Bæjarfulltrúi segir að loka þurfi verksmiðju United Silicon

Fulltrúi í meiri­hluta bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar segir að búið sé að fara fram á fund með Umhverf­is­stofnun vegna arseník­meng­unar frá verk­smiðju United Silicon. Hún vill láta loka henni.

Kolbrún Jóna Pét­urs­dóttir, bæj­ar­full­trúi Beinnar leiðar í Reykja­nesbæ, segir að í sínum huga þurfi að loka verk­smiðju United Silicon í Helguvík þar til að starfs­menn hennar hafi náð tökum á öllum þeim vand­ræðum sem þar hafi komið upp. Búið sé að fara fram á fund með Umhverf­is­stofnun í vik­unni og er von­ast til að stofn­unin fáist til að „grípa til ráð­staf­anna sem hugn­ast okkur bæj­ar­búum vel.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook síðu hennar. Bein leið myndar meiri­hluta í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar ásamt Sam­fylk­ing­unni og Frjálsu afli.

Með færsl­unni deilir Kolbrún frétt RÚVfrá því í hádeg­inu þar sem haft er eftir Kristínu Ólafs­dóttur, dós­ent í eit­ur­efna­fræðum við lækna­deild Háskóla Íslands, sem segir fulla ástæðu fyrir bæj­ar­búa að hafa áhyggjur af því ef arseník­mengun fer yfir umhverf­is­mörk. Í mati á umhverf­is­á­hrifum fyrir kís­il­verk­smiðj­una var gert ráð fyrir að mesti styrkur arseníks í and­rúms­lofti yrði 0,32 nanógrömm á rúmmetra. Nú mælist styrkur þess hins vegar tutt­ugu­falt meiri og yfir umhverf­is­mörkum.

[adspot]

Í frétt RÚV segir Kristín að arseník sé eitt af fáum efnum sem eru skil­greindir krabba­meins­valdar hjá Alþjóða­krabba­meins­stofn­un­inni. Arseník­mengun í lofti valdi lungna­krabba­meini og/eða krabba­meini í húð.

Fengu ekki frest

Kjarninn greindi frá því um miðjan mars að United Silicon myndi ekki fá sex mán­aða frest til úrbóta á mengun sem berst frá kís­il­verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins í Helgu­vík og öðrum frá­vikum frá starfs­leyfi þess, líkt og fyr­ir­tækið hafði óskað eft­ir. Þetta kom fram í bréfi Umhverf­is­stofn­unar til United Silicon, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um.

Því þurfi að fara fram verk­fræði­leg úttekt á hönnun og rekstri verk­smiðj­unnar, og Umhverf­is­stofnun ætl­aði að leita eftir til­boðum í slíka úttekt, en það verður gert á kostnað United Silicon. Þangað til nið­ur­staða liggur fyrir um þörf­ina á umbótum sam­kvæmt slíkri rann­sókn má kís­il­verk­smiðjan ekki starfa, nema reka einn ljós­boga­ofn.

Fyr­ir­tækið hafði farið fram á að fá frest­inn til að bæta úr frá­vikum og ganga frá úrbótum á meng­un­ar­varna­bún­aði og meng­un­ar­vörnum sem og orsök og upp­tök lykta­meng­unar. Mikið hefur verið fjallað um mengun frá kís­il­verk­smiðj­unni í fjöl­miðlum und­an­far­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár