Segja að mistök hafi átt sér stað við mengunarmælingar í Helguvík

Orku­rann­sóknir ehf. sem ann­ast umhverf­is­vöktun við verk­smiðju United Silicon í Helguvík segja að fyrri mæl­ingar sem gefnar hafa verið út um inni­hald efna í ryk­sýnum í nágrenni við verk­smiðj­una sé úr öllu sam­hengi við raun­veru­lega losun frá United Silicon.

Orku­rann­sóknir ehf., fyr­ir­tæki sem ann­ast umhverf­is­vöktun við verk­smiðju United Silicon í Helguvík, segir í yfir­lýs­ingu sem það hefur sent Umhverf­is­stofnun að mis­tök hafi verið gerð við meng­un­ar­mæl­ingar í Helguvík. Í til­kynn­ingu frá United Silicon segir að fyrri mæl­ingar sem gefnar hafi verið út um inni­hald þung­málma og PAH efna í ryk­sýnum í nágrenni við verk­smiðj­una séu úr öllu sam­hengi við raun­veru­lega losun frá fyr­ir­tæk­inu. „Ljóst sé að um mis­tök í mæl­ingum hafi verið að ræða.“ Í yfir­lýs­ingu Orku­rann­sóknar til Umhverf­is­stofn­unar segir að það þurfi að end­ur­skoða þurfi allar nið­ur­stöður ryk­mæl­inga frá árinu 2016 sem gerðar voru í mæli­stöð­inni við Hólm­bergs­braut í Helguvík.

Í yfir­lýs­ingu Orku­rann­sóknar kemur fram að nið­ur­stöður mæl­inga á ryk­sýnum sem tekin voru í mæli­stöð­inni við Hólm­bergs­braut hafi verið bornar saman við efna­grein­ingar á ryki frá útblæstri kís­il­verk­smiðju United Silicon og þær sýni allt að 67 sinnum meira magn þess­ara efna í ryk­sýn­unum en það sem mælist í ryki frá útblæstri verk­smiðj­unnar. Þar á meðal sé gildi arsens 27 sinnum meira í ryk­sýn­unum en hafi mælst í útblæstri verk­smiðj­unnar.

„Vísað er til þess að fyrri grein­ingar hafi sýnt að magn þung­málma hafi auk­ist mjög veru­lega frá sýnum sem tekin voru á fyrra tíma­bili mæl­inga frá mars-sept­em­ber 2016 og þar til í októ­ber-des­em­ber 2016. Hins vegar hafi starf­semi verk­smiðju United Silicon ekki byrjað fyrr en um miðjan nóv­em­ber. Því sé ekki hægt að tengja aukn­ingu í byrjun seinna tíma­bils til starf­semi kís­il­vers­ins. Ef skoð­aðar séu vindrósir frá þessum tíma sjá­ist að sunn­anáttir hafi verið ríkj­andi á þessum tíma en mæli­stöðin er sunnan við verk­smiðj­una.

Í bréfi Orku­rann­sókna kemur fram að nú sé verið að kanna hvernig þessi mis­tök hafi átt sér stað en vitað sé að kerf­is­skekkja geti orðið við mæl­ingar þannig að 3-4 föld hækkun verði á öllum mæl­ingum. Þá sé verið að rýna í mæl­ing­ar­ferlið í sam­ráði við rann­sókn­ar­stofu ALS í Svíþjóð sem ann­ast efna­grein­ingar. Einnig eru Orku­rann­sóknir að fara yfir eigin verk­ferla til að kanna hvort hluta skekkj­unnar megi rekja til vinnu­ferla hjá þeim.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár