7,9 milljarða króna.

Fjöldi innlendra fjárfesta sem fékk að kaupa voru 190 talsins. Þar af fengu 23 lífeyris­sjóðir að kaupa 37,1 prósent þess sem selt var á 19,5 milljarðar króna. Alls 140 íslenskir einka­fjárfestar fengu að kaupa næst mest, alls 30,6 prósent af því sem var selt á 16,1 milljarð króna. Alls 13 verðbréfa­sjóðir fengu að kaupa fyrir 5,6 milljarða króna og „aðrir fjár­festar“ frá Íslandi fyrir 3,5 milljarða króna.

Alls 15 fjár­festar keyptu fyrir meira en einn milljarð króna og sex keyptu fyrir á bilinu 500 til 1.000 milljónir króna.

Í kynningu Banka­sýslunnar í morgun var há hlutdeild einka­fjárfesta rökstudd með því að áskriftir þeirra hefðu skertar á kostnað almennra fjárfesta í frum­útboðinu á hlutum í Íslands­banka, sem fór fram í fyrra­sumar en þá seldi ríkið 35 prósent hlut í bankanum.

„Hver er til­gang­ur­inn með því að hleypa svona aðilum að í afslátt?“

Enn hefur ekki verið birtur listi yfir þá einka­fjárfesta sem voru valdir til að taka þátt í kaupum á hlut í ríkis­banka með afslætti né hefur verið útskýrt sérstak­lega hvernig þeir voru valdir. Kristrún Frosta­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, spurði Bjarna Benediktsson, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra út í þennan hóp á Alþingi á mið­viku­dag. Hún benti á í ræðu sinni að hug­myndin á bakvið til­boðs­ferli, sem er sú sölu­teg­und sem ráð­ist var í, væri að það væri rétt­læt­an­legt að veita afslátt frá mark­aðsvirði vegna þess að inn væru að koma stórir aðil­ar, sem væru að kaupa stóran bita og taka með því mikla mark­aðs­á­hættu.

Upp­lýst hefði verið í gegnum innherja­lista að aðilar hafi fengið að kaupa 55 millj­óna króna hlut, 27 millj­óna króna hlut, 11 millj­óna króna hlut. Þar er um að ræða Ara Dan­í­els­­son, stjórn­­­ar­­mann í Íslands­­­banka, sem keypti fyrir 55 millj­­ónir króna, Rík­­harð Daða­­son, sam­býl­is­­mann Eddu Her­­manns­dóttur mark­aðs- og sam­­skipta­­stjóra bank­ans, sem keypti fyrir tæpar 27 millj­­ónir króna og Ásmund Tryggva­­son, fram­­kvæmda­­stjóra fyr­ir­tækja og fjár­­­fest­inga­sviðs, sem keypti fyrir rúmar 11 millj­­ónir króna en við­skipti þeirra voru til­kynnt til Kaup­hallar Íslands vegna tengsla þeirra.

Í ræðu sinni sagði Kristrún að þessir aðilar hefðu hæg­lega getað keypt á eft­ir­mark­aði. „Þetta eru ekki stór­ir, umfangs­miklir lang­tíma­fjár­festar sem voru að taka á sig mikla mark­aðs­á­hættu. Hver er til­gang­ur­inn með því að hleypa svona aðilum að í afslátt? Verða þessir aðil­ar, þessir litlu aðilar sem fljóta svona með til hlið­ar, á þessum lista sem verður birtur eða er þetta bara þessi klass­íski listi sem kemur fram yfir þá sem eru með lang­stærstu hlut­ina?“

Slúður um símtöl til sumra

Bjarni útskýrði tilganginn í svari sínu en svaraði ekki hvort listinn yfir litlu aðilanna yrði birtur. Kristrún ítrekaði því seinni spurninguna og sagði það ekki „gott í ferli sem á að vera gagnsætt og yfir alla gagnrýni hafin að það berist slúður, gróusögur, upplýsingar um að sumir hafi fengið símtal frá sínum verðbréfa­miðlara og aðrir ekki.

Hug­myndin á bak við til­boðs­verð af þessu tagi þar sem verið er að grípa inn í mark­aðs­verð – í almenna útboð­inu á sínum tíma var bank­inn ekki kom­inn á markað – er að það séu góð og gild rök fyrir slíku. Ég get ekki séð, þegar var svona mikil umfram­eft­ir­spurn hjá stórum aðilum sem vildu fá inn, að það hefði átt að hleypa svona litlum fjár­festum að. Fáum við að sjá þessi nöfn? Munu þau vera á þessum lista og hvenær kemur hann?“

Bjarni svaraði því til að Íslands­banki myndi gera aðgengi­legan allan hlut­haf­alist­ann eins og hann var fyrir útboðið og eins og hann líti út eftir útboð­ið. „Ég hef sömu­leiðis kallað eftir en ekki enn fengið nið­ur­stöðu úthlut­un­ar­innar og vil gera hana aðgengi­lega og mun gera það, nema mér séu ein­hverjar hömlur settar með lögum til þess að gera það, sem ég vona og trúi ekki að sé.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár