Ásmundur biðst afsökunar á að hafa greitt götu United Silicon

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir United Silicon hvorki vinna með né fyrir sam­fé­lagið og eigi sér ekki bjarta fram­tíð. Hann biðst afsök­unar á að hafa greitt götu fyr­ir­tæk­is­ins.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, hefur beðist afsök­unar á því að hafa greitt götu United Silicon við upp­bygg­ingu á kís­il­veri í Helguvík. Þetta gerði Ásmundur í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi nú síð­degis.

[links]„Við sem töl­uðum fyrir upp­bygg­ingu United Silicon í Helguvík og fögn­uðum 500 milljón króna fjár­fest­inga­samn­ingi við félagið í apríl 2014 trúðum lof­orðum fyr­ir­tæk­is­ins um fjöl­breytt og vel launuð störf, góðan rekstur í sátt við lög og reglur. Okkur er illa brugðið,“ sagði Ásmundur í upp­hafi ræðu sinnar.

Meng­un­ar­vanda­mál, ófull­komin verk­smiðja og svikin lof­orð í launum séu það sem ein­kenni upp­haf starf­sem­innar. Fjár­fest­inga­samn­ingur sem gerður var við fyr­ir­tækið hafi gefið því ýmiss konar íviln­anir, eins og lægri tekju­skatt, afslátt af trygg­inga­gjaldi, gatna­gerð­ar­gjöldum og fleiru.

„Ég er einn þeirra sem sam­þykkti þennan gjörn­ing. Með þess­ari eft­ir­gjöf gjalda hefur fyr­ir­tækið tölu­verða yfir­burði á vinnu­mark­aði.“

Ásmundur sagði fyr­ir­tækið greiða fólki taxta undir tekju­við­miðum, og færi fram­hjá samn­inga­gerð um vakta­vinnu við verka­lýðs­fé­lög. Með þessu fyr­ir­komu­lagi greiði fyr­ir­tækið starfs­fólki um 450 þús­und krónur á mán­uði, sam­an­borið við 600 til 700 þús­und krónur í álver­unum.

„Ég sem þing­maður vil biðja þjóð­ina afsök­unar á því að hafa greitt götu fyr­ir­tækis sem fengið hefur hund­ruð millj­óna króna stuðn­ing skatt­greið­enda að byggja upp rekstur en greiðir starfs­mönnum sínum laun sem eru grund­völluð á taxta sem er undir tekju­við­miðum í land­inu.“ 

Þá hefði fyr­ir­tækið lítil sem engin tök á mengun, væri í ýmiss konar mála­rekstri gagn­vart sveit­ar­fé­lag­inu og ynni hvorki með né fyrir sam­fé­lagið á Suð­ur­nesjum. Félag sem starfi svona, í trássi við umhverfið og íbú­ana, eigi sér ekki bjarta fram­tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár