Aðstoðarmaður Benedikts segir hann sjá eftir ummælunum

Aðstoðar­maður fjármála­ráðherra, Gylfi Ólafsson, segir Benedikt Jóhannesson hafa séð eftir ummælum sínum um hinar hagsýnu húsmæður strax í ræðustól, en þetta er ekki í fyrsta skiptið Benedikt hefur verið ásakaður um karlrembu.

Gylfi Ólafsson
Gylfi Ólafsson Aðstoð­ar­mað­ur­inn segir Benedikt sjá eftir orðum sínum Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

Aðstoðar­maður fjármála­ráðherra, Gylfi Ólafsson, segist hafa rætt við Benedikt Jóhannsson um ummæli sem Benedikt lét falla í ræðustól í gær, og að Benedikt sjái eftir þeim. 

Ummælin lét Benedikt falla í umræðum um verklag við opinber fjármál, og fjallaði Stundin um það fyrr í dag. Þar sagði hann „Mér finnst áhugavert hverjir það eru sem sýna mestan áhuga á þessum umræðum. Það erum við Njáll Trausti og hinar hagsýnu húsmæður sem eru í stórum hópum hér inni. Það er þannig að það skiptir afar miklu máli að tala um þetta.“

Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir, þingkona Vinstri grænna, gagnrýndi orðaval Benedikts harðlega í dag og í kjölfarið baðst hann afsökunar. „Í ræðustól Alþingis vísaði ég til þing­kvenna sem hagsýnna húsmæðra. Það var tilraun til þess að gefa hnyttið andsvar við fyrri ræðu, en hún heppnaðist afleit­lega. Um leið og ég heyrði mig segja þetta hugsaði ég: „Þú ert nú ekki alltaf jafn orðheppinn Benedikt.“ Þetta voru kjánaleg ummæli og ég biðst afsökunar á þeim,“ skrifaði hann.

„Tilraunir Benedikts til að vera fyndinn eru mistækar.“

Gylfi Ólafsson, aðstoðar­maður Benedikts, tjáði sig um málið á Facebook í dag. Þar sagðist hann hafa rætt við fjármála­ráðherra og að hann sæi eftir ummælunum, og hefði gert það strax í ræðustól. „Tilraunir Benedikts til að vera fyndinn eru mistækar. Ég ræddi þetta við hann og hann sér eftir þessu; og sá eftir þessu strax í ræðustól.“

Gylfi tjáði sig um málið á síðu Ingu Auðbjargar Straum­land, en hún er eiginkona Helga Hrafns Gunnars­sonar, fyrrum þingmanns Pírata. Í færslunni biðlaði Inga til Gylfa, sem femínista, að kenna Benedikt að vera ekki karlrema. „Það er alveg hægt ef hann bara vandar sig. Hann getur til dæmis byrjað á því að passa sig á því hvernig hann hrósar konum og hætta að vísa í úreltar staðalímyndir og furða sig á fjármála­læsi kvenna.“

Katrín eins og Lea prinsessa

Inga bendir í sömu færslu á að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem Benedikt hafi gerst uppvís að karlrembu. „Sami ráðherra var sælla minninga uppvís að því að hrósa Kötu Jak fyrir útlit sitt í Krydd­síldinni, á meðan allir karlarnir fengu hrós um umhyggjusemi og dugnað.“

Kryddsíldin
Krydd­síldin Katrín tekur við hrósi Benedikts um útlit sitt

Þar vísar Inga í orð Benedikts sem hann lét falla í Krydd­síldinni, síðasta gamlársdag, en þau hlutu umtals­verða gagnrýni. Í þættinum voru saman komnir sjö fulltrúar stjórn­mála­flokkanna á Alþingi, en aðeins einn af þeim, Katrín Jakobs­dóttir, var kona. Þegar fulltrúunum var gert að hrósa hver öðrum, og var Katrín sú eina þeirra sem fékk hrós fyrir útlit. Benedikt sagði við það tilefni: „Ég var nú að hafa orð á því við Katrínu áðan að mér finnst hún vera eins og Lea prinsessa hérna, hún er svo flott hérna í dag. Það er eiginlega bara það fallegasta sem ég get sagt um þig að þessu sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár