Ríki og borg samtals búin að leggja Hörpu til 12,5 milljarða króna

Eigendur Hörpu, sem eru annars vegar íslenska ríkið og hins vegar Reykja­víkurborg, lögðu 1,6 milljarða króna til hússins í fyrra.

Hapa
Hapa Mynd: Bára Huld Beck

Alls hefur tónlistar- og ráðstefnu­húsið Harpa kostað íslenska ríkið og Reykja­víkurborg 12,5 milljarða króna í framlög frá því að húsið var opnað 2011 og út síðasta ár. Sú tala miðar við fast verðlag. Rekstar­framlag náði hámarki í fyrra ef horft er á framlag á verðlagi hvers árs, þegar íslenska ríkið lagði 877 milljónir króna til rekstursins en borgin 747 milljónir króna. Um er að ræða bæði framlag til endur­greiðslu lána vegna byggingar­kostnaðar og beint rekstrar­framlag. Þegar horft er á framlög á föstu verðlagi, og miðað við verðlag í janúar 2020, var árið 2017 metár í framlögum, en ekki munar miklu á því framlagi og greiðslunum í fyrra.

Alls hefur ríkið greitt 5,6 milljarða króna í framlag vegna endur­greiðslu láns vegna byggingar­kostnaðar á umræddu tímabili og Reykja­víkurborg tæplega 4,8 milljarða króna. Beint rekstrar­framlag, til að mæta miklum taprekstri Hörpu, hefur samtals numið rúmlega 2,1 milljarði króna frá 2011. Þar af hefur ríkið lagt til rúman 1,1 milljarð króna en borgin 974 milljónir króna. Borgin hefur fengið um 1,9 milljarð króna af heildar­framlagi sínu til baka vegna álagðra fasteigna­skatta á Hörpu.

Stað­virtur heildar­kostnaður við byggingu Hörpu án lóðar, miðað við byggingar­vísitölu í janúar 2020, er um 24,9 milljarðar króna en með lóð um 26,6 milljarðar króna.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Benedikts­sonar, fjármála- og efnahags­ráðherra, við fyrir­spurn Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, um málið sem birt var í gær.

Átti ekki að setja meira fé í reksturinn

Íslenska ríkið og Reykja­vík­­­ur­­borg sam­­þykktu að taka yfir og klára bygg­ingu Hörpu snemma árs 2009. Þá höfðu fram­­kvæmdir við bygg­ingu hús­s­ins, sem Eign­­ar­halds­­­fé­lag­ið Portus stóð fyr­ir, stöðvast í kjöl­far banka­hruns­ins. Ástæðan var sú Portus og dótt­­ur­­fé­lög þess, sem voru í eigu Lands­­banka Íslands og Nýsis, fóru í þrot.

Eftir yfir­­­töku ríkis og borgar á verk­efn­inu, sem var gerð þegar Katrín Jak­obs­dóttir, nú forsætis­ráðherra, var mennta­­mála­ráð­herra og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir borg­­ar­­stjóri í Reykja­vík, var tekið sam­­banka­lán hjá íslensku bönk­­unum til að fjár­­­magna yfir­­tök­una. Í skrif­­legu svari Katrínar við fyr­ir­­spurn þing­­manns­ins Marðar Árna­­sonar um Hörpu, sem birt var í mars 2011, kom mjög skýrt fram að ekki ætti að setja meira fé en þar var umsamið í Hörpu.

Þar sagði orð­rétt að „for­­sendur fyrir yfir­­­töku verk­efn­is­ins voru þær að ekki þyrftu að koma til önnur fram­lög frá ríki og borg en gert var ráð fyrir í samn­ingi Aust­ur­hafn­ar-TR og Portusar frá 9. mars 2006".

Tón­list­ar- og ráð­stefnu­húsið Harpan er nú í 54 pró­sent eigu rík­is­ins og 46 pró­sent í eigu Reykja­vík­ur­borg­ar.

Ekki sjálfbært rekstrarmódel

Harpa hefur ekki birt ársreikning fyrir árið 2019. Árið á undan, 2018, var afkoma rekstr­ar­reikn­ings­ Hörpu hins vegar var nei­kvæð um 461,5 millj­ónir króna og jókst mikið milli ára.

Þórður Sverr­is­son, þá frá­far­andi stjórn­ar­for­maður Hörpu, sagði í á ársfundi Hörpu í fyrra að tapið skýr­ðist af því fyr­ir­komu­lagi að skulda­bréfa­lán til 35 ára, sem tekið var til að fjár­magna bygg­ingu húss­ins, væri vistað í dótt­ur­fé­lag­i ­fyr­ir­tæk­is­ins. „Það er morg­un­ljóst að þetta rekstr­ar­módel Hörpu hefur aldrei verið og getur aldrei orðið sjálf­bært. Því verður að breyta til að ná að skapa Hörpu­ ohf, sem hluta­fé­lagi eðli­legan rekstr­ar­grund­völl til fram­tíðar þannig að það nái að starfa sem sjálf­bært fyr­ir­tæki og geti gegnt sínu mik­il­væga hlut­verki.“

Núverandi stjórnar­formaður Hörpu er Ingibjörg Ösp Stef­ánsdóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár