Ferill hins fjölhæfa Davids Bowie

Eftir andlát hins goðsagna­kennda David Bowie er við hæfi að renna í stuttu máli yfir feril þessa magnaða lista­manns.

David Bowie
David Bowie Litríkur og fjöl­hæfur lista­maður er fall­inn frá.

Lista­maðurinn David Bowie er látinn eftir baráttu við krabba­mein. Eftir­farandi yfir­lýsing birtist á samfélags­miðlum honum tengdum:

„David Bowie lést í friði í dag, umkringdur fjöl­skyldu sinni, eftir hugrakka, 18 mánaða baráttu við krabba­mein. Þó mörg ykkar séu sorgmædd biðjum við ykkur um að virða friðhelgi fjöl­skyldu hans í sorgar­ferli þeirra.“

Bowie var fjölhæfur, og starfaði sem söngvari og laga­höfundur, en einnig sem fram­leiðandi og leikari, á ferli sem spannaði rúmlega fjóra áratugi. Hann gaf út sína tuttugustu og fimmtu, og jafnframt síðustu plötu, þann áttunda janúar, síðasta föstudag, sem einnig var afmælis­dagurinn hans. 

Breskir
Breskir "mods" Senan var áberandi í tónlist og tísku á sjöunda og áttunda áratug síðust aldar.

Með plötunni „The Rise and Fall of Ziggy Stardust and the Spiders From Mars“ frá 1972 sló Bowie fyrst virkilega í gegn. Þar leikur hann sér með hugmyndina um rokk­stjörnu sem er geimvera, og blandar saman þemum frá bresku mod-senunni og japönsku kabuki leiku­húshefðinni. Útkoman var hið skraut­lega hliðar­sjálf - Ziggy Stardust.

Kabuki leikhúsið.
Kabuki leikhúsið. Bowie var undir miklum áhrifu frá japönsku "kabuki" leikhús hefðinni þegar hann skóp persónuna Ziggy Stardust.

Þremur árum seinna komst Bowie fyrst inn á Bandaríkja­markað, með laginu „Fame“, sem komst í efsta sæti vinsældar­lista þar í landi, af plötunni „Young Americans“. Í kjölfar hennar kom avant-garde platan „Station to Station“, sem komst í þriðja sæti á sölu­listum Banda­ríkjanna, og innihélt smellinn „Golden Years“.  

Eftir að hafa lent í slags­málum í skóla í æsku var Bowie með einkenni sem kallað er heterochromia iridium, eða sinn litinn á hvoru auga. Sú staðreynd, auk þvengmjós líkama, gerði það að verkum að Bowie tók að sér að leika óhefðbundin hlutverk í kvik­myndum og á sviði.  

Augu Bowie.
Augu Bowie. Eitt af sterkustu útlits­einkennum Bowie voru mislit augu hans.

Hann lék geimveru sem leitaði hjálpar vegna deyjandi plánetu sinnar í súrrealísku myndinni „The Man Who Fell to Earth“ árið 1976. Hann fékk einnig mjög góða dóma fyrir hlutverk sitt sem John Merrick í Brodway uppfærslu árið 1980 á Fíla­manninum.

Í hlutverki Fílamannsins.
Í hlutverki Fíla­mannsins. Bowie fékk mikið lof fyrir leik sinn sem John Merrick á Broadway.

Hann fæddist í London, 8. janúar árið 1947 og skýrður David Jones. Eftir að hljóm­sveitin „The Monkees“ sló í gegn með Davy Jones innanborðs, breytti Bowie nafninu sínu úr Jones í Bowie. Hann spilaði á saxafón, og eftir töluvert brölt með nokkrum mismun­andi hljómsveitum gerði hann loks samning við Mercury Records, útgáfu­fyrirtækið, sem árið 1969 gaf út plötuna hans „Man of Words/Man of Music“. Þar var að finna lagið hans „Space Oddity“, harm­þrunginn óð til Major Tom, sem flýtur stjórn­laust um geiminn. 

Þegar hann var að fylgja á eftir plötunni með Ziggy Stardust sagði Bowie frá því árið 1972 í viðtali að hann væri samkyn­hneigður, þó það hafi seinna verið málað upp sem tilraun til að vekja athygli á sér. Hann fór að lita á sér hárið og ganga í kvenn­mannsfötum. Platan sló svo gjör­samlega í gegn, og Bowie í leiðinni.

Bowie skipti svo um gír árið 1975. Hann var mjög upptekinn af dans og fönk senunni frá Fíladelfíu, og gaf út plötuna „Young Americans“, sem hann lýsti sjálfur sem „plastic soul“-blöndu. Innihélt hún smellinn „Fame“, sem hann samdi með Bítlinum John Lennon.

Eftir hina trega­fullu og köldu plötu „Staion to Station“, settist Bowie óvænt að í Berlín, og tók árið 1977 upp plötuna „Low“, þá fyrstu í hinni svokölluðu „Berlínar-trílógíu“, í samstarfi við Brian Eno.

Árið 1980 gaf hann út „Scary Monsters“, sem er einskonar ávarp til persónunnar Major Tom úr laginu „Space Oddity“, ásamt laginu „Ashes to Ashes“. Í kjölfarið komu plöturnar „Tonight“ árið 1984 og „Never let me Down“ árið 1987, ásamt samstarfs­verkefnum með hljóm­sveitinni Queen, Mick Jagger, Tinu Turner og fleirum. Hann stofnaði svo kvartettinn „Tin Machine“, en hljóm­sveitin hlaut litla athygli, þrátt fyrir tvær vel heppnaðar plötur.

Bowie hélt sóló ferli sínum áfram árið 1993 með plötunni „Black Tie White Noise“, þar sem tók upp þráðinni með gítar­leikaranum Mick Ronson, sem hafði áður verið með honum í hljóm­sveitinni „Spiders from Mars“. Hann tók svo upp plötuna „Outside“ árið 1995 ásamt Brian Eno, og fylgdi henni eftir með tónleika­ferðalagi þar sem hljóm­sveitin „Nine Inch Nails“ hitaði upp fyrir hann. 1996 tók hann svo upp hina teknó-skotnu plötu „Earthling“, plötuna „Hours“ árið 1999, og „Heathen“ árið 2002.

Bowie var einnig upptöku­stjóri fyrir fjölmarga aðra listamenn, t.a.m. Lou Reed, Iggy Pop and The Stooges, Mott the Hoople og fleiri. Hann hlaut Grammy verð­launin árið 2006 fyrir framlag sitt til tónlistar, en tróð aldrei aftur upp á sviði eftir það.

Bowie tekur við heiðursverðlaunum.
Bowie tekur við heiðurs­verðlaunum. Árið 2006 fékk Bowie viðurkenningu Grammy hátíðarinnar fyrir framlag sitt til listarinnar.

Lítið fór fyrir Bowie milli áranna 2004 og 2012, en árið 2013 gaf hann út plötuna „The Next Day“. Vakti hún mikla athygli, og komst í annað sæti bandaríska Billboard listans, og var þar með sú plata hans sem hæst fór á honum.

Þrátt fyrir stöðugt ákall um tónleika­ferðalög hafði Bowie hægt um sig síðustu árin. Hann bjó í New York, sást sjaldan á ferli og lét lítið fyrir sér fara.

Í desember síðastliðnum var svo frum­sýndur rokk söng­leikurinn „Lazarus“ eftir David Bowie í New York, þar sem hann vekur aftur upp persónuna Thomas Jerome Newton, sem hann lék í kvik­myndinni „The Man Who Fell to Earth“, en Bowie hafði lengi lýst yfir áhuga á því að nota þá persónu í fleiri verkefni.

Úr söngleiknum Lazarus.
Úr söng­leiknum Lazarus. Rokk söng­leikurinn Lazarus var settur upp í New York síðasta desember, byggður á textum og hugmyndum Bowies.

Síðasta föstudag varð Bowie svo 69 ára gamall. Sama dag kom út hans 25. og jafnframt síðasta sólóplata, Blackstar.

Í fyrstu áttu gagn­rýnendur erfitt með að lesa í texta og þema plötunnar, en nú, eftir andlát hans, þykjast margir sjá að þema plötunnar sé einmitt barátta hans við krabba­mein. Hauskúpur og himnaríki, röntgen myndir og svört hjörtu virðast benda í sömu átt; lista­maðurinn vissi að þessi plata yrði hans síðasta. Hans svana­söngur.

Daginn áður en platan kom út sendi hann frá sér tónlistar­myndband við lagið „Lazarus“, en í mynd­bandinu virðist hann vera að boða andlát sitt, eins og Stundin hefur fjallað um. Fyrstu línur textans: Look up here / I’m in heaven [líttu hingað upp, ég er á himnum], eru, í kjölfar andláts hans, sláandi í ljósi þess að þar syngur maður sem vissi hvað var í vændum.

Lagið er vísun í Lazarus út Jóhannesar­guðspjalli Biblíunnar, sem Jesús vakti upp frá dauðum. Það má auðveldlega sjá afhverju Bowie gæti heillast af því að svindla á dauðanum. Í laginu „Dollar Days“ á sömu plötu syngur hann einmitt: I’m dying to push their backs against the grain / And fool them all again and again [ég er að deyja (því) mig langar svo að fara út af vananum / Og plata þau öll aftur og aftur].

Lazarus rís upp frá dauðum.
Lazarus rís upp frá dauðum. Lazarus, enn í líkklæðum, eftir að Jesús hressti hann við. Sagan virðist hafa verið Bowie hugleikin síðust mánuði lífs hans.

Það að svindla á manninum með ljáinn virðist líka vera eitthvað sem aðdáendur Bowies gætu alveg trúað upp á hann. Viðbrögðin við dauða hans hafa einmitt einkennst af uppnámi og undrun, ekki vegna þess að hann var svo ungur, heldur vegna þess að fólk virðist trúa því að hann hafi verið gæddur æðri mætti. Að ef einhver gæti sloppið við það sem bíður okkar allra, þá væri það hann.

En Bowie er látinn. Hinsvegar getum við öll verið sammála um að honum hafi tekist að öðlast eilíft líf með þeim verkum sem hann skilur eftir sig, og þeim áhrifum sem list hans hefur, og mun halda áfram að hafa, á alla þá sem eru þeirra gæfu aðnjótandi að fá að upplifa.

David Bowie skilur eftir sig eigin­konuna Iman, sem hann giftist árið 1992, son sinn Duncan Jones og dótturina Alexandriu. 

David Bowie.
David Bowie. Yfirgefur sviðið.

 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár